Vikan

Tölublað

Vikan - 08.03.1973, Blaðsíða 47

Vikan - 08.03.1973, Blaðsíða 47
GREGORY PECK Framhald af bls. 10. unglinga. Þau verða líka að eiga sín einkamál. Draumaliúsið. — Hefur hann einhverja óskhyggju vegna barna sinna? — Nei, raunar ekki, þau verða sjálf að hafna og velja. Að sjálfsögðu óskum við for- eldrarnir að þau geti farið að heiman á traustum fótum og hafi möguleika á því að njóta gæða lífsins og líka að þau séu fær um að taka mótlæti, sem að höndum getur borið, með manndómi. Við óskum líka að þau finni eitthvað við sitt hæfi, eitthvað sem veitir þeim ham- ingju. í Suðu”-Frakklandi, þar sem f jölskyldan er laus við skyldu- störf og skóla, geta þau notið samvistanna. Ladoma, ,,Doma“, er rúss- neska og þýðir hús, er einbýl- ishús' úr brenndum leir í Cap Ferrat, mitt á milli Nissa og Monte Carlo. Það er við sömu pötu og hús Davids Nivén og rétt hjá húsinu, sem Somerset Maugham áttL —• Okkur hjónin dreymdi um að eignast hús á þessum stað, og hér er það, sagði Gre- gorv Peck glaðlega. Hann fór með okkur, mig og ljósmynd- arann, um lóðina, sýndi okkur f’arðinn og þær breytingar, sem gerðar hafa verið á eigninni, síðan hann keypti hana árið 1965. — Við grófum okkur í gegn- um klettinn þarna, til að búa til sundlaug, brutum raufir í háan steinvegg til að planta trjám og breikkuðum þrepin frá veröndinni. Við Veronique höfum mikið yndi af garðin- um. Þegar við komum hingað núna, kom ég með maístegund, nóg í þrjú beð, sem er að verða þroskuð. Þau hjónin hafa auðvitað garðyrkjumann, reyndar þjón- ustufólk Mka, sem býr þarna allt árið, enda þarf mikið til að halda þriggja hæða húsi í fullkomnu standi. Sjálfur er Gregory Peck sérstaklega hrif- inn af flísum, sem þekja öll gólfin í anddyrinu og stiga- ganginum. — Þessar flísar eru frá göml- um búgarði í Provence og þeg- ar þeim var steypt af vagni hérna fyrir framan húsið, voru þær allar þaktar gamalli stein- steypu og kúamykju, svo stein- smiðirnir neituðu að snerta þennan óþverra. Það var því ekki um annað að velja fyrir mig, en að fá mér nóg af stál- ull og ganga í það sjálfur að hreinsa flísarnar og þetta eru nokkuð mörg hundruð stykki Þótt þau hjón eéu svona hrifin af Ladoma, þá sjá þau sér ekki fært að vera þar nema nokkrar vikur á ári. — líg hef starfi að sinna og börnin verða að sækja skóla, en við viljum helzt hafa þau með okkur, þegar við dveljum hér. Við er- um að vona að við getum ver- ið nokkru lengur en venjulega þetta árið, segir hann brosandi. Hvernig er það 'í raun og veru að eiga hús á Rivierunni? — Það er undir mörgu kom- ið. Sumt fólk, sem hér býr, er alveg frá sér, ef það er ekki í hádegisverðar- og kvöldboðum daglega. Sumir halda veizlu fyrir tuttugu og fimm pör, sem hér búa, svo þurfa þessi tuttugu og fimm að borga fyrir sig og halda veizlu, þá er mán- uðurinn liðinn . . . Gregory Peck hlær og það er greinilegt að hann kann ekki við þetta fyrirkomulag. — Við viljum helzt vera frjáls, bjóða stöku sinnum góð- um kunningjum að líta inn og heimsækja þá, þegar vel stend- ur á. En við viljum vera frjáls, leika kannski tennis við börn- in eða skák. Milli klukkan sex og níu þykir okkur bezt að ráfa um garðinn og njóta veð- urblíðunnar. Gregory Peck er nú orðinn fimmtíu og sex ára, en hann lítur ekki út fyrir það. Hann ber það með sér að hann er hamingjusamur maður og margur myndi öfunda hann af velgengninni. Gregory Peck hefur sjálfsagt sína galla, eins og aðrir dauð- legir menn, en það er ekki auðvelt að koma auga á þá. -Eg er ósköp venjulegur maður, segir hann, —• en ég er nokkuð lengi að kynnast fólki. Ég veit ekki hvort þér kærið yður um að vita að þegar ég var ungur, hafði ég mest yndi af kappróðrum, en kappróðrar eru kallaðir sport þeirra inn- hverfu . . . ☆ þvi ekki að reyna.... SLENDERTONE Slendertone þjálfar slöppu vöðvana með rafbylgjum. Slendertone grennir. Slendertone fegrar húðina. Reynið hið frábæra. grenningar- og vöðvauppbyggingatæki. 6 eða 10 skipta meðferðir. Að sjálfsögðu eru okkar rómuðu nudd- og gufutímar í fullum gangi, jafnt fyrir konur sem karla. Allar upplýsingar i síma 23131. NUDD- OG GUFUBAÐSTOFAN HÓTEL SÖGU. Drottinn minn, ég veit ekki hvað hefur komið fyrir prófessor- inn, hann hefur líklega ekki þolað gasið! 10. TBL. VIKAN 47

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.