Vikan


Vikan - 22.06.1972, Side 13

Vikan - 22.06.1972, Side 13
SLEIKUR 1 Hann braut heilann i þungu skapi. Málningarblettur á klukkuskífu? Hann hafði gaman af að brjóta erfiðar hnetur. Það var hans sérgrein. Enhannvildi bara geta náð almennilegu taki á þeim með hnotubrjótnum. augunum frá líkinu og að opnum peningaskápnum úti i horni. Hann var inm i fallegri viðar- umgerð, og nikkelskrautið á honum blikaði i daufri birtunni. En þaðan renndi hann svo augunum að pappirsörkinni, sem lá fyrir framan dauða manninn - hálfldárað bréf með stórri blek- klessu, sem sýndi, að Hargrave hafí^i verið að skrifa bréfið þegar hann var skotinn. En svo stanzaði hann við litla hrúgu af peningaseðlum, sem lá viðhorniðá blekþurrkunni. Hann hafði þegar talið þetta, og það voru fimmtlu pund. Hann staðnæmdist ofurlitið við þessa seðla. Siðan sneri hann sér við og dró hugsaða lfnu milli peninganna á borðinu og klukk- unnar á hinum veggnum. Hann beygöi sig og rýndi vandlega á mjóu málningarröndina, sem náði frá XII til IV. Hann rétti úr sér oggrettan hvarf af andlitinu. Og þaö lék glott um munninn. „Dálaglegt”, sagði hann. „Þetta var dálagleg smá-gesta- þraut.” En tónninn og til- burðirnir gáfu til kynna, að þessi dálaglega gestaþraut hefði verið snúin og það hefði verið heilinn i Daniel Hooper, sem réð fram úr henni. „Jæja, Bjálfi, nú skulum við gefa morðingjanum almennilegt spark i rassinn, svo hann lendi I dauðaklefanum.” „Bjálfi” Ðillon, feitur og ánægður eins og ofalinn keltu- hundur, sat i hægindastól, andspænis myrta manninum. Hooper hafði tekið hann með sér, aðeins vegna þess, að svo vildi til, að hann var á stöðinni, þegar til- kynningin barst. Það var óhugsandi, aö nokkur maður væri jafn heimskur og Bjálfi leit út fyrir 'að vera. Næstum allir i lögregluliðinu skoðuðu hann sen einskis nýtt stofustáss, þvi að feitur likaminn var jafnan iklæddur fötum eftir nýjustu tizku. Illkvittnar tungur sögðu, að hann héldi stöðunni sinni i lög- reglunni, vegrui þess að faðir hans væri mikilsháttar embættis- maöur hjá Scotland Yard, en ekki var það nú samt allur sannleikurinn. Bjálfi var stundum ótrúlega heppinn - og margir kölluðu þetta strákalukku eða öllu heldur bjánalukku - og enda þótt athafnir hans væru stundum bjánalegar og handa- hófslegar, rataðist honum oft á það rétta - yfirmönnum hans til mestu furðu. Bjálfi lyfti brúnu kýríiugunum i feitu, breiðu andlitinu, og horfði með mikilli lotningu framan i Hooper liðþjálfa. „LittU' bara á klukkuna þá arna, Bjálfi. Hún er bæði falleg og nytsöm, og segir mér sitt af hverju, auk tima sólarhringsins. Hún segir mér, næstum upp á minútu, hvenær Hargrave var drepinn.” Bjálfi reis upp úr stólnum og gekk fram. „Þú sérð þessa klessu á minútuvisinum, sonur sæll? Og þetta strik frá toppnum á skifunni og til hægri? Morðinginn hefði eins vel getaö notað stimpil- klukku. Þetta strik sýnir mér, að morðið var framið sem næst tuttugu minútum yfir ellefu.” Augun i Bjálfa urðu bæði stór og kringlóti, „Skilurðu ekki þetta, sonur sæll? Morðinginn opnar litlu fallegu glerhurðina þarna, rennir fingrinum niður eftir skifurini og finnur minútuvisinn, sem þá visar tuttugu minútur yfir heilan tima.” „Já?” sagði Bjálfi og náði varla andanum, - hann rennir fingrinum niður skifuna, og . . . . En til hvers gerir hann það, Dan? - Hugsaðu þig um, sonur sæll. Kannski kemst það inn i hausinn á þér með timanum.. En hvað sem ööru liður, þá hefur timinn ekkert að segja tileða frá. Það er moröinginn, sem við erum að elta, og þarna hefur hann sama sem skrifað nafnið sitt á klukku- skifuna. Framhald á bls. 36.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.