Vikan

Tölublað

Vikan - 16.08.1973, Blaðsíða 35

Vikan - 16.08.1973, Blaðsíða 35
JL rrfXIVÍ SÉRSTÆÐ z\A V-JrN ÍSLENZK indælt aö geta teygt úr sér á heilum bekk... Henni virtist létta líka. — Það ver ekkert til fyrirstöðu, teygðu bara úr þér. — Getum við dregið glugga- tjöldin fyrir? — Jú, jú. Ég er líka að hugsa um að leggja mig áöur en ég kem á leiöarenda. Þau drógu gluggatjöldin fyrir, hann teygði úr sér og hún las. Hann hafði boröaö miðdegisverð, áður en hann lagði af stað, og hafði nærri fest blund, þegar smá þrusk og ljúfur ilmur fyllti klefann. Þar sat hún og drakk rauðvin úr plastmáli pg skar franskbrauð, gulan ost og gúrku með vasahnif. Andlit hennar var ennþá lokað fyrir öllu utanað- komandi, en hún var ekki legnur fjarri, hún sat og vann með fingrum og tönnum og hnif og augum. Þaö brast örlitið i gúrk- unni. Hún borðaði hana með hýöinu. Hann settist upp. Hún skar nýja brauðsneið. Hann var að hugsa um að segja eitthvað, en á siöustu stundu mundi hann eftir, að hann var með epli i töskunni. Hann tók með nokkurri fyrirhöfn fram vasaklút. Hann reisti borðið viö gluggann, og breiddi úr vasa- klútnum. Þaö var erftitt að stilla sig um að gjóta augum til að sjá viöbrögð hennar. Svo setti hann eplið á miðjan vasaklútinn, og settist aftur og horfði á hnifinn hennar. Hún hló og bauö honum hnifinn. Hann þakkaöi og byrjaði að afhýða. Hún sagði: — Það er hollara og betra með hýöinu. — Þetta eöli er ekki þvegið og svo grunar mig, að það sé sprautað með DDT. — Þap er búiö að banna DDT. — Heima i minni sveit eru bændurnir sparsamir og ég dreg það stórlega i efa, aö þeir hafi hent DDT birgöum sínum. Nú var eplið afhýðaö. Hann skar þaö I fjóra hluta og erfiðaöi viö að skera úr kjarnann, svo að það, sem eftir var, yrði fagur- fræðilega formaö. Hún horfði lengi á vasakútinn og velti fram- kvæmdunum fyrirsér: tveir bitar við aðra brúnina —tveir bitar við hina. Eitt augnablik leið i þögn og svo fann hann, aö grundvöllur var kominn og sagði glaðlega: — Já, það er nokkuð stórt, svo aö hálft epli ætti að nægja i eftirmat. Hún tók hnifinn og kom honum fyrir á miðjum vasaklútnum. Við hlið hans lagði hún gúrkuna og ostinn. Þaö var ekki pláss fyrir brauðið, svo það varð að liggja á nakinni borðplötunni. Hún hló smavegis og dró flöskuna upp úr töskunni: Ég hef bara eitt glas. — Og það getur varla talizt vottu* um gott uppeldi að drekka af stút, sagði hann og gekk fram á ganginn. A leið til klefans með pappaglas sá hann, hvar eldra par gekk inn i klefann. En áöur en hann var kominn að honum vour þau komin út. — Hvað sagðir þú við þau? — Þrjú barnanna.... Hversu mörg eigum við. — Ég sagði ekkert um það, svo imyndunarafl þeirra hefur fengið verðugt verkefni. Hún skenkti vininu og hann skar brauð og ost. — Þrjá tima i sama klefa, og ekki eitt einasta orð, svo giftir þú okkur allt i einu. Er ósvifið að spyrja hvað frúin heitir? — Frú Miller. — Gift i alvöru? — Hef veriö þaö. Er eitthvaö fleira, sem þú vilt vita? Hann andvarpaöi dálitiö svekktur, en hló samt. — Allt i lagi. Þá það. Spyrð þú einhvers i staðinn! — Ertu mjög svangur? — Satt að segja, ja ekkert mjög. Ég fer aö verða saddun. — Tveggjametrakarl saddur af einni brauðsneiö? Ég er nefnilega svöng, þetta er miðdegisverður minn, svo ef þú varst ekki svangur gaztu fundið upp á ein- hverju öðru til að byrja samtalið. — Ég byrjaði ekkert samtal. Ég varö svangur af að horfa á þig- — Heillandi. Þú værir góður i skáldsögu eftir Turgenjev. — Hvers vegna? — Hefur þú lesiö eitthvað eftir Turgenjev? 33.TBL. VIKAN 35

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.