Vikan


Vikan - 31.08.1972, Qupperneq 40

Vikan - 31.08.1972, Qupperneq 40
held áfram að flækja svona, losna ég aldrei, svo ég held að ég hætti hér). 1 áðurnefndu lagi, ,,Do You Believe In Magic?”, segir hinn stórgóði John B. Sebastian á einum og öðrum stað, að tónlistin geti frelsað sálir okkar, tónlistin sé töfrar og töfrar séu i tónlist- inni. Loks segir hann orðrétt og held ég persónulega að þessi orð deyi aldrei: ,,Do you believe in the magic of a young girl’s soul? Believe in the magic of rock and roll? Believe in the magic that can set you free...?” Hlustum á Sebastian syngja þetta og vöknum svo morguninn eftir til að segja já. ,,Já” við því sem hann talar um og ,,já” við heiminum. ó. vald. RÁÐGÁTAN Á MORÐI ULLU Framhald af bls. 31. fimm um morguninn, 4. mai, var Irwing svo kominn heim til sin. Ulla Höglund hafði verið horfin i þrjá daga, þegar rannsóknar- dómarinn spurði Irwing Höglund hvort hann hefði átt vingott við aðrar konur. Kvöldið áður haföi einn af lögregluforingjunum yfir- heyrt eiginkonu forstjórans i fyrirtækinu, þar sem Irwing vann. Hún sagðist hafa tekið eftir þvi að hann fékk oft bréf á skrif- stofuna, bréf, sem litu út fyrir að vera einkabréf og að utaná- skriftin hefði verið handskrifuð. Henni fannst þetta svolitið grun- samlegt. Við yfirheyrsluna fór Irwing ekkert dult með að hann væri vel kunnugur einni skrifstofustúlk- unni hjá Schwing & Co. Rann- sóknardómarinn lét bóka: ...„Höglund segir að ungfrú Reder hafi orðað það við sig, hvort ekki væri möguleiki á að þau gætu gengiö I hjónaband. Höglund hafði svarað þvi til að hann yrði þá fyrst að tala við kon- una sina. Hann viðurkennir að hafa sýnt ungfrú Reder atlot, kysst hana og faðmað á stefnu- mótum þeirra og hann viður- kennir jafnvel að það hafi hvarflað að honum að skilja við Ullu, konuna sina, og fara aö búa með ungfrú Reder...” A sunnudegi var hringt frá sænsku rannsóknarlögreglunni til rannsóknarlögreglunnar i Wanne Eickel og óskað eftir þvi að Mariane Reder yrði yfirheyrð vegna sambands hennar við Irwing Höglund! A mánudag kom svarið til Södertelje: Ungfrú Reder viðurkenndi að hún hefði átt stefnumót við Irwing Höglund og að vináttusamband heföi tekizt meðþeim. Höglund hefði minnst á'hjónaskilnað en hún hefði ráðið frá þvi. Hann hefði hringt til hennar I siðasta sinn 20. mai og þau hefðu aöeins talað um al- menn tiðindi. Hún heldur þvi fram að milli þeirra hefði aðeins verið vinátta. Við vitum hvern við eigum að góma. Lars Kollander, lögreglufor- ingi, hringdi til Sven Olof Lidholm og spurði hann hvers hann hefði orðið visari um hvarf Ullu Hög- lund. — Ég vil gjarnan segja þér nánar frá þessu, sagði Kollander og sagði honum allt sem hann vissi um hvarfið. Svo bætti hann við: Ef við komumst að þvi að hún hafi verið myrt, þá vitum við hvern skal góma, það er ákveðin persóna. — Það er ágætt, sagði Lidholm læknir. Lidholm læknir hitti svo héraðsákærandann Otto Meijer við rannsókn á öðru mannshvarfi I Nynashamn. Þeir minntust ekkert á hvarf Ullu Höglund, fyrr en Sten Stur. Sandberg, yfir- maður morðdeildar rikislögregl- unnar, kom frá Södertelje og sagði að ekkert hefði ennþá spurzt til Ullu Höglund. — En ef við finnum hana, þá vitum við hvert við eigum að snúa okkur. Maöurinn hennar hefir hagað sér nokkuð undarlega. Klukkan hálftólf, aðfaranótt 4. júni, hringdi Arne Törnkvist, lög- regluforingi, heim til Lidholms réttarlæknis og sagöi aö þeir hefðu fundiö konulik undir greni- tré. Þeir héldu að það væri Ulla Höglund. Rétt fyrir klukkan átta um morguninn 5. júni, hófust rannsóknirnar á hæðinni við Hall- inge. Hin látna lá á grúfu. Hún var i pilsi, sokkabuxum, kápu, peysu ogskóm. Fötin voru i óreiðu. Um hálsinn var brjósthaldarinn hennar, sem áður hafði verið rif- inn. Þegar likinu var snúið við sást að augun voru opin. Klukkan hálftiu um kvöldið var likskoðun lokið. Dánarorsökin var henging. Morðinginn haföi staðið fyrir aftan frú Höglund og hengt hana i brjósthaldaranum. Þetta morð getur ekki staðizt. — Ég get ekki séð hvernig, i herrans nafni, hvernig nokkrum eiginmanni gæti dottið I hug að haga sér þannig, það getur hrein- lega ekki staðizt, sagði Lidholm læknir, eftir likskoðunina. Litlu siðar hringdi Törnkvist lögreglu- foringi og Lidholm læknir skildi eftir plöggin frá likskoðuninni og gat þess um leið að þetta væri I hæsta máta undarlegt. Aður en réttarlæknirinn fór heim til sln, hringdi hann til Arvidsons lögfræðings, sem hafði heimsótt skjólstæðing sinn i fangaklefann, hann sagði þannig frá: —■ Höglund lá i kuðung á bekknum, með samanbrotinn jakkann sinn undir höfðinu. Hann var órakaður og augu hans voru grátbólgin. Hann reis upp og við heilsuðumst. Ég sagði honum að ég væri skipaöur verjandi hans. Það birti aðeins yfir ásjónu hans, en áhugaleysi hans var greini- legt. — Ef þú hefir myrt konuna þina, geturðu aldrei lifað lifinu, með það á samvizkunni, sagöi ég. — Þaö er betra fyrir þig aö játa strax. Hann hristi höfuðið. — Ég gerði það ekki, sagði hann. Rannsóknin hélt áfram. Læknirinn hélt þvi fram aö Hög- lund væri saklaus, sagðist leggja embættisheiöursinnaðveði. Otto Meijer var lika hikandi. En það sem var þyngst á meta- skálunum voru bréfin til Þýzka- lands og framar öðru, bréfiö, sem Höglund haföi skrifað til Mariane Reder þann 21. mai: Astin min! Þakka þér innilega fyrir bréfið og lika að þú skyldir vera heima, þegar ég hringdi til þin. Það litur út fyrir að eitthvað alvarlegt hafi komiö fyrir konuna mina. Hún ætlaöi að sækja mig að þýzkutim- anum loknum, klukkan hálftiu I gærkvöldi. En hún kom ekki og hefir ekki haft samband við neinn, sem ég þekki. Hún var mjög ánægð, þegar hún skildi við mig, það var auðséð. Lögreglan hringdi til min klukkan 7,30 i kvöld og tilkynnti mér að þeir hefðu fundið bilinn i miðbænum (Södertelje). Ég vona innilega að ekkert hafi komið fyrir hana. Ef þú skrifar, þá ættir þú að senda bréfið til Byvagen 11. Hringdu ekki, ég get ekki talað I símann. Mér liöur mjög illa, en láttu baö ekki á þig fá. Þú verður að trúa mér, ég elska þig innilega, en ég verð aö ná t»li af konunni minni, áöur en ég geri nokkuð i málinu. Ég get ekki hringt til þin, eins og ég haföi lofað. Mér þykir þaö leiðinlegt, en ég mun svara bréfum þinum. Þinn Irwing. ...ég elska þig og þarnast þin. Um þetta bréf sagöi Irwing Höglund: — Ég skrifaði Mariönu Reder og sagði henni að Ulla væri horfin. Égbaðumsvar. Astæöan fyrir þvl var sú aö ég ætlaði aö segja Ullu frá sambandi okkar Mariönu. Ég skrifaöi henni aftur um kvöldið 4. júni, kvöldið sem ég var tekinn fastur. Bréfiö var svo- hljóðandi: —Við verðum að biða eftir fréttum af Ullu. Ég vona að þú skiljir þaö.... Otto Meijer heldur þvi fram að Irwing Höglund hafi ráðið konu sina af dögum að yfirlögðu ráði, en Irwing Höglund segir: — Þótt þaö verði þaö siöasta, sem ég segi í þessu lifi, þá held ég þvi fram að ég er saklaus. ÞEGAR ÍSLEND- INGAR NEITUÐU ... Framhald af bls. 30. Næst glimdi Sigurjón morguninn 10. júli við Finnann Oscar Wiklund, er taiinn var beztur Finnanna, enda rumur mikill og kraftalega vaxinn. Glöggt var, að Wiklund var staðráðinn i að mæta ekki sömu örlögum og landar hans tveir. Greip hann hvað eftir annað hægri handlegg Sigurjóns og lá á honum af öllum kröftum, svo að Sigurjón næði ekki höfuðtakinu góða, sem skaut,öllum glimu- mönnunum skelk i bringu. Jafnframt beitti hann óleyfilegum og stórhættulegum brögðum, svo að dómarinn varð tvivegis að skerast i leikinn. Liðu svo tvær fyrstu glimuloturnar (ein klukkustund), að hvorugur lá, og mátti ekki á milli sjá, hvor leiknari var. Voru þeir þá orðnir alldasaðir af átökunum. 1 byrjun þriðju lotu tókst Wiklund að þræla Sigurjóni á hnénná taki ummitti honum. Þannig lá hann ofan á Sigurjóni mestalla lotuna. En þar kom, að Sigurjóni leiddist þófið og varpaði Wiklund fram af sér, en fyrir bragðið nam vinstri öxl hans framanverð við dýnuna, og var það nóg til þess. að Finnanum var dæmdur sigur. , Nú var tekið að fækka i flokki Sigurjóns, og varð hann þvi að glíma að nýju síðdegis sama dag, þótt lerkaður væri eftir svipt- ingarnar um morguninn, en Wiklund hafði tekiðívo nærri sér, að hann var óvigur og varð að hætta frekari keppni. Mót- stöðumaður Sigurjóns var enn sem fyrr Finni, August Rajala að nafni. Stóð viðureign þeirra skamma hrið, þvi að Sigurjón lagði Finnann næstum á svip- stundu. Eftir fjórðu umferð voru niu glimumenn eftir að Sigurjóni meðtöldum, sem ekki höfðu hlotið nema eina byltu eða enga, og skyldu þeir nú glima, unz þrir stæðu uppi. Keppinautur Sigurjóns að þessu sinni var Ung- verjinn Bela Varga, gætinn en brögðóttur gllmumaður. Hann hafði beðið einn ósigur eins og Sigurjón og fyrir sama manni, Wiklund, en eftir miklu skemmri tima. Voru Islendingar þvi vongóðir um, að Sigurjón mundi vinna hann. Enaðlikindum hefur Sigurjón verið full öruggur um sigur. Hann tefldi á tæpasta vaðið, sótti brögðin langt og uggði 40 VIKAN 35. TBL. /

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.