Vikan

Tölublað

Vikan - 08.03.1973, Blaðsíða 10

Vikan - 08.03.1973, Blaðsíða 10
GREGORY PEGK frá sér tennisspaða upp við vegg. Þeldökk stúlka vísaði mér inn í bókaherbergið. Oscars- stytta stóð þar á hillu hjá skinnbundnum verkum Thom- asar Hardy. Geysistór og þykk uppsláttarbók lá opin á púlti. Parketgólfið var gljáfægt og þögnin var næstum áþreifan- leg. Gregory Peck er mjög hátt skrifaður borgari í Hollywood og gengur þar undir nafninu „The Senator". En hann er sannarlega ekki hátíðlegur í framkomu. Konan hans er fimmtán árum yngri og af blóðheitu fólki komin (faðir hennar var frá Korsiku og móðirin rússnesk). Klædd er hún buxnadragt úr silki og með stóra eyrnahringi. Hún virtist taugaóstyrk og ekki nærri því eins róleg eins og hún var síð- ar, þegar ég hitti þau hjón í Suður-Frakklandi. Mér fannst skrítið hve erfitt var að fá hana til að svara spurningum, þar sem hún var sjálf blaða- maður. Peck spurði mig hvort ég vildi heldur te eða eitthvað sterkara. Þar sem klukkan var rétt um fimm, kaus ég teið, enda var það örugglega tilbú- ið fvrirfram, því að þjónustu- stúlkan ók rétt strax inn te- vaeni. með samlokum og alls konar kökum. Anthonv Peck kom inn í her- hergíð og spurði móður sína hvort hún mvndi vilja aka vini hans heim til sín. — Anthony er ennþá í skóla, hann ekur ekki bíl siálfur, sagði móðir hans. Nokkru síðar, begar ég hafði eert kökunum góð skil og Peck hafði drukkið marga bolla af tei, sagði hann að rétt væri að fá sér eitthvað svolítið sterk- ara að drekka og hann eekk að bar, sem var byggður inn í einn. vegginn. — .F.ttum við ekki að at- huga hvort þau hin vilia ekki vera með okkur? spurði hann konu sína, og með því að tala um þau hin, átti hann við börn þeirra hjóna. Anthony er mjög líkur föður sínum, sérstaklega nefsvipurinn, en Cecilia minnti mig helzt á eldri dóttur fursta- hjónanna í Monaco. Gregory Peck á svo þrjá uppkomna syni af fyrra hjónabandi. Stoltur faðir. Einn sona hans var að hefja starf hjá CBS sjónvarpsstöð- inni í Los Angeles, annar var um það bil að koma heim frá starfi hjá friðarsveitunum í Senegal. Þriðji sonurinn er nú kvæntur maður og hefur ný- lokið námi í kvikmyndaleik. —- Hafa börnin einhvern áhuga á því að gerast kvik- myndaleikarar? spurði ég föð- ur þeirra, áður en þau komu inn. Peck varð hugsi. — Sg veit bað ekki, sagði hann, — nema bá að bað verði þau yngri, en bau hafa ekki látið neitt slíkt í liós. Eftir því sem mér virtist báru þessir unglingar miög mikla virðingu fyrir föður sín- um, miklu meiri en mér finnst börn geri nú á tímum. Hann var líka greinilega stoltur af þeim og hann kynnti þau ekki lauslega með fornafni ein- göngu, heldur með fullu nafni. Þetta er ekki beinlínis það sem maður býst við af nútímafólki, en b°tta átti vel heima þarna. Eftir að við höfðum öll fenff- ið í glösin, börnin feneu auð- vitað aðeins kók. sat Gregorv Peck hbóður og hlustaði á son sinn. en begar talið barst að víotnam, tók hann til máls. Oreuorv Peck er miög mikill pnHctseðingur striðsins og það varð til þess að hann gerði síð- i'K+u siónvarnskvikmvnd sína, ..The Trial of the CatonsviHe Nine“. sem sýnd ’ærður bráð- ínrr-i ; brezka siónvaroinu. Það var auðséð á Cecilia að henni leiddust umræður um stríð og hún gerði föður sinum lióst með grettum að kominn væri tími til að borða. Faðir hennar brosti, hélt áfram að tala, en aðeins smástund. Ekki upnreisnarmenn ennþá. Síðar, þegar við hittumst aft- ur í Suður-Frakklandi á heim- ili Peck hjónanna þar, til að taka mvndir af fjölskvldunni, barst talið aftur að Vietnam. Þá tók ég eftir því að frúin gekk út og þegar ég hitti hana siðar á veröndinni, hafði hún sett segulband af stað og val- ið létta tónlist. Það getur því verið að fjölskyldunni finnist Gregory Peck nokkuð málglað- ur, þegar þetta mál ber á góma. En Gregory Peck virðist vera sanngjarn og skilningsríkur faðir. Gregory Peck og Veronique, seinni kona hans. Yfirvaraskeggið er ekta, en hann er reyndar búinn að raka það af sér. — Ég heimta ekki af þeim að þau skari fram úr öðrum og ég er ekki fær um að gefa öðrum ráðleggingar um barna- uppeldi . . . En samt hefur hann nokkr- ar ákveðnar reglur. „Borðið sem oftast saman og um fram annað, haldið uppi samræð- um“, er ein af reglum hans. — Eru börnin uppreisnar- gjörn? —■ Ekki hingað til! En ég reyni að brynja mig fyrir því með því að segja þeim að ég sé ekki alvís, en voni samt að þau taki nokkurt tillit til þess sem mér finnst og hvers vegna ég sjái ástæðu til að banna þetta og hitt. Hann heldur því fram, að nauðsynlegt sé að ræða öll mál, það komi mjög í veg fyrir mis- skilning. — 0g held að óhætt sé að segja . . . það er eins og hann hiki við, en lætur það samt fjúka, . . . að við séum mjög hamingjusöm fjölskylda. Vinna hans gerir það að verkum að hann er oft fjar- verandi frá heimilinu, en hann reynir alltaf að hafa samband við börnin og nota vel þær stundir, sem hann getur verið samvistum við þau. — Við hjónin finnum það oft á kvöldin, að börnin hafa löngun til að ræða við okkur. Á daginn eru þau upptekin af skólanum og félögum sínum. Við förum því oft upp til þeirra, þegar þau eru háttuð og ró komin á. Stundum brydd- um við þá upp á einhverju, sem okkur finnst að þurfi at- hugunar við, ef við finnum að þau hafi þörf fyrir það og séu í því skapi að hentugt sé að ræða málin. — Finnst börnunum hann strangur faðir? — Það efast ég ekki um, seg- ir Gregory Peck brosandi, — og mér er líka ljóst að ég get ekki sett mig inn í hugsunar- hátt fjórtán til fimmtán ára Framhald á bls. 47. 10 VIKAN 10. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.