Vikan - 08.08.1974, Page 37
hann uppi eftir tuttugu ára
aðskilnað.
— Ætlastu til, að ég fari að
klappa saman lófunum?
— Fenning segir, að þetta sé
bráðmyndarleg stúlka. Ekkert
sérlega lagleg, en höfðingleg.
— Liklega lik honum Elg, gæti ég
hugsað mér.
— Við verðum að bjóða þeim i
mat, Rósa.
— Já, gerðu það. Einhverntima
þegar ég er ekki heima.
Það var úti um góða skapið hjá
honum. — Ég vildi að ég vissi
hvað að þér gengur. Hvernig ég
get gert þig hamingjusama.
— Taktu eitthvert meðal. Þetta
var i eina skiptið, vikum saman,
sem hún hafði hlegið. Og hann
hafði hlegið með henni, þó að hon-
um liði illa af auðmýkt og feimni.
Hún var i illu skapi og gat ekki
verið öðruvisi. Latimer var far-
inn. Þeirri staðreynd var ekki
hægt að komast hjá. Og það var
hann, sem hún hafði i fyrsta sinn
gefið allt fjör sitt og tilfinningar.
Eina nótt hafði henni fundizt hún
vera drottning. Hann var sá eini,
sem gæti fullnægt henni og svo
haíði hann i þessum ástarbrima
sinum verið auðmjúkur við hana,
og eins og þræll i girnd sinni. Að
minnsta kosti virtist þaö svo. En
svo var þvi lokið. Þessi ástar-
blossi hans haföi veriö lygi, bara
kænskubragð til þess að fá hana
til að svala girnd hans. Og svo var
hann þotinn. Nóg haföi svo sem
verið af loforðunum, en eftir þvi
sem vikurnar liðu, urðu þau að
lygum.
Svo einn daginn sagði Jennie,
Indiánastúlkan, upp vistinni með
þeim ummælum, að ekki væru til
nógir peningar i öllum bænum, til
þess að borga henni fyrir að
standa undir eilifum skömmum
og svivirðingum. Heima hjá
henni mömmu hennar, sagði
Jennie, kunni fólk að hlæja og
njóta ofurlitið lifsins. Rósa sagði
henni að koma ekki aftur.
Nú settist rykið á öll borð og
hillur. öskubakkarnir fylltust af
gráu dufti. Þegar Rósa varð
svöng, stóð hún við kæliskápinn
og nartaði i það, sem hún gat
fundið þar. Hún geröi enga til-
raun til að útbúa máltíð handa
manni sinum, og snerti ekki á að
búa um rúmið.
Einn daginn sagði Lew, að hann
ætlaði að ná 1 Jennie aftur. Rósa
hreyfði engum andmælum. Þess-
ari einangrun hennar var aö
verða lokið, enda fannst henni
hún vera alveg að kafna I henni...
Sjálf var húp lasin og allur heim-
urinn dimmur og óeðlilegur. Lew
læddist hljóðlega út á morgnana,
til þess að vekja hana ekki, og svo
kom hann heim siðdegis og sat og
horföi á hana, og beiö færis til að
ná f vatnsglas handa henni eða
kveikja i sigarettu, hlusta eftir
hverri ósk hennar og vera þakk-
látur, jafnvel þótt það væri eitt-
hvert skammaryröi. Og enda þótt
hpn fyrirliti hann fyrir þennan
þrælsótta hans, var hann henni
nauösynlegri en fæða og loft.
Fyrir bænarstað Lews kom.
Jennie aftur. Nú var aftur tekiö til
i húsinu og maturinn kom reglu-
lega á borðið.
Oft langaði Rósu til að öskra
upp, að hún hefði verið hjákona
Neils Latimer, en stillti sig um
það. Hún var hrædd um, að það
gæti breytt Lew i eitthvað, sem
hún vissi ekki, hvað var, að
þrælsóttinn hans gæti snúizt upp i
hugrekki og fengið hann til þess
að yfirgefa hana. Og stolt hennar
særðist æ meir, er hún skildi, að
hún var háð þessum manni —
bjána, sem fór i taugarnar á
henni hverja stund — andardrátt-
urinn hans þegar hann svaf og
hitinn af honum i rúminu, sultur-
inn I honum fyrir máltiðir og
slyttishátturinn þegar hann sat.
Og svo hafði hann ekki næga
sjálfsvirðingu til aö greiða reikn-
ingana sina. En það var bara ekki
um annað að velja hjá henni.
Þetta særða stolt hennar
breiddist út eins og meinsemd, og
hún hékk svona allan daginn, án
þess að geta tekið sér nokkuð fyr-
ir hendur. En hún átti samt til
einhvern meðfæddan dugnað,
sem þjáningin gat ekki haldið i
skefjum til eilifðar nóns. En svo
fór hún smám saman að fá ofur-
litla von aftur. Latimer kynni að
skrifa henni. Hann var að
minnsta kosti enginn bjáni og
ekki gæti hann fengið skilnaðinn
ef hann ætti sér hjákonu. Vonin
varð smámsaman rikari i huga
hennar, og hugsanagangurinn
varð djarflegri. Stoltið i henni
smáhjarnaði við. Hann var heið-
arlegur maður, sagði hún við
sjálfa sig. Hann hafði sagzt
mundu einhvernveginn hafa sam-
band við hana. Og þá mundi hann
gera það. Hann hafði sagt, að þau
skyldu hittast einhversstaðar og
kynnast betur. Hún fór að hugsa
um fatnaðinn sinn. Nú skyldi
hann ekki sjá hana i vaðmáls-slð-
buxum og hálfgerðum karl-
mannsjakka. Hann skyldi fá að
sjá hana klædda sem fagra
konu... En svo varð vonin að trú
og henni fannst i hvert sinn sem
lestin kom másandi inn i bæinn úr
surði, þá væri hún að færa henni
bréf frá Neil.
Vitanlega kæmi bréf, sagöi hún
við sjálfa sig. Latimer hafði verið
alveg frá sér numinn af hrifningu
á henni. I fyrsta sinn i margar
vikur, fór hún út fyrir hússins
dyr. Lew tók alltaf bréfin á póst-
húsinu á morgnana. Nú varð hún
að taka við þvi starfi. Það kynni
að koma bréf. Hún var vön að
koma á pósthúsiö strax og búið
var að lesa sundur bréfin, og opna
pósthólfiö með ákafan hjartslátt.
Reikningar, timarit, bréf til Lews
frá einhverjum bræðra hans, sem
áttu heima vestur i landi,
meðalaauglýsingar. Þetta var ó-
breytt frá degi til dags. En vonin
vaknaði um leiö og hún sjálf. Þá
stóð hún á öndinni þegar hún gekk
niður eftir Aðalstræti og sá varla
fyrstu innkaupakonurnar, sem
framhjá henni fóru. Og hún var
ennþá lafmóöari, þegar hún
snerti hnappinn á pósthólfinu.
Hún flýtti sér að gá að bréfinu frá
Latimer, en svo var hún ekki
lengur móð — og heldur ekki
lengur vongóö. Og svo gekk hún
heim, sein á sér og full örvænting-
ar.
En trúin vaknaöi aftur og innan
klukkustundar þóttist hún viss
um, að morgundagurinn mundi
færa henni bréf frá Latimer.
Latimer hafði sagzt mundu
koma aftur þegar veiðitiminn
byrjaði. En það var litiö gagn i
þvi. Áhugi hans yrði allur við
veiðarnar en alls ekki við hana.
Hann mundi koma á þeim árs-
tima hvort sem hún væri I bænum
eða ekki. Þetta mót þeirra, sem
hún var alltaf að vonast eftir,
þyrfti að stafa af þrá hans eftir
henni sjálfri.
En til þess að bjarga stoltinu
sinu og sleppa sér ekki út I lam-
andi örvæntingu, fór hún að finna
sér ástæður til þess að Latimer
kom ekki til hennar, þrátt fyrir
alla ástarþrána. En út úr þessum
hugleiðingum spratt sú sannfær-
ing hjá henni, aö hún yrði að fara
til hans. Þó ekki þrengja sér inn
á hann, heldur láta þaö líta út eins
og tilviljun, að þau hittust. En
þessi hugdetta gerði hana samt
hrædda, þvi að þá gæti hún átt á
hættu aö hann visaði henni algjör-
lega frá sér. En vonin um að hitta
hann geröist nú samt býsna á-
leitin.
A hverjum morgni stikaöi hún á
pósthúsið, hálfsannfærð um, að
þar mundi bréf biöa hennar. En
nú var hún orðin öruggari i sann-
færingu sinni, svo að bréflaust
pósthólfið olli henni ekki veruleg-
um vonbrigðum. Hún fór aö taka
betur eftir umhverfi sinu og gera
sér ljóst, að haustið var aö nálg-
ast. Fuglarnir, sem höföu sungið i
trjánum, voru horfnir. Blómin I
garðinum höfðu sáö sér út og
HORNSÓFASETT
Hentar alls staðar. Settið getur meðal annars
samanstaðið af stól, tveggja sæta sófa óg
þriggja sæta sófa ásamt hornborði og sófa-
borði.
SVEFNBEKKIR
ýmsar stærðir og gerðir.
SKRIFBORÐSSETT
fyrir börn og unglinga. 2 stærðir.
Úrvaláklæða, hagstætt verð og greiðsluskil-
málar. Sendum gegn póstkröfu um allt land.
HÚSGAGNAVERZLUN^
MiSÐI §f.
GRENSÁSVEGl 50 SÍMI 84818
32. TBL. VIKAN 37