Vikan


Vikan - 01.08.1974, Side 22

Vikan - 01.08.1974, Side 22
áhittingur... ég var að tala viö vin minn i simann i morgun. Hann á litið h<$tel í Santa Fe. Hann er mikill skíðamaður og dvelur þar þegar hann getur. Hann var að stinga upp á þvi við mig, að við héldum brúðkaup okkar þar. — Ö, veistu það, að mig hefur alltaf langað til að koma til Santa Fe, sagði Celia dreymandi. — Það er mjög venjulegur staður, sagði Jules rólega og beindi athyglinni að matnum, — en merkilega heimsborgarlegur. Það er ljómandi útsýni frá hóteli Rogers, staðurinn er kallaður Priory. Það er sjálfsögðu mjög kalt þar núna um þetta leyti árs, en þurrt loftslag, vegna hæðar- innar. — Já, ég hef heyrt það, sagði Celia og gætti þess vandlega að vera róleg. Hún hafði aldrei á ævinni heyrt nokkurn skapaðan hlut um SantaFe og vissi ekki einu sinni hvar það var. Julian var hugsandi, kreisti sitrónusneið yfir humarinn á diskinum sinum., — Við verðum að sjálfsögðu að dvelja þar i nokkra daga fyrir vigsluna, en það þyrftu ekki að vera nema þrir dagar. Ég læt frú Dewey athuga það núna siðdegis. Varlega...varlega..vertu róleg, sagði hún við sjálfa sig. — Heldurðu að það sé hægt að koma þvi i kring, vinur minn? Að við gætum verið þar tvö ein og losnað viö allt umtal i blöðum? — Ef þú vilt hafa það þannig, sagði Jules. — Ég skil ekki að nokkur maður geti komið i veg fyrir það. Celia ljómaði i framan. — Við skulum engum segja það, sagði hún. En svo einfalt gat það nú samt ekki orðið. Það var nauðsynlegt að segja Adelaide og nokkrum nánum vinum Jules frá þessu ráðabruggi. Friths hjónin og fleiri, sem allt vildu gera til að heiðra þau, vildu lika endilega fá að vita brúðkaupsdaginn. Annan janúar fóru þau til Santa Fe. Meðan þessir hefðbundnu þrir dagar voru að liða, bjó Jules á Priory hóteli, ásamt Adelaide mágkonu sinni, sem aftók með öllu að láta brúðkaupið fara fram, án þess að einhver nákominn væri viðstaddur. Celiu var komið þægilega fyrir á gömlu og nota- legu hóteli, nokkrum húslengdum frá aðaltorginu. Timinn leið ósköp notalega. Fólkið, sem var þarna á hótelinu, var ýmist glæsilega búið hefðar- fólk eða úfið og druslulegt fram- úrstefnufólk og listamenn, og Celia var ánægð yfir þvi, að henni var ekki veitt meiri athygli en hverri annarri ljóshærðri konu. Hún hafði engar áhyggjur af þvi, hvað skeði, eftir að hún væri orðin frú Jules Wain. Jules hafði að visu skilið við konu, en það voru vist gildar ástæður fyrir þvi. Hann var það stoltur maður, að hann myndi aldrei viðurkenna, að hann hefði látið gabba sig, sér i lagi ekki, ef Celia kæmi barnshaf- andi heim úr Evrópuferðinni, eins og hún hafði sannarlega ákveðið að stuðla að. Þetta sex mánaða ferðalag myndi veita henni svo mikla tryggingu, að hún þurfti ekki að hafa áhyggjur vegna framtiðarinnar. Og hér var hún svo blessunar lega ókunn öllum og örugg. Það var enginn hér i Santa Fe, sem kannaðist við hana. Klukkan sex, kvöldið fyrir brúðkaupið, kom léttadrengur með bréf til hennar. Celia þekkti ekki skriftina og flýtti sér að opna umslagið. Bréfið var stutt: „Ég hefi beðið eftir þessum degi. Ef þú hættir ekki við þetta brúðkaup, þá skal ég sjá um að gera það”. Það var engin undirskrift. í reiði sinni reif hún bréfið og umslagið i tætlur, brenndi þær yfir öskubakkanum á nátt borðinu, og fleygði svo öskunni i ruglakörfuna. Hún var sem stein- runinn og reyndi að grandskoða hug sinn. Hver gat þetta verið? Henni fannst að aðeins þrjár manneskjur kæmu til greina: frú Cannon, Susan Vestry og Willis Lambert. Eitthvert þeirra hlaut að hafa elt hana að þessu hóteli. Það hræðilega var, að hún vissi ekki hvert þeirra það var og það gerði henni erfiðara að hugsa um einhvern möguleika, til að losna við hinn dulda óvin. Hvert þeirra sem var, gat fundið upp á þvi, að hringja: — Vitið þér, að hin til- vonandi eiginkona yðar er af inn- flytjendum komin, á foreldra og fjölskyldu, sem býr i lélegri kjallaraibúð? En hún mun eflaust getaðstjórnaðþjónustufólki yðar, vegna þess að hún hefur sjálf verið vinnukona i mörg ár.... Framhald i næsta blaði. 22 VIKAN 31. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.