Vikan


Vikan - 02.03.1972, Blaðsíða 44

Vikan - 02.03.1972, Blaðsíða 44
ast mikið og maður veit nokk- urn veginn við hverju má bú- ast frá honum. Ekki er ýkja mikill munur á þessum þremur plötum hans og er því erfitt að segja til um hver er bezt. All- ar hafa þær að geyma sömu hugmyndirnar, sömu hljóð- færaskipan og hljóðfæraleik og sömu tilfinningar, þær er áður eru raktar. Stíll hans er mjög sérstakur, og hann hefur ó- venjulegan hæfileika til að tvinna saman vel unnar „com- mercial“ melódíur og persónu- lega, nær frumstæða texta. Þessi stíll hans er vinsæll eins og er og því er ekki mikil ástæða fyrir hann til að breyta til, en gaman væri að sjá frá honum texta jafn fágaða og þá sem James Taylor gerir eða þá eitthvað svipað sem Van Morri- son hugsar svo djúpt. En kannski er betra að Cat haldi áfram að semja lög á sama hátt og hann samdi „Moonshadow", þannig er hann ekta og þannig eru lög hans aðeins einskonar „framlenging“ af honum sjálf- um. „Mér finnst fólk dýrka allt sem ég geri. Það er erfitt að segja um sjálfan sig að nú geri maður þetta og svo hitt eða eitt- hvað svoleiðis. En það er mér nauðsynlegt að reyna eitthvað nýtt, jafnvel þótt það takist ekki og auðvitað verður mér að mistakast öðru hverju. Ég hlusta ekki á lögin sem eru efst á vinsældalistunum. Það er búið og gert og gerir ekkert annað en að þreyta mann. Ég vil hlusta á fólk sem er að berjast fyrir músík sinni. En ég vil ekki stæla neinn, mér finnst gaman að því sem ég er að gera sjálfur. Ég er til dæm- is voðalegur gítarleikari (hann er stöðugt með annan gítarleik- ara með sér), en ég vil ekki læra að spila á gítar. Margir hafa boðist til að kenna mér, en ég vil það ekki. Þetta er ágætt svona, er það ekki?“ PÓSTHÓLF 533 Framhald. af bls. 33. legg ykkur því aS hafa sam- band við Lista- og skemmti- deild sjónvar'psins og spyrj- ast fyrir um þetta hjá að- ilum sem einhverju ráða. 3. Á meðan þeir eru til hlýtur að vera von, og mér er kunn- ugt um að gerðar hafa verið tilraunir til að fá þá hingað á Listahátíðina í vor, en eftir því sem þeir sjálfir hafa lát- ið hafa eftir sér í erlendum blöðum og tímaritum, virð- ast möguleikarnir ekki mikl- ir; það mikið er að gera hjá Rolling Stones þessa dagana og auk þess er Jagger orðinn giftur maður og ráðsettur faðir, þannig að hald manna er nú að hann sé búinn að missa allan vind sem for- dæmi uppreisnargjarnrar œsku! P.S. Litið sé ég því til fyrir- stöðu við tœkifœri. TROBROT ... Framhald af bls. 33. díói Péturs Steingrímssonar. Er töluvert af athyglisverSum plöt- um í undirbúningi og ber þar hæst LP-pIötu með Shady Owens (Fálkinn), en hún er nú alkomin heim og komin í Nátt- úru (með Jóhanni G. Jóhanns- syni, Sigurði Ámasyni, Björg- vin Gíslasyni, Ólafi Garðars- syni og Áskeli Mássyni). Áður en þeir Gunnar, Rún- ar, Jökull og Magnús halda til Kaupmannahafnar, hafa þeir hug á að halda hljómleika hér heima, en ekki hefur endan- lega fengizt loforð fyrir hús- inu sem þeir hafa í huga — en óhætt er þó að fullyrða að það er ekki Háskólabíó, Austur- bæjarbíó eða Laugardalshöllin. Skömmu áður en þeir félag- ar hófu fríið, brá ég mér í Sig- tún til að hlusta á þá og satt að segja varð ég fyrir von- brigðum. Hljómsveitin, sem að- eins nokkrum mánuðum áður hafði verið þung og þétt rokk- hljómsveit, var orðin að eins konar beinni útsendingu á „Óskalögum sjúklinga“. Að vísu voru þeir eingöngu með ný og nýleg lög, en langflest þeirra heyrir maður í útvarp- inu daglega. Vissulega kemur þetta heim og saman við það sem einhvers staðar var haft eftir Gunnari Jökli, að þeir vildu einbeita sér að því að skemmta fólkinu á dansleikj- unum, en samt vil ég halda því fram að „fólkið“ er búið að fá nóg af „Chirpy Chirpy Cheep Cheep“, almenningur, við, vill heyra þróaða og vand- aða tónlist — og ekki sízt frá hljómsveit eins og Trúbrot. ÁÐ LEIKA FÍL Framhald af bls. 17. Alla leiðina heim hafði hún hughreyst sjálfa sig með þeirri tilhugsun að mamma myndi hlusta á hana meðan þær drykkju te við eldhúsborðið, og síðan segja eins og venju- lega þegar eitthvað verulega skelfilegt hafði skeð: — Taktu það ekki svona nærri þér, elsk- an mín litla! Ég skil að það hlýtur að vera hræðilegt nú, en hugsaðu þér þá bara hvað það gerir til eftir hundrað ár? En í dag sagði hún ekkert. Og Beth fór upp í herbergi sitt. í heila klukkustund lá hún í rúminu og starði í loft upp, og hlutir sem naumast rúm- uðust í þrettán ára heila henn- ar þrengdust að. Móðir hennar og þessi maður. Höfðu þau . . .? Hún reyndi að sjá mömmu sína litlu — lengdina hafði hún erft frá föður sínum — fyrir sér í faðmi einhvers ókunnugs manns, og sú tilhugsun var i senn spennandi og ógeðsleg. Það var aldimmt í herberg- inu og veðrið versnandi; krapaslettur skullu á gluggan- um. En Beth kom sér ekki að því að kveikja ljós eða draga niður rennitjaldið. Hún hug- leiddi hvað pabbi myndi gera ef hann frétti þetta. Myndi hann þjóta af stað og lúberja þennan dularfulla John? En Beth gat ekki ímyndað sér pabba sinn berja nokkurn. Ekki pabba sinn. Pabbi var mjög hávaxinn og allmyndar- legur maður, og hann yfirgaf heimili sitt og kom þangað aft- ur með skjalatösku í hendinni. Það var engu líkara en þessi taska væri gróin við hönd hans. Pabbi vann að skjölunum sín- um langa stund hvern dag eft- ir miðdegisverðinn, kom svo inn í dagstofuna, lét fallast í hægindastól. og horfði á sjón- varpið hálfluktum augum. Þau rifust aldrei, pappi og mamma. Beth hafði aldrei heyrt til þeirra nein dramatísk rifrildi, sem gátu staðið í ein- hverju sambandi við dular- fulla elskhugann. En það vissi hamingjan að þau töluðu ekki mikið saman heldur. Eiginlega hafði hún aldrei hugsað út í það hvernig það væri milli mömmu og pabba. Það hafði nægt að þau höfðu alltaf verið þarna saman öll þrjú, pabbi og mamma og hún, lítil og örugg fjölskylda. Beth settist við skrifborðið með kennslubókina í líffræði fyrir framan sig og byrjaði á teikn- ingu af meltingarfærum kan ínunnar. Henni tókst ekki vel upp. Þegar pabbi kæmi heim, myndi hún segja honum frá leikritinu og hann hlaut að skilja hvað þetta var óréttlátt. En þegar hún sat á móti hon- um við matborðið og sá hann moka upp í sig án þess að hægt væri að sjá að hann hefði hug- mynd um hvað hann var að 44 VIKAN 9. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.