Vikan - 22.06.1972, Page 4
¥ Hvað er verið
[ a5 skamma mann?
Hru þetta ekki Sommcr-teppin,
Jrá Litaveri sem þola allt^P
a&fb§t&&íf
Teppin sem endast endast og endast
á stigahús og stóra gólffleti
Sommer teppjn eru úr nælon. Það er sterkasta teppaefnið
og hrindir bezt frá sér óhreinindum. Yfirborðið er með þéttum, lá-
réttum þráðum. Undirlagið er áfast og tryggir mýkt,
sislétta áferð og er vatnsþétt.
Sommer gólf- og veggklæðning er heimsþekkt. Sommer teppin
hafa staðizt ótrúlegustu gæðaprófanir, m. a. á fjölförnustu
járnbrautarstöðvum Evrópu.
ViS önnumst mælingar, lagningu, gerum tilboS og gefum
góða greiðsluskilmála. LeitiS til þeirra, sem bjóSa Sommer verð og
Sommer gæði.
UTAVER
GRENSÁSVEGI 22-24
SÍMAR: 30280 - 32262
PÓSTURINN
Ég er að deyja
Kæri þáttur!
Ég hef aldrei skrifað þér áður,
svo ég vona að bréfið lendi
ekki í dallinum. Það var nú
einu sinni þannig að ég var með
strák, sem við skulum kalla
Gunna, við hættum að vera
saman fyrir tíu dögum en byrj-
uðum að vera saman aftur þó
ekki nema tvo daga en þá hélt
hann framhjá ef ég má svo að
orði komast. Ég er nú ekki nema
seytján ára en hann er tuttugu
ára. Hann var alltaf að segja að
hann væri svo hrifinn af mér en
ég er að deyja — ég er svo hrif-
in af honum. Ég vinn á sama
stað og hann á heima. Hvað á
ég að gera? Þegar hann er á
því, með öðrum orðum fullur,
þá er hann svo kærulaus. Hon-
um er alveg sama þá, hvort
hann er með stelpu eða ekki.
Það var þannig sem við hættum
að vera saman, þá var hann
fullur. Núna fyrir nokkrum dög-
um þá dreymdi mig hann, en
draumráðningamaðurinn sér um
það.
Hvernig skapgerð hefur Vogin?
Og hvað lestu úr skriftinni?
Hvaða merki passar bezt við
Vogina? Þakka fyrir mjög góð-
ar sögur. Ein hrifin.
Sé hann eitthvað hrifinn af þér
reynir hann áreiðanlega að
stofna til sambands við þig aft-
ur. Reyndu því að hafa þolin-
mæði í smátíma. Ef hann reyn-
ir hins vegar ekki innan skamnís,
bendir það til þess að áhugi
hans á þér sé lítill sem enginn,
hvað sem hann segir.
Vogin er að jafnaði rólynd, legg-
ur mikið upp úr því að vera (
jafnvægi og geðjast öðrum,
draumlynd og nokkuð yfirborðs-
kennd. Merkin sem eiga bezt
við hana eru Tvíburarnir, Ljón-
ið, Jómfrúin, Bogmaðurinn og
Vatnsberinn. Skriftin gæti bent
til þess að þú værir dálítið feim-
in, en jafnframt full fljótfær og
hroðvirk.
Grófuð þið Henry
upp úr öskutunnu?
Komdu nú sæll og blessaður
Póstur!
Ég ætla að byrja á þvl að þakka
allt gamalt og það sem eitt sinn
var gott. Ég hef nú ekki skrifað
þér áður en nú fannst mér ég
hafa nokkra ástæðu til þess. Er
það nú svo komið að Vikan sé
alveg uppiskroppa með efni? í
síðasta tölublaði eða því tuttug-
asta er sagt frá hrakningum
ungrar stúlku í frumskógum í
Suður-Ameríku. Þetta er einstætt
afrek eða heldur kraftaverk að
hún skyldi lifa þetta af og er
mjög góð frásögn. En mér er
spurn. Er ekki nóg að eitt út-
breiddasta og mest selda blaðið,
það er að segja Morgunblaðið,
birti þessa frásögn? Þá kemur
Vikan allt í einu með þessa
sömu frásögn sem helmingur
landsmanna var rétt í þessu að
Ijúka við. Þetta er jú mjög góð
frásögn, en er nú ekki komið
nóg af svo góðu að þið komið
með þetta líka? Þetta kann
mörgum að finnast skrýtið og
einnig mér. Og svo langar mig
til þess að spyrja að einu. Gróf-
uð þið þennan blessaða Henry
upp úr einhverri öskutunnu?
Þetta er sú daprasta og leiðin-
legasta myndasaga, sem ég hef
séð á ævi minni, og ég er viss
um að fleiri eru á sömu skoð-
un. Síðan ég seldi Vikuna hef-
ur efni hennar versnað um þrjá-
tíu prósent, leyfi ég mér að
segja. Ég held að ég sé búinn
að fá útrás núna og vona að
þetta bréf lendi ekki í sömu
tunnu og þið funduð Henry í.
M-16.
-----------
BréfiS lendir alveg ákveðið ekki
þangað sem Henry er upprunn-
inn, einfaldlega vegna þess að
Vikan tók hann ekki úr neinni
öskutunnu. Pósturinn sér ekki
ástæðu til að taka afstöðu til
þess vandamáls hvort Henry sé
að meira eða minna leyti
skemmtilegur eða leiðinlegur,
en vill þó ekki liggja á því að
hann hefur nokkrum sinnum
heyrt utan að sér að lofsyrðum
hefur verið farið um téða
teiknimyndahetju.
Vikan harmar að hafa lent í því
að birta frásögn af hrakningum
stúlkunnar í Suður-Ameríku
samtímis Morgunblaðinu, en sú
er ástæðan til þess að bæði
blöðin tóku frásögnina til birt-
ingar jafnsnemma og vissi hvor-
ugt af því hjá hinu. Þegar frá-
4 VIKAN 25. TBL.