Vikan

Eksemplar

Vikan - 16.08.1973, Side 2

Vikan - 16.08.1973, Side 2
HAGNÝT HEILRÆÐI TIL VERNDAR GÓLFTEPPUM * Verndun upprunalegs útlits og góð ending ræðst af þvi, á hvern hátt gólfteppið er þrifið. Það má varðveita eiginleika þess ótrú- lega lengi, sé rétt að farið. Skortur á þrifnaði gerir það fljótt snjáð og ósjálegt. Það er ekki litils virði að vita hvað gera þarf til að gólfteppið haldist á- vallt sem nýtt. FLOKKAR ÓHREIN- INDA 1) Yfirborðsóþrif, eins og kusk, hár, þráöarenda o.fl 2) Ryk, leir og önnur ó- hreindindi, sem limast gjarnan við gólfteppið. Þessi óhreinindi deyfa liti þess og séu þau ekki fjarlægð geta þau orsakað raka- bletti og rotnun. 3) Sandur. SANDUR Stærsta vandamálið við hreins- un gólfteppa er hið stöðuga hár- los (lóarmyndun ). Algengt er að gólfteppi verði furðu fljótt þvæld og ósjáleg. Orsökin til þess er sandur.Sandkorn er likt og glerbrot, hárbeitt og m^rg- eggja, sem sker og mer allt sem liggur að þvi. Sandurinn gengst aðallega með skófatnaði inn á teppið. Sökum þyngdar, þrengi hann sér djúpt niður að botni þess. Þegar þang- að er komið getur hann orsakað mikinn skaða á gólfteppinu. Það gerist þegar gengið er á tepp- inu. Flosið þrýstist þá að sand- kornunum, sem þá skera hægt og bitandi flosþræðina frá gólf- teppinu. Ef takast á að varð- veita teppið vel, er mest áriö- andi, að sandurinn sé fullkom- lega þrifinn úr þvi. Hefðbundinn þrifnaður byggir á þvi að sjúga óhreindindin úr gólfteppinu með ryksugu. Ár- angurinn af að ryksjúga er þó einkar takmarkaöur, þar sem aöeins laus óhreindindi, sem liggja ofarlega fritt i teppisflos- inu nást upp á þann hátt. Eftir er þvi að þrifa gólfteppið af lim- kenndum óhreindindum og sandi, óhreinindum sem fara verst með gólfteppið. Það þar þvi eitthvað meira að koma til. ÁRANGURSRIK HREINSUN. Teppahreinsarinn frá HOOVER er einstök lausn á þessum vanda. Hann djúphreinsar gólf- teppið fullkomlega af öllum ó- hreinindum. Það geri hann með sinni þriþættu hreinsiaðferð, þar sem hann samtimis, hristir djúptliggjandi óhreinindi upp úr teppinu, burstar gætilega upp flosið og sýgur öll óhreinindi upp til agna. Árangurinn er auð- sær. Vandaður teppahreinsari verð- ur að vera stillanlegur á allar þykktir gólfteppa. Erfitt getur reynst aö þrifa þunnt teppi með tæki, sem eingöngu er ætlaö fyr- ir þykkt. Teppahreinsarannfrá HOOVER er hægt að finstilla á allar þykktir teppa. A þann hátt þrif- ur hann allar þykktir gólfteppa jafn vel. HAGKVÆMNI Vinnuléttir er mikill kostur teppahreinsarans frá HOOVER. Ein yfirferð með honum nægir, og óðar en varir er teppið laust við sand, leir, limkennd óhrein- indi, ryk, kusk, þráðar-enda og hár. Með venjulegri ryksugu reynist það oft þolraun að þrifa af teppum hár og þráðarenda. Hvaða húsmóðir þekkir ekki það, að þurfa að tina upp i ryk- sugu hár og enda? Með teppahreinsaranum þekk- ist það ekki. öll hár og endar hverfa sporlaust, strax og teppahreinsarinn kemur nærri. Auðvitað má breyta teppa- hreinsaranum i venjulega ryk- sugu. Vegna þess að i almennu heimilishaldi er venjuleg ryk- suga notuð yfir 85% sem teppa- hreinsari, er teppahreinsarinn frá HOOVER sérstaklega byggður fyrir þessa 85% notkun. Þrátt fyrir það er hann hið á- kjósanlegasta tæki til að ryk- suga rneð, t.d. húsgögn o.fl. Meö einu handtaki má tengja hann við teygjanlegan sogbarka og einhvern af hinum hagnýtu fylgihlutum. Hoover ER HEIMILISPRYÐl

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.