Vikan - 17.10.1974, Blaðsíða 32
sælir. Saint Laurent er þó ekki
upphafsmaður midi-tizkunnar.
Gamla tízkudrottningin Chanel
lét dragtirnar sinar frægu ná að-
eins niður fyrir hné. Hún hafði
nefniiega þá skoðun, að hnén
væru ljótasti hluti likamans og
ættu þess vegna að vera falin
undir pilsfaldi eða i buxum.
Hvað sem mini eða maxi leið,
hélt hún ávallt tryggð við sömu
siddina ár eftir ár. Ýmsir dutt-
lungar, sem einkennt hafa tizk-
una siðustu árin, hafa átt rætur
sinar að rekja til heilabús Saint
Laurents. Ástæðan er sénnilega
sú, að hann hugsar um konuna
sem manneskju, en ekki ein-
hvern stássgrip, sem svo margir
af hans starfsbræðrum gera.
Jakkarnir með teygjunni i
mittið, sem stelpurnar dýrkuðu
siðastliðið sumar, eru hans hug-
mynd. Einnig þykkbotna skórn-
ir, sem allir eiga i dag. Reyndar
er frumhugmyndin 25 ára.
Árið 1971 klæddi Saint Laurent
dömur sinar eftir fyrirmyndum
frá árunum eftir seinni heims-
styrjöld. Vinsældirnar létu ekki
standa á sér. Englendíngar fóru
að framleiða skó með sifellt
þykkari sólum, þó að Laurent
snéri blaðinu við og tæki upp
pena skó með þynnri sólum.
Refaskinnin, sem þessar frökku
vefja um hálsinn, og húfurnar
með breiða uppábrotinu, sem
prýddu flest höfuð i fyrravetur,
eru frá Laurent. Frá honum er
einnig viðu buxurnar og tweed-
vinsældirnar, þó tweed sé
reyndar gamalt efni. Siðustu tvö
árin hefur Laurent haldið sig við
mjög hefðbundinn stil. Dömurn-
ar hans og viðskiptavinir, t.d.
leikkonan Catherina Deneuve og
Palome, dóttir Picassos, hafa
klæðst penum skyrtublússukjól-
um, penum jökkum eða viðum
buxum með föllum að framan og
32 VIKAN 42.TBL.
r
UMSJON:
EVA
VILHELMSDÓTTIR
mjóu belti. Sennilega hafa þær
orðið þreyttar á öllu þessu hefð-
bundna, þvi á haustsýningu
Saint Laurents mátti sjá margt
nýstárlegt. Hann virðist hafa
heillast af rússneskum og mið-
evrópskum þjóðbúningum. T.d.
sýnir hann midi-siðar kápur með
greinilegu rússnesku yfirbragði.
Þær hefur hann úr velur eða rú-
skinni og sýningastúlkurnar eru
með kósakkahúfur og i stigvél-
um, viðum um öklana. Einnig
eru margir kjólanna með sterk-
um þjóðlegum svip. Þeir eru
midisiðir með háu mitti og úr
rósóttum efnum. Svo alþýðuleg-
ur er Laurent orðinn, að hann
bindur skýluklúta um höfuð
stúlknanna eins og f jósakonurn-
ar gerðu i gamla daga. Varla er
hægt að segja, að nokkrar buxur
hafi sézt á sýningunni, og svo
virðist sem buxur séu fallnar i
algera ónáð hjá flestum tizku-
hönnuðum. Húfur og treflar voru
mjög áberandi og alls konar
prjónafatnaður. Dömurnar eru
krullhærðar og mikið málaðar,
og Laurent notar mikið af velúr-
efnum, satini og vetrarbómull.
Litir hans eru þeir sömu og i
fyrra, dökkir, og mattir nema i
rósóttu efnunum: Flöskugrænt
og dumbrautt, svart. grátt,
brúnt, beige og hvitt. Hér á þess-
um siðum er smá sýnishorn af
nýja Saint Laurent-fatnaðinum.
42. TBL. VIKAN 33