Vikan - 14.11.1974, Síða 5
menn. Og aö staðaldri koma
þangað forráðamenn leikhúsa og
kvikmyndaframleiöenda og
kynna starfsemi sina, þeir benda
á möguleika á leikferðalögum og
gefa ráðleggingar varðandi val á
umboðsmönnum. Hingað senda
lika forsvarsmenn sjónvarps-
stöðvanna erindreka sina til að
gefa upplýsingar um, hvaft er á
döfinni hjá hverri sjónvarpsstöð
fyrir sig og hvernig manngerðir
vantar i hlutverkin. Og þar að
auki halda leikarar að staðaldri
fyrirlestra um leikhús og kvik-
myndir i leikskóla Strasbergs i
Hollywood. Þeir eru ekki af verri
endanum, þvi að þar halda iðu-
lega fyrirlestra leikarar á borð
við Steve McQueen, Shelley
Winters, Gene Kelly, Connie
Stevens, Glenn Ford, Dustin
Hoffmann og fleiri.
Eg sit á skrifstofu leikskóla
Strasbergs, og þar verður mér lit-
ið á ráðleggingu, sem hangir inn-
römmuð á veggnum. A islenzku
hljóðar hún eitthvað á þessa leið:
„Þvi aðeins teljist þið vaxandi
leikarar, að þið haldið stöðugt á-
fram að þjálfa ykkur og þroska”.
Þetta er einföld áminning til leik-
ara um að halda áfram að æfa
sig, þó að þeir komist svolitið á-
fram, hætta ekki, þó að þeir kom-
ist á samning. En hörð sam-
keppnin er yfirleitt næg til þess,
að leikararnir halda sér I þjálfun.
Að minnsta kosti þangað til þeir
hafa getið sér slika frægð, að nafn
þeirra eitt er nægilegt til að selja
kvikmyndir.
1 þessum skóla er sérstakt
kennslufyrirkomulag, og þegar
ég spyr, hvað námið taki langan
tima, fæ ég vingjarnlegt bros og
eftirfarandi upplýsingar: „Við
litum ekki á námið á þann hátt.
Við vinnum ekki með ákveðinn
námstima i huga. Nemandi getur
til dæmis verið mjög duglegur og
stundað hverja einustu kennslu-
stund i langan tima, en svo hættir
hann allt i einu, kannski af per-
sónulegum ástæðum, og þá liða
margir mánuðir eða ár, þangað
til honum skýtur upp allt i einu,
og hann tekur aftur til við námið,
HOUSE "I
PLEftSUtf
þar sem hann hafði látið staðar
numið. Við reynum að lita á skól-
ann eins og lest, sem heldur á-
fram endalaust, sumir feröast
meðhenni, aðrir fara úr henni, og
þaö er þægilégt að vita af þvi að
geta alltaf verið meö seinna, þeg-
ar tækifæri er til. Það eru til
margar góöar kennsluæfingar, en
til skýringar skal getið einnar
sérstaklega. Stúlka, sem er ný-
byrjuð I náipi hjá okkur, fær
kannski strax I fyrsta timanum
það verkefni að fara heim og hita
sér kaffi. Svo á hún að koma aftur
og sýna ein á sviðinu, hvernig hún
bar sig að við það. Hún fær engin
áhöld og hefur ekkert, nema einn
stól, sér til halds og trausts á
sviðinu. Hún á að sýna skólafé-
lögum sinum atburðarásina, al-
veg frá þvi hún tekur kaffikönn-
una úr skápnum og þangaö til hún
er búin aö drekka úr kaffibollan-
um. Kannski var kaffið of heitt,
svo að hún brennir sig l tunguna,
46. TBL. VIKAN 5