Vikan - 06.06.1974, Qupperneq 9
BYSSURNAR LITILS NÝTAR
„Þeir. komu hlaupandi sem fætur toguöu, vopnaöir
byssum slnum, sem þó reyndust heldur léleg árásar-
vopn, þegar til kom: strigatuska stóö föst I hlaupinu á
byssu Nansens, um byssu stýrimanns var sama aö
segja, byssa Mogstad var aö visu I bezta lagi, en hann
vantaöi skothylki, og vann hann þaö eitt afreka.aö
hann æpti hátt, aö skjóta yröi björninn.” Um þessa
viöureign og fleira má lesa i siöari grein Lofts Guö-
mundssonar um Friöjóf Nansen og Framleiöangur-
inn á bls. 24.
OG FALLEGA HÚSIÐ BREYTIST „Þótt
arkitektinum takist nú eftir langa mæöu, fjárútlát
kaupenda og armæöu vegfarenda að ná valdi á steyp-
únni, er ekki öll sagan sögö. Eftir situr húsiö i hönd-
um misánægðra viöskiptavina, sem eiga þá eftir aö
fara úm þaö fjálgum höndum. Hafi hönnuöinum tek-
izt aö ráöa fyrstu áferö á málningu, sem er þó ekki al-
gengast, er nú húsiö ofurs'elt valdi og smekk eigand-
ans, og fallega húsiö breytist I furöulega litasamsetn-
ingu og ber ekki sitt barr eftir þaö.” Sjá grein Sigurö-
ar Ingólfssonar á bls. 2.
DROTTNINGIN I VALDATAFLINU
„Hún” var litla mademoiselle Polsson, sem seinna
varð Pompadour markgreifafrú. Sem hjákona Lúö-
vlks 15. var hún ekki einungis hin fegursta meöal
hinna fögru, heldur haföi hún frá þvi fyrsta mikil
áhrif i valdataflinu kringum konunginn. Þaö er ótrú-
legt, hve langt vald hennar náöi, þegar hún réöi
mestu.” Sjá grein um madame Pompadour á bls. 12.
KÆRI LESANDI:
„Mönnunum kom alls ekki
saman um, á hvern hátt skip-
inu og þeim sjálfum yrði bezt
bjargað, onei. Einn vildi,að
þeir hjálpuðust að við að gera
við skipið þarna á staðnum.
Annar vildi reyna að sigla
skipinu áfram i þvi ástandi
sem það var. Sá þriðji taldi
það fásinnu, hugði bezt, að
hver og einn reyndi að bjarga
sjálfum sér, en léti skipið eiga
sig. Sá fjórði tók i sama
streng, en vildi helzt, að þeir
hjálpuðust að við björgunina.
Enginn féllst á það... siðan
héldu þeir áfram að deila.
,,0-sei, sei, nei, ekki vita
þeir, hvað þeim er fyrir
beztu”, tautaði sú gamla, um
leið og hún tók þá til bragðs að
leita aðstoðar á eigin spýtur
og yfirgaf þennan óhuganan-
lega stað að sinni.”
Þessa er örlitið sýnishorn af
smásögunni ,,Gleraugun” eft-
ir Guðbjörgu ólafsdóttur, sem
birtist á bls. 28. Þar segir frá
gamalli konu, sem sér fram á
það að þurfa að fara að nota
gleraugu i ellinni og er litið
hrifin af. Svo dreymir hana
draum um ýmislegt, sem nýju
gleraugun sýna henni.
Smásögur hafa jafnan verið
vinsælt efni i Vikunni, og að
þessu sinni erum við með tvær
smásögur i blaðinu.
VIKAN Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaða-
rrienn: Matthildur Edwald, Trausti Ölafsson. útlitsteikning: Þorbergur
Kristinsson. Auglýsingastjóri: Sigríður ólafsdóttir. Ritstjórn, auglýsing-
ar, afgreiðsla og dreif ing í Síðumúla 12. Símar 35320 — 35323. Pósthólf 533.
Verð í lausasölu kr. 150.00. Áskriftarverð kr. 1.500.00 fyrir 13 tölublöð árs-
f jórðungslega eða 2.925.00 kr. fyrir 26 tölublöð hálfsárslega. Áskriftarverð
greiðist fyrirfram. Gjalddagar: nóvember, febrúar, maí, ágúst.
Vikan
23. tbl. 36. árg.
BLS. GREINAR
2 Áður en steinsteypan harðnar,
grein eftir Sigurð Ingólfsson.
12 AAadame Pompadour — Hún
stjórnaði konunginum og ríkinu
24órrustavið myrkur, kulda og rek-
is, síðari hluti greinar um Frið-
þjóf Nansen og Framleiðangur-
inn. Loftur Guðmundsson tók
saman.
VIÐToL:
4 Gestirnir horfa meira á stúlkurn-
ar en fötin, rætt við Helgu AAöller,
sýningastúlku og I jósmyndaf yrir-
sætu.
SOGUR:
14 Áfram einstæðingur, smásaga
eftir V. Francis.
20 Gata i London, framhaldssaga,
sjötti hluti
28 Gleraugun, smásaga eftir Guð-
björgu Ölafsdóttur
32 Sumri hallar, framhaldssaga, átt-
undi hluti
Y MISLEGT:
16 Franska vortízkan, þáttur í umsjá
Evu Vilhelmsdóttur
42 Eldhús Vikunnar í umsjá Drafnar
H. Farestveit
44 3M— músík með meiru, í umsjá
Edvards Sverrissonar.
FORSlDAN
Forsíðuna prýðir að þessu sinni ein
af okkar eftirsóttustu sýningastúlk-
um og Ijósmyndafyrirsætum, Helga
Möller. Viðtal og fleiri myndir af
henni er að finna á bls. 4-7.
23. TBL. VIKAN 9