Vikan - 16.08.1973, Side 15
SÍÐAN SÍÐAST
BRITT EIGNAST BARN
' Sænska kynbomban og
kvikmyndastjarnan Britt
Ekland eignaðist sitt annað
barn um daginn. Faðirinn er
milljónamæringur, sem heitir
Lou Adler og hefur lifsviður-
væri sitt af framleiðslu kvik-
mynda og hljómplatna.
Britt er svo sem ekki
bláfátæk sjálf: hún á hús i
. London og i Kaliforniu,
Einnig er hún sögð eiga,
eitthvað á sparisjóðsbók
Fæðingin var sársaukalaus,
þó stúlkan hafi verið við
meðvitund allan timann. Hún
er reyndar ekkert á þeim
buxunum að gifta sig á
næstunni, en segist kunna
ágætlega við hann Lou sinn og
vel geti skeð, að þau taki sig til
einn góðan veðurdag og láti
pússa sig saman i það heílaga.
Þó að Britt og Lou hennar
séu bæði milljónamæringar,
hegðaði Britt sér eins og allar
verðandi mæður: saumaði og
prjónaði á blessaðan drenginn
sinn, hann Nicholai. Fregnir
frá London herma, að Britt og
sonurinn hafi ekið frá
fæðingadeildinni i Rolls-Royce
og heima hjá henni beið dóttir-
inn Victoria, sem er átta ára.
LOKS VAR EKKERT ÓSAGT
Liza Minelli sagði á blaða-
mannafundi um daginn, að öll
skrif blaðanna um samband
hennar og Peter Sellers hafi
flýtt fyrir sviplegum , enda-
lokum þess. — Við vorum
spurð svo margra spurninga
um samband okkar, væntan-
legt hjónaband og ást okkar,
að undir lokin var ekkert
ósagt. En ég sé ekki eftir
neinu! Hvernig getur maður
séð eftir einhverju, sem var
svo dásamlegt og frábært —
og hjónaband var aldrei á
dagskrá hjá okkur.
Samband þeirra Péturs og
Lizu var lengi vel talið sam-
band ársins eða hjónaband
ársins, en sem sagt af þvi varð
ekkert. Pétur sagði alvarleg-
ur i bragði að það hafi verið
hún sem batt endi á þetta allt
saman.
GILBERTí GAUTABORG
„Hjörð stjörnunnar kom i
rútu: um 60 manns, siðhærðar
buxna- og peysuklæddar
persónur af báðum kynjum
og margvislegu þjóðerni.
Stjarnan sjálf kom i leigðum
lúxusbil, — óásjálegur,
þreyttur og órakaður strákur i
gráum buxum....”
Svo segir i fréttum frá
Gautaborg, en stjarnan
Gilbert O’Sullivan var þar á
hljómleikaferðalagi um dag-
inn.
— Ég kann eiginlega bezt
við að hjóla, en þetta eru
soddan vegalengdir, að maður
verður að notast við bil, lét
hann hafa eftir sér við kom-
una.
Hann er annars við beztu
heilsu, á fjögra ára dóttur og
hefur umboðsmann.