Vikan - 17.10.1974, Blaðsíða 36
dyrnar sá hún rúm, þar sem ein-
hver mannsmynd lá undir hrúgu
af ..óhreinum og rifnum teppum.
Hún heyröi, aö læknirinn skipaöi
Jennie aö koma meö heitt vatn og
taka svolitiö til.
Rósa gekk alveg aö dyrunum og
sá þá, aö handleggurinn á sjúk-
lingnum var bólginn og næstum
eins digur og svfnslæri. Hann
tautaöi eitthvaö viö lækninn, og
lyfti þessum afmyndaöa hand-
legg sinum. Háriö á honum var
snjóhvítt, en svörtu augun voru
hvöss af ákafa og þjáningu.
Jennie kom út og dreiföi úr eldi-
viöarhlaöanum til þess aö finna
þurra spýtu til aö brenna. Hún
sagöi viö Rósu: — Hann er svo
seigur, aö hann mundi ekki falla
fyrir rjúpnaskoti.
Rósa hörfaöi undan óþefnum út
úr kofanum. Skammt frá viöar-
hlaöanum var trjabolur og hún
settist á hann og beiö. Þegar hún
leit upp aftur, sá hún mannipn
sinn hjá Indiánunum. Hún leit
undan og á dimman, votan skóg-
arvegginn. Svona var lifiö henn-
ar. öll þessi eymd, en á einhverj-
um öörum staö beiö stórborgin
eftir þvi aö fagna henni.
Hún leit aftur inn i húsið og sá
Jennie meö skál á hnjánum aö
þvo handlegginn á afa sinum.
Læknirinn haföi sett töskuna sina
á rúmið og opnaö hana. Hann
breiddi handklæöi á teppiö og
lagöi verkfærin sin i röð á þaö.
Hann tók upp silfurblikandi hnif.
Rósa leit undan og á runnana.
Læknirinn kom úteinn og brosti
meö sjálfum sér og göngulagiö
bar vott um, aö hann væri ánægö-
ur meö sjálfan sig. — Hún Jennie
ætlar aö verða hérna I nokkra
daga. Þá ætti hann aö vera oröinri
skárri. Ég skildi eftir meööl til aö
hreinsa handlegginn meö. Þetta
ótimabæra veðurlag gerir þetta
verra. Ef eitthvaö kólnaöi, ætti
þaö aö geta hreinsaö loftiö.
Nú gekk hann á undan og út á
stiginn. Jennie kallaöi til þeirra
úr dyrunum og veifaöi til þeirra.
Læknirinn veifaöi á móti um leið
og hann hvarf inn i kjarrið. Hann
blistraöi ofurlltiö meö sjálfum
sér, og þetta góöa skap hans hafði
ertandi áhrif á Rósu. Hann þurfti
ekki annað en gera eitthvert
handtak, sem hann var ánægöur
meö, þá hagaði hann sér rétt eins
og hann væri kóngur.
Þau komu að gilinu og stönzuðu
til þess aö hvila sig andartak. Siö-
an lagöi læknirinn af staö niður.
— Komdu, Rósa!
En hún kom ekki á eftir honum.
Nú haföi hún fengið hugdettu. En
svo hélt hún, að hún væri
þýðingarlaus, og ætlaði á eftir
manni sínum. En aftur kom þessi
sama hugdetta, og nú ásamt
æöisgenginni von. Þarna gæti
veriö tækifæriö þótt hæpiö og
hættulegt væri. Hún gekk út af
einstiginu og svo eftir gilbakkan-
um meira en fimmtiu feta vega-
lengd. Þar staönæmdist hún og
horföi niöur. Um þaö bil á miöri
leiðinni. niöur var lltil, leirug
sylla. Áö stökkva niöur á hana
yröi um það bil fimmtán feta
stökk. Falliö mundi taka fast á
likama hennar, en hinsvegar ekki
liklegt, aö hún mundi meiöa sig
neitt verulega. Syllan hallaöist
fram og ef illa færi, mundi hún
renna fram af henni og niöur I
vatniö, en þaö var ekki djúpt. Og
ef allt gengi aö óskum heföi þau
áhrif, sem hún óskaöi á kviöinn á
henni.... já..þá mundi ekki liða
á löngu þangaö til hún yröi frjáls
og gæti farið til Latimers. Hún
var farin aö hlæja að þessum
hugsunum sinum, en svo leit hún
niöur fyrir sig. Lew stóö þarna á
staurnum, sem lá.yfir lækinn.
Hann kallaöi til hennar og hún
heyröi skelfinguna I röddinni —
Geröu þetta ekki! Þaö þýöir ekki
neitt. En þú gætir drepiö þig á
þvi.
Þaö var þessi skelfing hans og
hefndargleöin, miklu fremur en
vonin um árangurinn af þessu,
sem réö úrslitum og geröi hana
einbeitta. Hún leit á hann og hló
og siöan steig hún fram á brúnni
Hún var enn hlæjandi þegar
fæturnir á henni námu viö
sylluna. Höggiö þegar hún lenti
fór um hana alla, rykkti i höfuöiö
á henni og siöan valt hún út af og
rak sig á eitthvað. Hún lá þarna i
sjálfheldu á syllunni, á grúfu.
Hún vissi ekki, hvort hún var neitt
meidd. Hún fann ekkert nema
verk aftan i hálsinum. Lew var
enn aö kalla og hún gat heyrt
hann busla I vatninu, til þess aö
komast til hennar. Hún reyndi aö _
Æviiitýramaðurinn er kominn aftur,
ásamt:
Björgunarbátum.
Fallhlifum.
Kafarabúningum.
Tjöldum.
Hraöbátum m/mótor.
Ennfremur:
Skólatöflur.
Brúöuvagnar.
Brúöukerrur.
Bobb-borö.
Tennisborö.
Körfuboltaspil.
Keiluspii.
D.V.P. dönsku dúkkurnar.
Kaupiö jólagjöfina timanlega á
gamla veröinu.
Póstsendum.
LEIKFANGAHÚSH)
Skóiavörðustíg 10, sími 14806.
Tvibura-
merkiö
22. mai —
21. júni
Krahba-
merkiö
22. júni
23. júli
Ljóns
merkið
24. júli --
24. ágúst
Meyjar
merkiö
24. ágúst —
23. sept.
Hrúts
merkið
21. marz —
20. april
Þér finnst einhver
vera óvingjarnlegur i
þinn garö, en hug-
leiddu vel hvort ekki
er um misskilning aö
ræöa, eöa hvort öll
sökin er ekki þin.
Heillalitur er grænn.
Vertu heima hjá þér
um helgina.
Nauts-
merkiö
21. april —
21. mai
Þaö verður mikið um
aö vera heima hjá þér
og þér finnst þú ekki
sjá út úr þvi, sem þú
þarft aö gera. Þér
berst óvænt hjálp.
Annað hvort er það
gamall vinur þinn, eöa
fjarskyldur ættingi,
sem kemur þér til
hjálpar.
Þú ert allt of draum-
lyndur þessa dagana.
Þaö hefst ekkert meö
þvi einu að reisa
skýjakastala. Geröu
eitthvað I málinu.
Helgin er upplögö til
þess aö hefjast handa.
Heillatala er tveir.
Þessi vika veröur
stórtiöindalaus en sér-
staklega þægileg og
fljót aö liöa. Þú ættir
aö fá þér einhverja
nýja fllk, þó aö ekki
séu nema sokkar.
Eyddu helginni I
góöum en fámennum
hópi.
Þaö veröur glatt á
hjalla I kringum þig og
þú átt lengi eftir aö
minnast skemmti-
legra viðburöa þess-
arar viku. Gættu samt
aö þvi aö tefla ekki of
djarft. Þú gætir séö
eftir þvl.
Vikan veröur allt öðru
visi en þú hafðir ráö-
gert, en ef þú tekur
bara hlutunum eins og
þeir eru og gerir þér
engar óþarfa áhyggj-
ur, geturöu haft reglu-
lega gaman af öllu
saman. Föstudagur-
inn er heppilegur til
minni háttar inn
kaupa.
36 VIKAN 42.TBL.