Vikan


Vikan - 02.03.1972, Side 5

Vikan - 02.03.1972, Side 5
Vitum ekki hvað við eigum að gera Kæri Póstur! Eins og svo margir, þá er ég í vanda stödd. Þannig er mál með vexti að ég er með strák á föstu og erum við búin að vera sam- an í fjóra mánuði. En nú er hann farinn úr bænum að vinna og nú er ég búin að vera með vini hans, og ég er farin að fá áhuga á honum og hann á mér, en við vitum ekki hvað við eigum að gera. Góði Póstur, hvernig á ég að segja stráknum (sem ekki er í bænum) frá þessu. DD. P.S. Hvernig er stafsetningin og hvað sérðu úr skriftinni? Ef við skiljum það rétt að þú viljir vera laus allra mála við þann elskhugann, sem er í vinnu utanbæjar, er bezt fyrir þig að gera hreint fyrir þínum dyrum strax, skrifa honum og segja honum upp. Og sértu hrædd við að særa hann, ættirðu að hugga þig við að ótrúlegt er að hann sjái lengi eftir kvenmanni, sem stekkur í fangið á vini hans svo að segja jafnskjótt og hann snýr við henni baki. Stafsetningin er góð, en þú ert fullspör á kommur og stóra stafi. Skriftin er ekki snotur og erfitt að lesa nokkuð úr henni. Hljómsveitin Gunk Kæri Póstur! I blaði núna um daginn var verið að spyrja um hljómsveit- ina Gunk. Ég ætla að skrifa það sem ég veit um hana. Söngvarinn heitir Omar Oskars- son, heima í Goðatúni 22 Garða- hreppi og er tuttugu ára, í Kenn- araskólanum. Bassaleikarinn heitir Ingólfur Steinar Margeirsson, heima Faxa- túni 11, Garðahreppi, varð tutt- ugu ára mánudaginn 7. ágúst. (Trúlofaður). Gítarleikarinn heitir Sverrir, heima Aratúni, Garðahreppi, er átján eða nítján ára. Grímur trommuleikarinn er nú ( Tilveru en sagt er að hann ætli aftur í Gunk og ég held að hann eigi ennþá heima á Skúlagöt- unni. Rótarinn hjá þeim heitir Jón Ingi, meira veit ég ekki um hljómsveitina en vona að þetta komi að gagni, ég ætla einnig að biðja þig um að birta ekki nafnið undir heldur bara Áskrifandi. Munstur í hringjum Kæra Vika! Ég væri mjög þakklátur ef þið gætuð svalað forvitni minni og gefið mér svar við hvaða sál- rænu flækjum sú manneskja býr yfir, sem teiknar hringi, útfyllta með ýmiss konar munstri í tíma og ótíma. Ég hef miklar áhyggj- ur af henni. Vona að bréfið lendi ekki í ruslakörfunni. Takk fyrirfram. Forvitinn. _________ ú==i Manneskjan er sennilega haldin mikilli innilokunarkennd, á erf- itt með að tjá sig, en býr engu að síður yfir verulegum hæfi- leikum. Ef hún liður vegna þessa ástands, ætti hún að reyna sem mest að leita sambands við ann- að fólk, og góðir vinir hennar, ef hún á einhverja, ættu að gera sitt bezta til að hjálpa henni til þess. Þorum ekki að segja þeim það Kæri Póstur! Við erum hérna tvær sem erum alvarlega ástfangnar af tveimur strákum. En við þorum ekki að segja þeim það. Getur þú ráð- lagt okkur hvað við eigum að segja við þá, og hvernig við eig- um að komast að orði við þá? Tvær kjarklausar. f=Í=} Þurfið þið endilega að segja þeim það? Getið þið ekki ein- faldlega talað við þá án þess að vera að röfla um ást og þess háttar, bara reynt að vera skemmtilegar og fírugar? Þá skulum við sjá hvort þetta kem- ur ekki. MATREIÐSLUBÖK VIKUNNAR ---------------------KLIPPIÐ HÉR---------------- I Vinsamlegast sendið mér möppu undir MATREIÐSLU I BÓK VIKUNNAR. Greiðsla sem er 130 krónur, fylgir I með í ávísun/póstávísun (strikið yfir það sem ekki 1 á við). Ef hægt er óska ég eftir, að mappan verði í bláum/ljósbláum/rauðum lit. (Strikið yfir það sem 1 ekki á við). n Q o. Zj Nafn ............................................ Heimili ----------------------KLIPPIÐ HÉR Afköst: 4,5 kg. Tvær hitastillingar. Útblástursbarka má tengja við þurrkarann. Yfir 20 ára reynsla bérlendis. Varabluta- ög viðgerðaþjónusta. VERÐ KR. 24.540,—. ooCfczi Lougavegi 178 Simi 38000 ENGLISH ELECTRIC ÞURRKARAR 9. TBL. VIKAN 5 KLIPPIÐ HÉR

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.