Vikan - 27.07.1972, Page 18
Shirley Temple, harnastjarnan fyrrverandi, sézt hér á mynd að ofan, þar sem hún tekur þatt í kosningabaráttunni fyrir Nixon
forseta. Bak við hana sézt eiginmaður hennar. Myndirnar að neðan eru af Shirley í kvikmyndinni „Litli sólargeislinn“ og af
henni með eitt af þrem börnum sinum.
swimwu
FULLTRÚI Á ALÞJÖÐLEGRI RÁÐSTEFNU UM
UMHVERFISVERND.
Shirley Temple, sem einu sinni var frægasta
barnastjarna kvikmyndanna, starfar nú
hjá Sameinuöu þjóðunum og fór til Stokk-
hólms, til að sitja alþjóðlega ráðstefnu
um umhverfisvernd ...
Hún er nú orðin ráðsett kona
og mjög móðurleg, en spékopp-
arnir eru ennþá á sínum stað
og brosið leynir sér ekki. Shir-
ley Temple er nú orðin fjöru-
tíu og þriggja ára og það er
öruggt að hún vekur athygli
hvar sem hún fer. Hún hefir
staðið sig betur í stjórnmálum
heldur en upphaflega var spáð.
Nixon forseti launaði henni
skelegga baráttu og fjársöfnun
í kosningasjóð hans.
Shirley Temple Black, eins
og hún er nú kölluð, barna-
stjarnan með slöngulokkana,
var einna líkust goðsögn á
fjórða tug aldarinnar. í nokkur
ár var hún jafnvel dáðari en
Charles Chaplin og Clark
Gable, fyllti kvikmyndahúsin
og vann inn álitlegar fúlgur
fyrir Fox-félagið. Hún lék í 33
kvikmyndum og brúttótekjur
hennar á þessum árum voru
samanlagt 3.600 milljónir
króna. Útgjöldin voru að vísu
gífurleg, en þegar hún hætti að
leika í kvikmyndum árið 1950,
átti hún yfir 450 milljón krón-
ur í óvenjulega öruggum og
arðvænlegum hlutabréfum.
Það var að vísu föður hennar
að þakka, en hann var banka-
stjóri í Hollywood og sá um
fjármál dótturinnar.
Shirley var aðeins þriggja
ára, þegar hún kom fyrst fram
í kvikmynd. Gertrude móðir
hennar, sem alltaf var með
henni í kvikmyndaverunum,
hafði komið dóttur sinni í bali-
ettskóla. Þangað kom umboðs-
maður í stjörnuleit og tók strax
eftir því að telpan hafði ó-
18 VIKAN 30. TBL.