Vikan - 08.03.1973, Síða 50
Þau eru örugg og ánægö,
þau eru vel tryggð.
Samvinnutryggingar vilja leggja áherzlu á
aö hafa jafnan á boöstólum hagkvæmar tryggingar fyrir
heimiliö og fjölskylduna.
Sérstaklega viljum vió benda á eftirfarandi tryggin'gar:
Heimilistrygging • Verötryggö liftrygging
Húseigendatrygging • Slysatrygging
Sjúkra- og slysatrygging ^
SAMVIIVNUTRYGGINGAR
SÍMI 38500
niioi iicjiioi i
upplýsingar veitir
Aðalskrifstofan,
Ármúla 3 og umboðs-
mnnn nm lanH n111
— Ég held ég kjósi badminton frekar en borðtennis!
21. marz—
20. apríl
Varla fer hjá því, að
þú verðir dálítið um-
talaður í þessari viku.
Þú skalt ekki setja
slúðrið fyrir þig og
ekki æðrast, þótt eitt-
hvað blási á móti um
sinn. Innan tíðar
hjaðnar þessi rógur
niður.
Bráðlega muntu fá frá
óvæntum aðila upp-
lýsingar, sem koma
þér að miklu gagni.
Þú skalt ekki notfæra
þér þær strax, heldur
spila trompunum út á
réttu andartaki. Það
verður áhrifaríkast.
í þessari viku þarttu
að gæta vel tungu
þinnar, því að hvöss
tilsvör eru aldrei ýkja
vinsæl og fæst orð
hafa minnsta ábyrgð.
Notfærðu þér út í yztu
æsar tækifæri, sem
býðst um helgina.
Krabba-
merkið
22. júní—
23. júlí
Þú ættir að hvíla þig
vel í nokkra daga og
láta ekki á þig fá, þótt
mikilvægar ráðágerðir
sitji á hakanum um
sinn. Að hvíldinni
lokinni geturðu tekið
til óspilltra málanna
af endurnýjuðum
krafti.
Vogar-
merkiS
24. sept,—
23. okt.
Það kemur til orða-
hnippinga í fjölskyldu
þinni af fjarska
ómerkilegu tilefni. Þú
mátt ekki láta undir
höfuð leggjast að
bæta sambúðina og
gera andrúmsloftið á
heimilinu jafn gott og
áður.
Ljóns-
merkið
24. júlí-
24. ágúst
Þú verður að taka þig
rækilega á, ef ekki á
illa að fara. Þú ert
allt of værukær og til-
litslaus við vini og
kunningja. Hafnaðu
tilboði um skjótfeng-
inn gróða án mikillar
vinnu. Honum fylgir
ógæfa.
Meyjar-
merkið
24. ágúst—
23. sept.
1
Þér leiðist mikið um
þessar mundir. En
brátt hverfa þau úr
sögunni og þú fyllist
á ný bjartsýni á lífið
og tilveruna. Og henni
fylgir auðvitað aukin
starfsorka. Bréf frá út-
löndum kemur þér á
óvart.
Dreka-
merkið
24. okt,-
22. nóv.
Vikan verður tíðinda-
lítil, þar til um helg-
ina. Þá fer fyrst eitt-
hvað að gerast. Nokk-
ur vandamál skjóta
upp kollinum, en ein-
mitt þegar þau eru að
komast á hæsta stig,
leysast þau á undur-
samlegan hátt.
Bogmanns-
merkið
23. nóv,—
21. des.
Skyndilega lendir þú í
ævintýrum, sem þú
hélzt, að þú ættir ekki
eftir að lifa. Þú hefur
ástæðu til að vera í
sjöunda himni yfir vel-
gengni þinni, enda út-
lit fyrir, að vegur þinn
eigi enn eftir að
aukast.
Þú ert með talsvert
mikla minnimáttar-
kennd, án þess að
hafa nokkra ástæðu til
þess. Brátt muntu fá
óskir þínar uppfylltar.
Þú átt í vændum ríku-
lega viðurkenningu
fyrfr vel unnin störf.
m
Vatnsbera-
merkið
21. jan,—
19. feb.
Ef þú sýnir iðni og
samvizkusemi er ekki
nokkur vafi á, að þú
nærð verðskulduðum
árangri. Að vísu
muntu ekki hafa af
þessu beinar tekjur,
en sóminn er þér
meira virði en álitleg
f járfúlga.
Fiska-
merkið
20. feb.—
20. marz
Þú þarft að láta til
skarar skríða í mál-
um, sem snerta einka-
líf þitt. Loftið er lævi
blandið, og innan tíð-
ar gerist dálltið, sem
kemur róti á hug þinn.
Þú framkvæmir hug-
mynd, sem þú hefur
lengi haft í huga.
50 VIKAN 10. TBL.