Vikan - 01.08.1974, Blaðsíða 10
Ertu að byggja?
Þarftu að bæta?
GRENSÁSVEG118,22,24
SÍMAR: 32266-30280-30480
Dostunnn
Vizka allra frétta
Ég undirritaöur áskrifandi Vik-
unnar hef fengið blaðið undanfar-
in ár og óska að fá blaðið sent
áfram.
Ef að Vikan varla ber
vizku allra frétta,
ég vona, að Kristin komi hér’
sem kona allra stétta.
Vikuna ef viltu mér
veita, kæra Stina,
Timagreinarnar frá þér
þær falla I vitund mina.
Viltu senda, vina mln,
Vikuna þina nýju.
Heimfang mitt er þá til þin
að bórólfsgötu tiu.
Sveinn M. Eiðsson
Borgarnesi
ViO gátum ekki stillt okkur um
að birta þessa skemmtilegu
áksriftarbeiðni, þótt ekki sé kveð-
skapurinn alfullkominn. Það
skiptir liklega minnstu máli.
bakka þér fyrir, Sveinn.
Of mikið vald?
Kæri vikuvirki Póstur!
Mig langar aö spyrja þig nokk-
urra spurninga.og þær ættu að
vera nokkuö auöveldar fyrir þig,
en sú fyrsta hljóöar svona:
a) Hvers vegna hefur forsætis-
ráðherra svona mikiö vald I hönd-
um sér?
b) Hefur herra forseti Islands
jafn mikið vald og forseti Banda-
rikjanna?
c) Hvað fær vinsæll rithöfundur I
uppbótarstyrk á mánuði?
d) Er Alistair MacLean á lifi, og
semur hann bara glæpasögur?
e) Hvers vegna neyta menn ró-
andi lyfja I knattspyrnu?
Hvað lestu úr skriftinni? Meö
fyrirfram þökk.
J.S.J.
a) Finnst þér forsætisráðherra
eitthvað Iskyggilega valdamikill?
Hann þarf þó að ráðfæra sig við
samráðherra og alþingi, m.k.
svona oftast. Og einhver verður
liklega að ráða mestu ■
b) Nei, forseti tsiands hcfur ekki
framkvæmdavald.
c) Ég veit ekki til þess, að is-
lenzkir rithöfunda fái neina
mánaðarlega uppbótarstyrki.
Sennilega áttu við nýtilkomna
styrkveitingu til rithöfunda, sem
er raunar endurgreiðsla sölu-
skatts af islenzkum bókum, en
þar er ekki um mánaöargreiðslur
eða neina stórkostlega upphæð að
ræða i hvers hlut.
d) Ég vcit ekki betur en að báðum
spurningunum sé óhætt að svara
játandi.
e) Llklega til að róa taugarnar.
Annars er það bannaö að neyta
yfirleitt nokkurra lyfja f íþrótta-
keppni, og hefur margur orðið að
hætta keppni, ef hann varð uppvis
að lyfjanotkun.
Skriftin bendir til fróöleiksfýsn-
ar og nákvæmni. Þeir eiginleikar
ættu að koma þér til góða, þegar
þú tekur þig til og lærir stafsetn-
ingu, en það máttu til með að
gera, ef þú vilt veröa sendibréfs-
fær.
Vill verða módel
Kæri Póstur!
Mig langar að spyrja þig nokk-
urra spurninga um módel. Hvað
þarf maöur að vera gamall til
þess aö komast I módelsamtök?
Þarf maður að vera einhver snill-
ingur? Hvað kostar á ári? Er ein-
hver módelkennsla? Hvað kostar
i hana?
G.M.S.
Þú getur leitað þér upplýsinga
hjá þremur aðilum, sem hafa
sýningarfólk á slnum snærum,
Karon, Módelsamtökunum og
Pálinu Jönmundsdóttur. Eflaust
gengur reksturinn eitthvað mis-
munandi fyrir sig hjá þessum
samtökum, en yfirleitt er fólk
ekki tekiö yngra en 16 ára inn I
sýningarsamtök. Þjálfun á nám-
skeiði tekur u.þ.b. 7 vikur, og
kostnaður var um 5.000 kr. á s.I.
vetri.
Svo fóru þau í sveit
Sæll Póstur minn!
Ég þakka þér allt gamalt og
gott. Ég kaupi oft Vikuna, en hef
samt ekki alltaf efni á því. Ég var
meö strák, sem var alltaf aö
segja viö mig, aö hann myndi
ekki vilja vera með neinni ann-
arri stelpu en mér, þvl hann elsk-
aði enga aöra en mig. En svo fór
ég I sveit, og hann fór lika I sveit,
en svo hringdi hann I mig og
sagði, að hann væri kominn i bæ-
inn og ætlaöi að vera I bænum 17.
júnl. En svo kom ég i bæinn og
hitti hann með annarri stelpu, og
þegar hann sá mig, hljóp hann i
burtu og faldi sig. Hvað helduröu,
að hann hafi meint með þessu?
Og svo er þaö annað, sem ég ætl-
aði að biöja þig að segja mér,
hvaö ég á að gera við. Ég er núna
hrifin af strák, ég veit bæöi sima-
númeriö og heimilisfangið hjá
honum, en ég þori hvorki aö
hringja né fara heim til hans.
Hvað á ég að gera til þéss að ná I
hann? Ég verð helzt að fá svar
hjá þér, elsku Póstur minn, þvi ég
er svo hrifin af stráknum. Viltu
vera svo vænn að láta þetta bréf
10 VIKAN 31. TBL.