Vikan

Útgáva

Vikan - 22.03.1973, Síða 18

Vikan - 22.03.1973, Síða 18
Ég kunni að biðja fyrir framliðnum. Það hafði ég gert á hverju kvöldi, frá þvi að ég fyrst fór að biðja kvöldbænir. En bænimar minar höfðu aldrei verið persónulegar i nokkrum skilningi. Ég hafði ekki misst neinn, sem mér var nákunnugur Á KYRRU\ Frásögn eftir Edwin OConnor Siðari hluti Allt i einu rak faðir minn upp hljóð: „Aaaggghh.” Þetta var ekki hróp, ekki kall til móður minnar, ekkert slikt, aöeins hátt skelfilegt óp. Og þvi næst snerist hann á hæli án þess aö lita til min eöa segja mér aö fylgjast meö sér, sem ég þó gerði, og hljóp niöur aö litla bátaskýlinu, sem var skammt þarna frá. Þar var lftill róörarbátur og blámálaöur barkarbátur. Hvorugur haföi veriö notaöur árum saman. Faöir minn dró bátinn niöur aö vatninu og setti hann á flot. An þess aö hvarfla augunum frá vatninu eöa lita á mig, sagöi hann: „Komdu þér um borö. Vertu fljótur. Heyriröu þaö. Taktu fötuna þá arna> Báturinn hlýtur aö hafa gisnað.” Ég stökk upp I bátinn, en nú var ég oröinn hræddur. Aldrei haföi ég heyrt fööur minn tala i þessum tón og aldrei séö hann slikan, og nú skildi ég loksins, hvaö skeö haföi. Faöir minn reri hratt, en smátt og smátt tók vatn aö seitla inn á milli boröanna I bátnum, ekki mikiö aö visu, en ég varö aö hafa mig allan viö aö ausa. Okkur bar hratt áfram, vatnsúöinn af árunum ýröist framan i mig, og þegar ég fann þessa Isköldu dropa, skildist mér hversu kalt vatnið i rauninni var. Ég hugsaöi um þau móöur mina og Tom I vatninu, og allt i einu fór ég aö gráta. f fyrstu veitti faöir minn þvi enga athygli, en hélt áfram aö róa og horföi stööugt um öxl sér I áttina aö dökkgræna barkarbátnum, en aö honum stefndum viö þar sem hann enn flaut og vaggaöist mjúklega i hægum morgunandvaranum án þess þó aö hreyfast nema litiö eitt úr staö. Ég hélt áfram að ausa og grét eins og áöur, og faöir minn skeytti þvi enn engu, en þó kom aö þvi, aö hann leit upp frá árunum og staröi á mig undarlegur á svip, svo aö allra snöggvast varö ég viss um, aö hann væri mér stórreiður. Samt var hann þaö ekki. Hann klemmdi aftur augun, en opnaöi þau svo aftur og sagöi hljóölega: „Ekki aö gráta, Jackie. Ekki aö gráta. Þaö veröur allt i lagi. Sannaöu til. Viö skulum báöir sanna til. Þaö verður allt i lagi.” Og svo tók hann aftur til viö róöurinn og reri hraöar en áöur. Hann var oröinn móöur, og enn horföi hann stööugt um öxl á barkarbátinn, eins og ’nann óttaöist, að báturinn mundi hverfa, áöur en viö næöum til hans. Ég veit ekki hversu langan tima þaö tók okkur að ná þangaö. Ef til vill hafa þaö ekki veriö nema nokkrar minútur, en þaö virtist óratimi. Vir rerum á hliö viö barkarbátinn, og faöir minn krækti I hann og dró hann fast aö bátshliðinni, og þá sáum viö, hvar i botni bátsins lá fölblái klúturinn, sem móðir min haföi bundiö um höfuö sér, og llka sáum viö sæskjaldbökuna hans Toms, þar sem hún mjakaöi sér ofurhægt eftir veöruöum þóftunum. Bátnum haföi þá ekki hvolft, svo mikiö var vist. Faöir minn stóð upp i bátnum. Eg ætlaöi aö gera slikt hiö saman, en þá sagöi hann hastur I máli: „Seztu aftur. Og sittu kyrr áfram. Þú hreyfir þig ekki fyrr en ég segi þér.” Ég hlýddi samstundis og tók aö horfa út fyrir boröstokkinn skelfdari en nokkurn tlma fyrr viö tilhugsunina um það, sem viö vorum aö leita aö og hvaö ég kynni aö eiga fyrir höndum aö sjá. Vatniö var dimmblátt, en spegiltært, og þótt þaö hlyti aö taka mér langt upp fyrir höfuö, sá ég samt til botns en ég gat ekkert séö þar nema sand, einstök lauf og sprek og nokkra ávala steina. Faöir minn kraup á kné I stafni bátsins, laut út yfir boröstokkinn, eins og hann reyndi aö horfa niöur gegnum vatniö. Viö þaö kom hann svo nærri vatnsboröinu, aö hann virtist nær allur útbyröis, og skyndilega greip mig sú skelfi- lega tilhugsun, aö hann kynni aö steypast fyrir borö og hverfa eins og þau móöir mln og Tom, og færi svo, hvaö yröi þá um mig? Mig greip ofboö, þegar ég hugsaöi til þess, en ekki þorði ég aö segja nokkuö, og eftir fáein andartök rétti faöir minn sig upp án þess aö hvarfla augunum af vatnsboröinu og seildist aftur fyrir sig eftir annarri árinni. Hann beitti henni llkt og stýrishjóli, stjakaöi okkur hratt áfram og þó ekki of hratt, stakk viö gætilega meö árinni, svo aö gárur hindruöu ekki , aö viö gætum séö til botns. Viö stefndum beint til lands og siöan til baka, fórum i smákrókum, tókum stóran hring og rerum siöan I smærri hringjum aö sjálfum miödeplinum. Viö rerum allt um kring, faöir minn kraup i stafni bátsins en ég sat á þóftu aftast i honum. Aöeins einu sinni áræddi ég aö spyrja hann, en hann virtist ekki hafa heyrt til min. Hann hélt áfram aö róa, áralagiö brást honum ekki, og sem ég sat fyrir aftan hann og sá ekkert nema bakiö á honum, liölegt og þó sterklegt, og sem nýbakaö af sól, þá slokknaði vonin I brjósti mér. Nú vissi ég loks, aö.móöir min og Tom voru okkur horfin aö fullu og öllu, og ég tók aftur til aö gráta, en nú grét ég I hljóöi. Faöir minn var farinn aö róa hraöar en áöur, skeytti ekki lengur um, þótt vatnsboröiö ýföist, en þaö skipti lika minnstu, þvi aö noröansvali var kominn, meöan á leit okkar stóö. Þess konar svalviöri, sem skýflókar fylgja eftir, þessi ský voru nú 18 VIKAN 12. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.