Vikan - 08.03.1973, Page 18
Klefaveggirnir voru naktir og
hvitþvegnir. Inn i þetta litla
herbergi kom nokkur birta i
gegnum mjóan glugga, sem var
meb járnrimlum og svo hátt uppi,
ab erfitt var aö ná til hans. Vit-
skerti maöurinn sat i strástól og
einblindi á okkur starandi og
vofulegum augum. Hann var
magur og hrukkóttur, og hár hans
var næstum hvitt. Hann kom
manni ósjálfrátt til aö ætla, að
hann hefði hærzt þannig á aöeins
nokkrum mánuöum. Föt hans
virtust allt of við fyrir visnaða
útlimi hans, innfallna bringu og
mergsoginn likama. Manni
fannst ósjálfrátt, aö hann heföi
veriö mergsoginn af hugsunum
sinum,- af hugsunum, likt og
ávöxtur er mergsoginn af ormi.
Þessi hugsun var smátt og smátt
aö éta upp likama hans. Hún, hin
ósýnilega, hin óáþreifanlega hug-
mynd, sem var laus við fjötra
efnisins og þannig ekki hægt aö ná
tangarhaldi á, nagaöi hold hans,
saug sig I blóð hans, og lagði lif
hanssmám saman i algera auön.
En hve þaö var dularfullt, að
þessi maöur skyldi vera drepinn
af hugsun! Maöur óttaöist þennan
vitfirring, en aumkaöi hann
einnig. Hvaða einkennilegir
draumar, hryllilegir og ban-
vænir, gátu svifið aö baki enni
hans og myndað slikar djúpar og
sibreytilegar hrukkur i þvi?
Læknirinn sagöi viö mig:
„Hann fær hræöileg reiöiköst.
Vitfirring hans er sú sér-
kennilegasta, sem ég hef nokkurn
tima vitað um. Eöli hennar er
þrungiö ást og þrá. Hann er
nokkurs konar andadýrkandi.
Hann hefur skrifaö dagbók, sem
sýnir mjög ljóslega sálsýki hans.
Vitfirring hans er sýnileg, ef svo
mætti segja. Ef þér hafið áhuga á
þessu, megið þér lita á þetta
Plagg.”
Ég gekk á eftir lækninum inn i
skrifstofu hans, og hann rétti mér
dagbók þessa ógæfusama manns.
„Lesiö hana,” sagði hann, „og
segiö mér siðan álit yöar á
þessu.”
Þetta var efni hinnar litlu
bókar:
„Allt til er ég var þrjátiu og
tveggja ára, liföi ég kyrrlátu, ást-
snauöu lifi. Lifiö virtist mér mjög
einfalt, mjög gott og auövelt. Ég
var rikur. Sumir hlutir féllu mér
vel I geð, en mig haföi aldrei
langaö i neitt af neinni ástriðu.
Þaö var gott að lifa. Ég vaknaöi
hamingjusamur á hverjum
morgni til þess að gera þaö, sem
mig langaði sjálfan til þess að
gera. Og ég gekk ánægöur til
hvilu meö rólega von um
hamingjusaman morgundag og
áhyggjulausa framtiö.
Ég haföi átt nokkrar ást-
meyjar, án þess að hjarta mitt
heföi nokkurn tima þjáöst af þrá
eöa sál min særzt ■'holund
ástarinnar eftir sameininguna.
Þaö ei' gott aö lifa þannig. Það er
betra aö elska, en þó hræöilegt.
Samt ættu þeir, sem elska, að
geta fundiö hamingjuna eins og
aörir, ef til vill ekki eins mikla og
mina, þvi aö ástin náöi valdi á
mér á alveg ótrúlegan hátt.
Þar sem ég var rikur, safnaöi
ég fornum húsgögnum og gripum.
Oft hugsaöi ég um hinar óþekktu
hendur, sem höföu snert þessa
hluti, um þau augu, sem höföu
dáðstaðþeim, og þau hjörtu, sem
höföu elskað þá, þvi aö slika hluti
elskar maöur sannarlega! Mér
dvaldist stundum timunum
saman viö aö viröa fyrir mér litiö
kvenúr frá siöustu öld, af þeirri
tegund, sem borin var i keöju um
hálsinn. Þaö var svo fingert, og
glerungur þess og hiö upphleypta
guliskraut þess svo fallegt. Og
það gekk ennþá, alveg eins og dag
þann, sem einhver kona hafði
keypt þaö I sjöunda himni fyrir að
eignast þennan dýrgrip. Hinn
vélræni hjartsláttur þess hafði
ekki hætt. Þaö haföi ekki hætt aö
lifa sinu vélræna lifi, en haföi
alltaf haldið áfram sinu
reglubundna tifi, þó aö heil öld
heföi þokazt fram hjá. Hver haföi
þá fyrst boriö það á brjóstum
sinum, I hlýju.skjóli fatanna,
hjartsláttur úrsins þétt viö
hjartslátt konunnar? Hvaöa hönd
Ast
handan lífsins
Smásaga eftir Guy de Maupassant
Nótt nokkra vaknaði ég skyndilega við
það, að mér fannst ég ekki vera einn i
herbergi minu. En ég var samt einn. Ég
gat ekki sofnað aftur, og eftir að ég hafði
bylt mér andvaka um stund, reis ég upp
og tók fram hið gullna hár til þess að
virða það fyrir mér. Mér fannst það jafn-
vel yndislegra en venjulega og þrungið
enn meira lifi. Gat hin dána snúið aftur?
Hún kom! Ég sá hana, snerti hana, naut
hennar likt og hún var, þegar hún var
lifandi fyir á timum ....
haföi haldið þvi meö sinum hlýju
fingurgómum og siöan þurrkað af
þvi, þar eö farið var aö falla á þaö
af húörakanum? Hvaöa augu
höföu horft á þessa blómskreyttu
skifu, beöiö eftir stundinni, hinni
kærkomnu stund, hinni dýrlegu
stund?
Hve ég þráöi þaö að sjá hana og
þekkja, konuna, sem haföi valið
þennan sjaldgæfa og frábæra
grip! En hún er dáin. Ég er haldin
þrá eftir konum fyrri tima. Ég
elska allar þær, sem hafa elskaö
fyrir löngu. Saga um liönar ástir
fyllir hjarta mitt söknuöi. Ó,
feguröin, brosin, bliöuatlot
æskunnar, vonirnar! Allt þetta
ætti aö vera eilift!
Hve ég hef tárfellt um nætur
vegna kvenna liðinna' alda, svo
fagurra, bliöra og dásamlegra,
sem höföu opnað varir sinar fyrir
kossum og eru nú dánar! Kossinn
18 VIKAN 10. TBL.