Vikan - 08.03.1973, Blaðsíða 6
SÍÐAN SÍÐAST
ORÐLJÖTA PRINSESSAN
Bretar hafa ekki minni áhuga á því,
sem konungsfjölskyldan þeirra tekur
sér fyrir hendur, en fréttum frá
Downing Street 10. Þeim verður tíð-
rætt um hinar fjölmörgu utanlands-
reisur Filippusar drottningarmanns, en
sé hann heima, stráir hann um sig
vanhugsuðum athugasemdum. Og sé
ekkert fréttnæmt að gerast í Bucking-
ham-höll, má ganga að því vísu, að
eitthvað spennandi sé á seyði í Kens-
ingtonhöll. Litla systir, Margrét, hef-
ur ekki beint lifað friðsælu og ham-
ingjusömu fjölskyldulífi með Tony
sínum.
Karl krónprins varð orsök fyrstu
gráu háranna á höfði drottningar,
þegar hann fór að láta sjá sig í fylgd
með hverri ljóskunni á fætur annarri.
Og ljósmyndararnir voru óþreytandi
að hafa upp á þeim stöðum, sem prins-
inn notaði til leynifunda með vinkon-
um sínum, móður hans til mikillar
skapraunar.
Lengi vel var Anna prinsessa yndi
og eftirlæti pressunnar og þá ekki síð-
ur, þegar hún fyrir nokkrum árum
breyttist úr ljóta andarunganum í svan.
En nú. er svanurinn orðinn einum of
villtur.
Hún er eigingjörn, ókurteisleg og
stráksleg, segja blöðin. Hún hleypir
jafn léttilega yfir hindranir siðvenj-
anna eins og hindranirnar á hlaupa-
brautinni. Hún hugsar bara um hesta
— og hestamenn!
En verst finnst þeim að þola henn-
ar dónalega talsmáta. Þetta er ekki
lengur prenthæft, segja uppnæmir
blaðamenn. Og svo vitna þeir í hana!
— Til fjandans með ykkur, fnæsti
Anna nýlega á ljósmyndarana, sem
vildu festa hana á filmu við opinbert
tækifæri.
— Reynið að ljúka ykkur einhvern
tíma af, sauðirnir ykkar, hreytti hún
í þá við annað tækifæri. En allt þetta
mætti þó afbera ef hún gæti einhvern
tíma orðið skotin í réttum karlmanni.
Mamma virðist nú loksins vera að
gefast upp á þessum ósköpum. A. m.
k. var Mark Philips, lautinant og hesta-
maður, í helgarheimsókn nýlega hjá
konungsfjölskyldunni, þó ættlaus sé og
ar.auður af fé eða titlum.
Og á myndinni sjáum við, að þrjózk-
an í Önnu má sín ekki alltaf mikils
hjá þrjózkunni í hestinum hennar.
Grace furstafrú í Monaco varð 43 ára
fyrir skömmu, og auðvitað var haldið
upp á afmælið með pomp og pragt í
fjölskyldunni. Elzta dóttirin, hin fagra
Caroline, gat þVí miður ekki verið við-
stödd, en talaði lengi við móður sína
í síma. Caroline er nú í klausturskóla
St. Mary's í Ascot í Englandi. Hún
kom heim í jólafrí, og illar tungur
segja, að hún hafi naumast risið upp
frá matarborðinu allan tímann, sem
hún var heima. Myndin bendir til, að
eitthvað sé hæft í því.
ÖNNUR TILRAUN
Þessi hamingjusömu hjón eru mikið
í fréttunum um þessar mundir. Menn
fylgjast spenntir með, hvernig þeirra
síðari tilraun í hjónabandinu gangi.
Þau slitu samvistum árið 1962 eftir
nokkurra ára hjónaband, en fundu
hyort annað á ný eftir nokkurt hlé og
giftpst aftur á síðastliðnu sumri. Þetta
eru þau Natalie Wood og Robert
Wagner, bæði frægar kvikmynda-
stjörnur, og hér sjáum við Natalie með
tveggja ára dóttur sína, Natösju, og
kvikmyndaframleiðandans Richards
Gregson, sem hún var gift inn á milli
hjónabanda sinna með Robert. —- Þær
mæðgur heimsóttu Robert, þar sem
hann lék í kvikmynd í þýzkalandi.