Vikan - 12.04.1973, Síða 33
Kl. S.:!0 á þriftjudögum og föstudögum koma hrl/.tu embættismenn
boi'garinnar saman til vifn æöna. liér velta þeir vöngum yfir korti af
Breiöholti l*óröur I*. l>orbjarnarson. borgarverkfræftingur, Páll
l.iiulal, borgarlöginaður, Birgir isleifur og Jóii (1. Tómasson, skrif-
stofustjóri.
Fyrir utan lasta viötalstima tekur borgarstjóri iöulega á móti sendi-
nefndum og stærri hópum. Seiulinefnd frá foreldra- og kennarafélagi
Hliöarskóla ræöir bér viö borgarstjóra ásanit Jónasi B. Jónassyni.
fræöslustjóra.
*
Borgarstjóri hefur fasta viötalstima á miövikudögum og föstudögum.
og eru þeir mikiö notaöir. I þetta skipti átti Arnbjörn Kristinsson i
Setbergi erindi við borgarstjóra.
Borgarstjórinn reynir að fylgjast vel með verklegum framkvæmdum á
vegurn borgarinnar, og þennau dag brá lianii sér á vettvang, þar scin
iinnið er aö framlengingu Kringliimýrarbrautarinnar. I*eir Björn
Kristófersson, verkstjóri hjá gatnadcild, Birgir isleifur og Þórður Þ.
Þorbjarnarson, borgarverkfræöingur, viröast binir ánægöustu með
framvindu mála.
aö ráði, settist bara niður og beið
eftir fyrsta kúnnanum, eins og:
Tómas forðum. Og þetta gekk
bara ágætlega.
— Maður heyrir það oft nefnt,
að við sitjum uppi með alltof
marga lögfræðinga. Hvað
heldurðu um það?
— Allir lögfræðingar virðast
komast i vinnu eiginlega eftir
hendinni. Reynsla okkar hér hjá
borginni er a m.k. sú, að það sé
ákaflega erfitt að fá lögfræðinga
til starfa. Þeir eru þotnir um leið
og þeir útskrifast.
— Og þú varst strax kominn á
kaf i stjórnmálin, eftir að skóla-
göngu lauk.
— Já, ég var kosinn i borgar-
stjórn voriö ’62, og það mótaði
náttúrlega talsvert lif mitt upp
frá þvi. Ég fór t.d. strax i borgar-
ráð, og þaö er nú metið sem hálfs
dags starf, a.m.k. launalega, þó
margir vinni auðvitað fullt starf
með þvi, en þurfi þá að vinna
meira á kvöldin og um helgar.
Þannig var ég eiginlega klofinn
milli minnar eigin skrifstofu og
borgarmálanna allt þangað til á
s.l. hausti.
— Oft hefur þvi verið haldið
fram, aö sjálfstæðisflokkurinn
hafi alið þig upp eins og erfða-
prins til að taka við rikidæmi
Geirs Hallgrimssonar, þegar
hann hætti.
— Jú, jú, ég hef fengiö að heyra
það. Þaö er ákaflega erfitt fyrir
mig að meta þetta, það snertir
mig of mikið persónulega. Ég veit
ekki, hvað öðrum hefur fundizt,
en sjálfur reiknaði ég ekkert
frekar með þessu, mér fannst alls
ekki sjálfgefið, hver tæki við, ef
Geir kysi að hætta.
— Er langt siðan þetta kom til?’
— Það var alveg eins við þvi
búizt, að Geir myndi gegna þessu
starfi út þetta kjörtimabil, og
okkar fyrsta samtal um þetta var
I miðjum október s.l., þegar hann
tók sina ákvörðun um að hætta.
Kosning nýs borgarstjóra fór svo
fram i byrjun nóvember, þannig
að það leið aðeins hálfur mánuður
á milli.
— Varstu strax tilbúinn, þegar
Geir talaði við þig?
— Nei, ég tók mér nú svolitinn
umhugsunarfrest, ég hugsaði
málið i 4 daga. Mér fannst ég
verða aö ihuga þetta vandlega og
kannski ekki siður ræða þetta við
mina nánustu. Þetta starf mæðir
eiginlega ekki siður á fjöl-
skvldunni.
— Hún hefur kannski verið
farin að venjast þvi, að þú værir
ekki alltaf heima.
— Það leiðir óhjákvæmilega af
þátttöku i stjórnmálum, og ég
býst við, að staöa min sem
borgarstjóri hafi haft meiri
breytingu i för með sér fyrir
konuna mina en mig. Nú er ætlast
til þess, að hún standi við hlið mér
við margvisleg tækifæri, og það
hefur auðvitað i för með sér tals-
verða röskun á heimilisháttum,
og það getur stundum verið erfitt
að fá aðstoð, sem við komumst
vitanlega ekki af án vegna yngstu
barnanna.
15. TBL. VIKAN 33