Vikan - 01.08.1974, Page 9
HÆSTANÆGÐUR A ÍSLANDI
„Við fórum aftur til Englands eftir u.þ.b. árs dvöl
hér. Þá brá svo við, að ég var farinn að sakna Is-
lands eftir viku. Við ákváðum þvi að flytjast aftur
til Islands og siðan hef ég verið hæstánægður hérna.
Islendingar e'ru lika hreint prýðilegt fólk, og ég hef
aldrei orðið var við neina fordóma gagnvart út-
lendingum hér eins og oft gerist viða i Evrópu.”
Þannig mælist Ármanni Jóhannssyni i viðtali við
Vikuna á bls 4.
KENNARI í SUNNUDAGASKÓLA
„Móðir min var hvað áhrifamest i f jölskyldunni. Ég
var alinn upp i mótmælendatrú i New York, en ég
hef aldrei verið sérlega trúhneigður. Þar fyrir
fylgdist ég með trúmálunum og fór við og við i
kirkju, og þegar ég var sextán ára, var ég orðinn
kennari i sunnudagaskólanum.” Já, Burt Lancaster
var einu sinni sunnudagaskólakennari. Sjá nánar á
bls. 24.
LEITAÐ AÐ GRÖF
„Timunum saman gekk ég frá einni gröf til annarr-
ar og las sorglegar áletranir: „Óþekkt kona um fer-
tugt”. „Óþekktur drengur um það bil tiu ára”...
Slikargrafir voru margar. Ein þessara kvenna gat
verið konan min, eitt barnanna barnið mitt.” Á bls
30 hefst frásögn af hjónum, sem týndu hvort öðru i
siðari heimsstyrjöldinni, en fundust aftur eftir 30
ár.
KÆRI LESANDI
,,Ungur piltur, sem tekinn
var af lifi árið 1953 fyrir
grimmdarlegt morð, kemur
enn þann dag i dag oft til
bernskuheimilis sins. Foreldr-
ar hans heyra hann ganga
stigana, rjála við bækurnar i
bókahillunni, og oft sjá þau
hann liggja i gamla rúminu
sinu. Og þegar hann kemur,
byrjar hundurinn að ýlfra.
1 garðinum bak við St. Pet-
ers kirkju hefur fjöldi fólks
hvað eftir annað séð unga,
laglega konu á gangi með
hundinn sinn. En hún er gegn-
sæ og minnir þannig meira á
gráa þoku en mannveru. Og
það sama er að segja um
hundinn. Þegar fólk reynir að
nálgast hana, hverfur hún inn
i múrinn.
Við Mitre Square sást sið-
astliðið haust eitt fórnarlamba
hins þekkta Hnifa-Jacks, fall-
eg ung kona, sem hann myrti
árið 1888. Og kona nokkur,
sem býr beint á móti Marble
Arch, segir, að einn morgun-
inn, þegar hún opnaði glugg-
ann til þess að hleypa inn
hreinu lofti, hafi hún séð af-
töku á torginu. Á aftökuna
horfði fjöldinn allur af fólki,
sem klætt var gamaldags
klæðnaði, en þegar hún æpti
upp yfir sig, hvarf sýnin. Og
rithöfundurinn Aickmann hef-
ur mætt vofu manns, sem féll
út úm gluggann á hótelinu
Little Venice. Þessi upptaln-
ing er bara litill hluti allra
þeirra ðularfullu atburða, sem
gerast i London.”
Þetta er nú eitthvað við hæfi
íslendingsins, sem sagður er
lifa og hrærast i öðrum heimi.
Lundúnabúar eru bara hreint
engir eftirbátar okkar i
draugatrúnni, gott ef þeirra
sögur eru ekki bara enn
mergjaðri. Sjá nánar á bls. 12.
VIKAN útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaða-
menn: Matthildur Edwald, Trausti ólafsson. Útlitsteikning: Þorbergur
Kristinsson. Auglýsingastjóri: Sigríður ólafsdóttir. Ritstjórn, auglýsing-
ar, afgreiðsla og dreif ing í Síðumúla 12. Símar 35320 — 35323. Pósthólf 533.
Verð í lausasölu kr. 150.00. Áskriftarverð kr. 1.500.00 fyrir 13 tölublöð árs-
f jórðungslega eða 2.925.00 kr. fyrir 26 tölublöð hálf sárslega. Áskriftarverð
greiðist fyrirfram. Gjalddagar: nóvember, febrúar, maí, ágúst.
Vikan
31. tbl. 36. árg.
1. ágúst 1974
BLS. GREINAR
2 Tízkan árið 2000
12 Reimleikar í London
24 Burt Lancaster
30 Þú munt lifa í hjarta mínu, sönn
frásögn
VIÐToL:
4 Erf itt að venjast skuldunum, rætt
við Ármann Jóhannsson, verzlun-
arstjóra í Jasmin
SOGUR:
16 Ókunn stúlka í örmum mér, smá-
saga eftir G.A. Callender
20 Bréfið, framhaldssaga, sjötti
hluti
28 Tommy, smásaga eftir AAark
Hellinger
34 Handan við skóginn, framhalds-
saga, sjötti hluti
Y AAISLEGT:
26 Töskur heklaðar úr hampi, tízku-
þáttur Evu Vilhelmsdóttur
41 AAatreiðslubók Vikunnar, umsjón:
Dröfn Farestveit
44 3m — músík með meiru i umsjá
Edvards Sverrissonar
31. TBL. VIKAN 9