Vikan


Vikan - 01.08.1974, Qupperneq 2

Vikan - 01.08.1974, Qupperneq 2
 TÍZKAN ARIÐ 2000 Hugmyndir þriggja frægra tizkuteiknara um tízku ársins 2000 — þaegi- lega fallega og hispurs- lausa tízku. Oft veltum viö þvi fyrir okkur hvað fram- tiðin muni bera i skauti sinu og þó oft sé erfitt að spá og margir spádómanna rætist aldrei, þá hætta spámenn og spákonur ekki að láta i sér heyra. Nú hafa þrir af mestu tizkuspá- mönnum heims, þeir André Courréges, Jac- ques Estérel og Paco Rabanne, sent frá sér hugmyndir sinar um það hvernig kvenfata- tizkan muni verða árið 2000. Hugmyndir þeirra eru að vonum misjafnar, en allar taka þær nokkurt mið af enn meiri tæknivæðingu og breyttum hugsunarhætti en hingað til. 1 framtiðinni gera þeir ráð fyrir þvi að við munum búa i upphituðum bæjum, þar sem engin bilaumferð verður til þess að trufla sál- arró okkar, heldur ferðumst við með raf- knúnum brautum, sem engum hávaða og engri mengun valda. ‘ I framtiðinni verður klæðnaðurinn þvi mestan part til prýði og augnayndis, en ekki fyrst og fremst til að hlifa likamanum fyrir kulda og skýla nekt hans. André Courréges telur, að árið 2000 muni kvenfatnaður falla alls staðar að likamanum, en þó verði þess vandlega gætt, að hann þrengi hvergi að svo að erfitt verði um hreyfingar i honum. Hann klæðir konu ársins 2000 i buxur, vesti, stigvél og hjálm — allt skjannahvitt, þvi að á þvi herrans ári verða engin vandamál að hreinsa flikurnar — það verður nóg að hengja þær i sérstakan skáp á næturnar og taka þær tand- urhreinar út að morgni. Jacques Estérel fleygir öllum efnum frá sér — hann klæðir konu ársins 2000 úr öllu. Hann prýðir hana þó með skartgripum úr góðmálmum. Nektin mun engan hneyksla og enginn mun blygðast sin fyrir að ganga nakinn. Paco Rabanne klæðir konu ársins 2000 i nokkrar þunnar slæður. Hún er ævintýra- vera, sem leynir engu af yndisþokka sinum — slæöurnar undirstrika hann aðeins. Klæðnað- ur Rabannes minnir á klæðnað grisku gyðj- anna á fornum höggmyndum og þá stað- reynd, að tizkan gengur stöðugt aftur. 2 VIKAN 31.TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.