Vikan - 22.06.1972, Blaðsíða 33
Ómar Valdimarsson
heyra
|pra má
THICK AS A BRICK
UMBI ROY
lan Anderson á sviðinu í Albert Hall. í síðustu tvö skiptin sem þeir
komu þar fram, fengu þeir fullt hús, samtals 13000 manns. Á bakviS
Anderson er gítarleikari Tull, Martin Barre. Nokkrum sinnum hefur staSiS
til aS Jethro Tull heimsæktu ísland, en því miSur hefur ekki orSiS af
því ennþá. SviSsframkoma (stage act) þeirra er sögS í algjörum sér-
flokki.
Um þessar mundir er að koma á markaðinn tveggja laga
plata með söngvara, íslenzkum, sem kallar sig Umba Roy.
Lögin eru bæði bráðskemmtileg, afskaplega „commercial“
og heita „Bleikur fíll“, sem er algjörlega eftir Umba Roy,
og „Leggstu aftur“, sem er „vögguvísa", með texta eftir ein-
hvern „Guðvaliníus“, en lagið er hið gamalkunna „Roll
me Over ...“
Útgefandi þessarar plötu er hljómplötufyrirtækið Skorp-
ino og hafa forráðamenn þess algjörlegfa neitað að gefa
upp raunverulegt nafn Umba en benda fólki á að kaupa
plötuna og geta uppá. Aftan á umslaginu eru um það bil
50 nöfn sem hægt er að velja úr og er sagt að sá er getur
uppá réttu nafni verði verðlaunaður með því að platan
verði tekin af honum og hann lamin í höfuðið með henni.
Er ekki að efa að þessi plata verður hin vinsælasta í
drykkjusamkvæmum og kelerísferðum í rútubílum.
Ástæða er til að vekja athygli
á hinni nýju LP-plötu Jethro
Tull, „Thick as a Brick“, sem
út kom í vor. Að vísu er tölu-
vert langt um liðið og því má
búast við að allir helztu að-
dáendur Tull séu búnir að festa
kaup á þessari plötu, en ekki
sakar að æsa hina, sem ekki
hafa gert svo, til kaupa á þessu
meistaraverki.
Umslagið er all-nýstárlegt að
auki. Er það gert eins og dag-
blað og yfirfullt af bröndurum.
í dagblaðinu, The St. Cleve
Chronicle, er gefið í skyn, að
ljóðið „Thick as a Brick“ sé
eftir 8 ára dreng, Little Milton,
og hafi BBC bannað flutning
þess, þar sem ekki væri gott
fyrir svo ung börn að yrkja slík
og þvílík ljóð. Inní blaðinu er
ljóðið, eða textinn, svo prent-
aður. Þykajst fróðir menn vita,
að með þessu sé Ian Anderson,
flautuleikari, söngvari og aðal-
sprauta Jethro Tull, að deila á
brezka ríkisútvarpið, BBC, en
forráðamenn þess eru jafnvel
enn forpokaðri en stjórnendur
Ríkisútvarpsins á íslandi.
Annars virðist töluvert vera
að færast í vöxt að nýta um-
slög sem dagblöð. Má nefna í
því sambandi (auk „Thick ...“
FramhálcL á hls. 45.
25. TBL. VIKAN 33