Vikan

Tölublað

Vikan - 16.08.1973, Blaðsíða 39

Vikan - 16.08.1973, Blaðsíða 39
krónur á mánuði. Þá voru peningarnir ekki eins verð- litlir og þeir eru nú og hún þurfti , ekki að borga foreldrum sínum neitt fyrir að búa heima. Fyrir sjö árum byrjaði hún að vinna hjá US- Agency for international development og þar starfar hún enn. Vinna hennar er einkum tölfræðilegs eðlis og hún hefur í kringum 10.000 krónur í mánaðar- laun og það telst mjög gott. Hún hefur líka ágæta að- stöðu á vinnustað, sérher- bergi sem bæði er svalt og vistlegt. Sólin nær ekki að skína inn til hennar og í Saigon er það kostur að geta útilokað sólina. Fyrir sömu vinnu hjá ríkinu eða félagssamtökum fengi Anh minni laun, en einkafyrirtæki greiða hærri laun og einkum þau erle'ndu. Anh vinnur fjörutiu stundirá viku og á frí tvo daga vikunnar. Hún á rétt á tveimur veikinda- stundum á viku, þ.e.a.s. rúmum 100 stundum á ári. Sjúkrasamlag er ekki til staðar svo að fólk verður sjálft að kosta læknishjálp, ef þáð veikist. Allar ógiftar vinkonur Anh vinna úti, líka þær sem eiga efnaða foreldra. Stúlkur og piltar hafa nokkurn veginn sömu tæki- færi til þess að fá atvinnu og fá yfirleitt sömu byrjunarlaun. En piltareru fljótari að vinna sig upp. Sjaldgæft er að konur séu í hálaunaflokkum. — Ef ég gifti mig, er ég ákveðin í að halda áfram að vinna. Lika þó að ég giftist ríkum manni, segir Anh. — Það er ekkert sem mælirá móti því, að mæður stundi aðra vinnu. Ég vil taka þátt i því að afla fjár til heimilisins. Ég kæri mig ekki um að vera háð nein- um f járhagslega. Peningar eru ekki hamingja í sjálf- um sér, en þeir eru nauð- synlegir til þess að lifa. Ef ég eignast barn, borga ég barnfóstru 4000 - 6000 piasta á mánuði (680 - 1020 krónur) auk fæðis og húsnæðis. Anh er ákveðin í að vera vel stæð efnalega og laun hennar myndu auðveldlega nægja henni til þess að standa á eigin fótum. Skattarnir eru ekki nema rúmar500 krónur á mánuði svo að hún þarf ekki að hafa áhyggjur af þeim. Anh leggur 3000 krónur á mánuði inn í banka, því að hún ætlar að safna sér fyrir bíl. Hún borgar ekki bein- línis til heimilishaldsins en gefur móður sinni og systrum ríkulegar gjafir. Hún hefur líka dálæti á því að ganga vel til fara. Allan tímann, sem Ngienf jölskyldan hefur búið í Saigon, hefur hún búið í sama húsinu í Gia Dinhhverfinu. Húsiðerein- lyft og i kringum það er lítill garður. Húsið er lítið en smekklega búið hús- gögnum. Heimiliðer mjög vistlegt. En Gia Dinh varð illa fyrir barðinu á styrjöldinni. Var- hugavert gat verið að fara þarum veginn. Anh ferðast á Hondu eins og svo margir aðrir í Saigon og hún reynir alltaf að vera komin heim fyrir myrkur. Anh býr með fjölskyldu sinni, móðurinni sem er ekkja, og tveimur yngri systrum. Ein systirin er gift og býr út af fyrir sig. Það er þóekki algengt að ung hjón búi ein í Víetnam. Anh segist ætla að gera það líka, ef hún gifti sig. Samheldnin er mikil hjá ættingjunum sem búa í Saigon. Auk f jölskyldu Anh eru þar tvær aðrar Ngien- fjölskyldur, sem til samans eiga níu börn. Ollum helgum eyða þau saman. Þau rífastaldrei eða þræta. Samheldnin er algjör. Þau borða hvert hjá öðru og á sunnudögum fara þau saman á ströndina. Saigon- búar hafa aðgang að frábærri baðströnd í aðeins tíu mílna fjarlægð. Anh gefur sér lika tíma til þess að umgangast vini sína og sinna hugðarefnum sínum. Hún fer oft að synda í sundlaug, sem er nærri heimili hennar. Á laugar- dagsmorgnum fer hún gjarnan í bíó milli klukkan 9 og 11. Hún vill helzt sjá kvikmyndir frá Vestur- löndum eða þá kínverskar myndir. Þær eru mjög vinsælar í Víetnam, þó að fæstir Víetnamar skilji kin- versku. Það bjargast með því að setja annamitiskan texta inn á myndirnar. Anh dáir Elizabeth Taylor og Hitchcock framar öðrum. Hún hefur líka séð myndir Ingmars Bergman og þykir þær merkilegar. Enn sem komið er, er ekki um auðugan garð að gresja í víetnamskri kvikmynda- gerð. i frístundum safnar Anh líka frímerkjum og horfir á sjónvarp. Á meðan The American forces TV starfaði, horfði hún gjarnan á það, en nú hefur það hætt útsendingum. Anh les líka mikið og gjarnan á ensku til þess að halda við málinu. Hún hefur gaman af tónlist og hlustar gjarnan á Chopin, Beethoven og Tjajkovski, en metur nútíma danstón- list lítils. Hún hefur að undanförnu verið að læra að spila á 16 strengja gitar, sem er mjög vinsælt hljóð- færi í Víetnam. Anh saumar mest af föt- um sínum sjálf. Á skrif- stofunni er hún alltaf í ao dai, því að henni þykir það þægilegast. Hún og systur hennar ganga í galla- buxum og peysum heima, en móðir þeirra er í þunn- um „náttfötum". Hún velur sér nær eingöngu svartan og hvítan klæðnað, því að þeir litir hæfa bezt aldri hennar. Ætli Anh fari á dansleiki? Aldrei. í fyrsta lagi þykir henni ekki ggman að nútíma dansi og í öðru lagi þykir henni tímarnir að undanförnu ekki hafa hæft dansi. Hún hefur einstaka sinnum farið á nætur- klúbba, en ekki þótt það nein sérstök skemmtun. Anh á þá ósk heitasta, að varanlegur friður komist á í landinu. Þá getur fjöl- skyldan farið til Hanoi og hittættingja sína þar. Eins og á stendur er ekkert sam- band mögulegt. Allt sem Anh veit er að ættingjar hennar í Hanoi lifa. Anh gerir sér líka vonir um að fá nýja, betri og um- fram allt, öruggari at- vinnu. Ekki vegna þess að hún vilji ekki halda nú- verandi starfi sínu áfram, heldur af því að hún reiknarekki með, að fyrir- tækið fái þrifizt í fram- tíðinni. Líklega verður það lagt niður um leið og Bandaríkjamenn fara burt úr landinu. Vissulega langar hana líka til að giftast. Þó heldur hún að hamingjan felist ekki í hjónabandinu. 'Hamingjuna ber maður sjálfur í hjartanu. Hún vonar að hún eignist mann, sem hún getur borið virðingu fyrir og hún kann þeirri hugsun ekki iila, að móðir hennar velji hann handa sér, rétt eins og tíðkast hefur í aldaraðir í ættinni. Hún hefur ekki beina trú á stjörnuspám, en hefur gaman af að fylgjast með þeim. Hún vill þó ekki, að móðir hennar fái stjörnuspámann í lið með sérvið að velja henni eigin- mann. — En ég verð að fá tíma til þessað kynnast verðandi manninum mínum, hitta hann og komast að raun um hvaða tilfinningar ég beri til hans. Svo ákveð ég sjálf hvort ég vil giftast honum. Allirá heimilinu ráðfæra sig við móðurina og hlýða henni. En Anh hlýðir ekki hugsunarlaust. Hún ræðir málin við móður sína og tekst oft að sannfæra hana um að sitthvað megi betur fara. Virðingin fyrir foreldrun- um, fyrir eldri kynslóðinni, blasir hvarvetna við í Víetnam. Þó hefur losnað um yfirTáð foreldranna á seinni árum og unga fólkið er orðið sjálfstæðara en áður gerðist. Anh naut mikils ástríkis í bernsku en henni var jafn- framt kennt að bera ótvíræða virðingu fyrir foreldrum sínum og þá einkum föðurnum. Hann var höfuð fjölskyldunnar, við hann talaði enginn sem jafningja sinn. Allir litu upp til hans. Anh hefur meira sam- band við móður sína, þó að hún trúi henni ekki fyrir öllu. Einu sinni varð Anh alvarlega ástfangin og móðirin fékk ekki að vita neitt um það, enda varð engin trúlofun úr því sam- bandi. — Kannskevarég ekkert yfir mig hrifin af honum. 33. TBL. VIKAN 39

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.