Vikan


Vikan - 02.03.1972, Qupperneq 12

Vikan - 02.03.1972, Qupperneq 12
NÝ FRAMHALDSSAGA EFTIR PIERRE DUCHESNE Ást hennar var afbrot 31. ágúst árið 1969 svipti kennslukonan Gabri- elle Russier sig lífi með því að skrúfa frá gas- krönunum. 10. júlí hafði verið kvcðinn upp dóm- ur og hún dæmd i fangelsi og sekt fyrir það að verða ástfangin af nemanda sínum Christian Rossi, sem var 18 ára. Börn hennar tvö voru tekin af henni. Christian fór á geðveikrahæli . . . Þessi ástarsaga og harmleikurinn sem fylgdi á eftir, skipti Frökkum í tvær fylkingar og Pom- pidou ásakaði sjálfan sig og frönsku þjóðina fyrir að vera völd að dauða Gabriellu. Nú hafa komið út bréf, sem hún skrifáði i fang- elsinu. Pierre Duchense hefur skrifað Skáldsögu. sem styðst við þennan sorgaratburð og nýlega hefur Metro-Goldwyn-Myer sent frá sér kvik- mynd, sem André Cayatte hefur gert um þetta efni. Annie Girajrdot leikur Daniéle, eins og Gabrielle er kölluð i myndinni og Bruno Pradei leikur Gérard, en það er nafn Christians í mynd- inni. Myndirnar sem fylgja eru teknár úr kvik- myndinni. Það eina sem hún óskaði var að vera frjáls til að elska þann mann sem hún hafði valið, en þrá hennar eftir frelsi og sannleika endaði í skelfilegum harmleik... — Hvernig hefir þú skemmt þér í sumar? Vel? Ja, þú ættir að sjá hana, hún skrffar mér á hverjum degi. Og það var mikið talað og hlegið. Nemendurnir stóðu í smá- hópum í skólagarðinum. Svo hljómaði bjallan. Hávaðinn hljóðnaði og hóparnir flykktust að dyrunum, sem lágu inn á skólagangana. Þegar nemend- urnir voru komnir inn í kennslustofumar heyrðist ekki annar hávaði en skrapið í stól- fótunum. Stúlka gekk inn. Hún nam hikandi staðar í gættinni. Hún var ný, það fór ekki á milli mála. Hún var stuttklippt, ó- máluð og feimnisleg. Piltarnir voru vandræðalegir en því hrokafyllra varð augnatillit þeirra. Stúlkurnar voru fljótar að sjá að hún bar enga skart- gripi og var í ódýrum kjól. Þrír piltar komu inn á eftir henni og stjökuðu ósjálfrátt við henni með skólatöskum sín- um. Hún gekk hröðum skrefum upp að kennaraborðinu og lagði tösku sína á borðið. Það varð dauðaþögn. Nem- endurnir horfðu á hana og vissu ekki hvernig þeir áttu að bregð- ast við þessu. Flestir voru seztir, en stóðu ósjálfrátt upp sem snöggvast. Það varð hálf- gerð vandræðaþögn. Gerard leit forvitnislega á þessa furðulegu kennslukonu. í stað þess að horfa út um gluggann og bíða þess að alger þögn kæmist á, horfði hún brosandi á nemend- ur sína. Svo leit hún niður og fór að gramsa í töskunni sinni. Eiginlega áður en þögn var komin á, var hún komin út í stofúna, gekk á milli bekkja- raðanna og úthlutaði rúðustrik- uðúirl, ljósbláum pappaspjöld- um, sem nemendur áttu að skrifa nöfn sín á. Fyrsta röð — önnur, bros Danielle var orðið nokkuð þreytulegt, — þriðja og þá var hún komin að endavegg stof- unnar og hallaði sér upp að honum, eins og til að ná and- anum. Hún sá nú aðeins hnakkasvip nemendanna. Þau sátu álút yfir spjöldunum og skrifuðu. Henni leið svolítið skár, þegar hún þurfti ekki að horfa í þessi þrjátíu pör augna, sem horfðu á hana, ýmist með forvitni eða hroka. Hún lokaði augunum, en opnaði þau strax aftúr, vegna þess að hún hafði á tilfinningunni að einhver væri að horfa á sig. Það reyndist rétt; einn nemenda hafði snúið sér við og horfði á hana — og svo annar. Það var bezt að taka á sig rögg, áður en allur bekk- urinn sneri sig úr hálsliðunum, Þau horfðu hvort á annaS i speglinum. Tvær ungar manneskjur, sem nutu forboSinnar ástar . . . 12 VIKAN 9. TBl.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.