Vikan

Tölublað

Vikan - 08.03.1973, Blaðsíða 27

Vikan - 08.03.1973, Blaðsíða 27
Kalda borftið var glæsilcgt og bar kennara og nemendum gott vitni, bæði að sjá og reyna. l>að ætti aðgeta orðið spennandi að heimsækja þau Guðbjörgu og Eyjólf Pétur i lramtiðinni. norðan munu með slnu námi hafa verið að búa sig undir störf á veitingahúsum eða hugsanlega stytta námstima við Hótel- og veitingaskólann. En við fréttum nýlega af fyrsta herranum i Hús- mæröaskóla Reykjavikur, sem tók þátt i matreiðslunámskeiði i þeim tilgangi einum að verða færari um að annast matseldina á eigin heimili, ef þörf kreföi. Við biðum ekki boðanná, en brugðum okkur á vettvang. Eyjólfur Pétur Hafstein heitir þessi ungi maður, og hann var að ljúka þátttöku i 5 vikna kvöld- námskeiði viö góðan orðstir. Og ekki nóg meö það, heldur var von á öðrum karlmanni á næsta námskeið. Friða Asbjörnsdóttir, matreiðslukennari, er ánægð með þessa þróun mála. — Þessi fyrsti herra okkar reyndist mjög góður nemandi, og ég er ánægð með að eiga von á fleiri karlmönnum. Það er einmitt ágætt að hafa þetta blandað, karlmennirnir eru svo sterkir i höndunum, og þeir eru mjög nákvæmir, fara eftir upp- skriftum og fyrirmælum út i yztu æsar, sagði Friða. Það var miðvikudagskvöld, næstsiðasta kvöldið á nám- skeiöinu og i eldhúsinu gat að lita hlaðið borð af dýrindis réttum, sem nemendurnir höfðu veriö að útbúa á tveimur kvöldum, og verður ekki annaö sagt, en boröið hafi borið kennara og nemendum gott vitni, ekki bara að sjá, heldur einnig að reyna. Þarna var boðið upp á fisk i hlaupi, humar og rækjur i tómat- hring, frönsk egg, hangikjöt, steik, kjúklingalæri, kótilettur, grisasneiðar, Waldorfsalat, hirðdessert og — nei, þaö er bezt að hafa þessa upptalningu ekki lengri, einhvern gæti fariö að muna óþægilega i góögætið. Meöan við gæddum okkur á krásunum, spjölluöum viö við Eyjólf Pétur og stúlkurnar þrjár, sem hann vann með á nám- skeiöinu. Þær heita Sigriður Olöf Ingvarsdóttir, Hallbjörg Thorarensen og Guöbjörg Armannsdóttir, en sú siðast- nefnda er reyndar unnusta Eyjólfs Péturs, og þau hafa haldiö heimili um eins árs skeið. — Hvernig datt þér I hug að fara á matreiðslunámskeið, Eyjólfur? — Ég hef alltaf haft svolitið gaman af svona stússi, og mér datt i hug, að það væri gott að kunna eitthvað fyrir sér, ef ég þyrfti af einhverjum ástæðum að sjá um matseld á okkar heimili. Karlmenn eru alltaf i vandræðum með hlutina, þegar konan verður veik eða þarf að fara að heiman, sem alltaf getur komið fyrir. — Eiginlega er þetta mér að kenna, segir Guðbjörg. Mig langaði á þetta námskeið, eftir að systir min hafði verið á einu sliku, og mér fannst upplagt að drifa kærastann með. Þegar ég hringdi og sótti um fyrir mig, spurði ég skólastjórann, hvort karlmenn væru teknir á námskeiðið, og hún sagði, að þaö hefði reyndar aldrei veriö gert, en kannske væri gaman að prófa það. Og þar með , var það ráðið. — Og hvernig hefur þetta gengið? Varð kvenfólkiö ekkert furöulegt á svipinn, þegar það sá karlmann i hópnum? — Við höfum tekið þetta eins og sjálfsagðan hlut frá byrjun, skýtur Sigriður Ólöf inn i. Við hefðum vist gjarna sjálfar viljað hafa makana með. — Þær voru ekkert skrýtnar á svipinn, segir Eyjólfur Pétur, og samvinnan hefur verið eðlileg og frjálsleg. Við erum 16 á nám- skeiðinu og skiptumst i fjóra hópa, númer eins og kallað er, og númerin skiptast á um verkefni- Eitt kvöldið sjáum við um súpuna, næsta kvöld er það aöal- rétturinn, þá eftirrétturinn, baksturinn o.s.frv. Svo borðum við þennan góða mat og göngum frá eftir okkur. — Hvað fellur þér svo bezt? — Mér finnst eiginlega allt jafn skemmtilegt. Liklega hef ég þó mest gaman af að fást við finan matartilbúning. En ég verð að játa,aðégerlitiðfyrirað þrifa og ganga frá. — Teljiö þið svona námskeiö gefa góða undirstöðu i þessum störfum? — Mér finnst það, segir Guðbjörg. Og það er sérstaklega ódýrt. Þetta 5 vikna námskeið kostar 3 þúsund krónur, ög við erum hér fjögur kvöld i viku, 2-3 tima I hvert sinn. Við lærum margt gagnlegt, t.d. um sam- setningu fæðunnar og geymslu og frystingu matvæla og svo lærum við að matreiða alls konar dýra og fina rétti, hamborgarhryggi, kjúklinga og mikið af grilluðum mat. Eitthvað kostar nú allt þetta fina hráefni. — Já, þetta var ódýrt fæði fyrir okkur Guðbjörgu, segir Eyjólfur Pétur. Þá daga, sem námskeiðið var, lét ég mér oft nægja könnu af kakói i hádeginu, það dugði alveg, þegar maður fékk svona finan mat á kvöldin. — Þab er ansi fitandi að vera á svona námskeiði, skýtur ein daman inn i, en við segjum ekki, hver það var. — Þekkirðu herrann, sem verður á næsta námskeiði? — Nei,_ég ber enga ábyrgð á þvi uppátæki. Ég óska honum bara góðs gengis. Annars held ég, að það væri betra, ef tveir karlmenn væru saman á námskeiði, þeir gætu þá svona stutt hvor annan. — Eruð þið annars i skóla eða starfi? — Guðbjörg afgreiðir i búð, en ég er i Kennaraskólanum. — Og ætlarðu að kenna i framtiðinni? — Ekki er ég nú viss um það. Ég er búinn að taka almennt kennarapróf, en les núna til stúdentsprófs. Ég býst við að fara i Háskólann. — Og þá getur Guðbjörg unnið fyrir ykkur, meðan þú stúdérar og býrð til matinn. — Við skulum segja það. En ég er hræddur um, að hún fái ekki svona finan mat á hverjum degi, segir Eyjólfur Pétur og gefur kalda borðinu hornauga, þar sem varla sést högg á vatni, þótt allir hafi tekið vel til sin. En nú kemur Friöa kennari og spyr, hvort allir séu búnir að seðja sig, þvi timi sé til kominn að ganga frá og þvo upp. Eyjólfur Pétur setur upp mæöusvip og hvislar að unnustu sinni: — Æ, vilt þú ekki þvo upp fyrir mig? 10. TBL. VIKAN 27

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.