Vikan - 31.08.1972, Síða 48
NÝTT FRÁ RAFHA
NÝ ELDAVÉL GERÐ HE6624. 4 hellur, þar af 1 með stiglausri
stillingu og 2 hraðsuðuhellur, stór ofn, 56 Ktra, yfir- og undirhiti
fyrir steikingu og bökun, Ijós ( ofni. Fæst með eða án glóðar-
steikar elements (grill). — Heimkeyrsla og Rafha ébyrgð.
VIÐ ÖÐINSTORG - SlMI 10322
— Halló, get ég fengið að tala við yogakennarann?
dóttur sína fyrir konu. Þá
komu vöflur á Josip Broz. Sá
var sem sé siður Kírgisastúlkna
að þegar þær höfðu borið
mönnum að borða, settust þær
í fang þeim, hnepptu frá þeim
skinnjökkunum og leituðu
þeim lúsa. Lýsnar bitu þær
sundur og þegar varir þeirra
voru orðnar rakar og rauðar
af lúsablóði, brostu þær tæl-
andi til karlmannanna. Hefur
Tito sagt svo frá síðar að sjald-
an hafi hann þótt komast í
meiri raun. Og af mágsemdum
við Jesaja varð ekki.
Jafnskjótt og Rauði herinn
hafði tekið Omsk aftur, hrað-
aði Broz sér aftur til borgar-
innar. Hann fór strax til húss
Pelageu litlu. En það stóð
tómt.
Nokkrum dögum síðar, þegar
Broz var á gangi um stríðs-
eydda borgina, mætti hann
stúlkunni milli sundurskotinna
húsa. Þar varð fagnaðarfund-
ur. í janúar 1920 gengu þau í
hjónaband í rússnesk-orþódoxu
kirkjunni í Bogoljubojskó hjá
Omsk.
Sumarið 1920 gat stríðsfang-
inn Josip Broz lagt af stað
heimleiðis með brúði sína.
Hann varð að fara yfir landa-
mærin frá Rússlandi til Eist-
lands, til Narva. Þau hjónin
voru sett í sóttkví í borgar-
kastalanum þar. Ekki var það
mjög þægilegt fyrir þau, þar
eð Pelagea var barnshafandi.
Þar í kastalanum kynntust þau
merkilegum manni: tékkneska
rithöfundinum Jaroslav Hasek,
höfundi góða dútans Svæk. En
hann var þögull og dapur og-
talaði við engan.
Það var ekki fyrr en 1 ágúst,
að þau hjón fengu að halda
ferðinni áfram. Þau fóru með
gufuskipi til Stettin í Þýzka-
landi, síðan með járnbrautar-
lest lengra suður á bóginn. En
nú tilheyrði heimabyggð Jos-
ipjs Broz ekki lengur Austur-
ríki-Ungverjalandi, heldur kon-
ungsríki Serba, Króata og Sló-
vena, sem skömmu síðar var
skírt Júgóslavía.
Það var komið fram í sept-
ember, þegar þau komu til
Kumrovec. I hvíta húsinu. sem
Josip hafði fæðzt í og alizt upp,
bjó nú af allri þessari stóru
fjölskyldu aðeins einn bróðir.
Hann ætlaði undireins að byrja
á því að segja Josip, hvað gerzt
hefði í sex ára fjarveru hans.
En í þeirri svipan tók Pelagea
iéttasóttina, og fáeinum klukku-
stundum eftir endurkomuna til
foreldrahúsanna hafði Josip
Broz fæðzt fyrsti sonurinn. ú
— Það þýðir ekkert að öskra, þetta
er einkabaðströnd!
— Bíddu aðeins, nú er það fyrst
að verða spennandi!
48 VIKAN 35. TBL.