Vikan


Vikan - 14.11.1974, Page 29

Vikan - 14.11.1974, Page 29
WHf viB ýmis störf. Hann vann m.a. i sögunarmyllu, þvottahúsi, hjá byggingameistara, í smjörgerö og viökjötburð. I tvö ár var hann i herþjónustu og þjónaði þá m.a. i Kóreu og Vestur-Berlin. i fri- stundum sinum sótti hann tima i leiklist og eftir 10 ára undirbúning og nokkur smáhlutverk fékk hann hlutverk i „Zulu” og sló i gegn. Michael kvæntist leikkonunni Patriciu Haines, meðan hann var enn aö bera kjötskrokka, en hjónabandið entist aðeins hálft þriðja ár. Hjá Michael og Patriciu var það ekki frægðin, sem geröi út af við hjónabandið eins og oft vill verða hjá leikur- um, heldur það, hve erfiö Michael reyndist brautin til frama. Hann var staöráðinn i að komast áfram sem leikari, og barátta hans hlaut aö koma niöur á hjónabandinu. Dag nokkurn setti kona hans hon- um kostina: hjónabandið eða leiklistina. Hann valdi leiklistina, þvi hann vildi ekki eiga það á hættu, að siöar, segjum eftir 20 ára óhamingjusamt hjónaband, færi hann að kenna konu sinni um að hafa eyöilagt allar framavonir hans. Og hvað dóttur þeirra Dominique viðvék, taldi Michael henni enginn greiðigeröuraöalast upp hjá ósamlyndum foreldrum. Dominique er 'nú 17 ára og i miklu dalæti.hjá föður sinum. Hún dvelst ofl hjá honum og nýju fjölskyldunni, og hann styður hana sem mest hann má i aðal- áhugamáli hennar, hesta- mennsku. Michael Caine er mjög strang- ur faðir, og komi Dominique heim með pilta, sem honum lizt ekki á, vísar hann .þeim skilyrðislaust á dyr. Hann segist vita, hvað hann sé aö gera, viti það , hve mikil hætta ungum stúlkum geti verið búin i samskiptum við karlmenn. Caine er ákaflega stoltur af hinni fögru konu sinni og hefur gaman af að segja frá þvi, hvern- ig kynni þeirra hófust. Michael hafði séð stúlkuna i sjónvarps- auglýsingu fyrir Braziliu-kaffi og fór að segja vini sinum frá þess- ari rennilegu skvisu. Hann varö meira en litið hissa, þegar vinur- inn sagðist hafa hitt hana nokkru áöur, og þá hefði hún farið að spyrja hann, hvort hann þekkti Michael Caine, en hún hefði hrif- izt mjög af honum i kvikmynd, sem hún hefði séð nýlega. Michael varö mjög uppveðraður við þetta, fékk simanúmer stúlk- unnar og hringdi i hana. Eftir að hafa spjallaö lengi við hana i sima, var stefnumót ákveðiö, og þegar Michael sá stúlkuna i fyrsta skipti vissi hann, að þetta hlaut að vera HON. 1 tvö ár voru þau saman öðru hverju, en Caine var alls ekki á þvi að binda sig. En svo kom að þvi. aö hann gat ékki staöizt stúlkuna og ákvaö að binda enda á 14 ára piparsveins- tið sina. Hrifning Caine af litlu dóttur- inni er mikil, og hann er ákveðinn I að eignast fleiri börn. Hann langar i son, en hefur litla trú á, að jafn mikill kvennamaður og hann geti eignazt annaö en dætur.' Shakira hefur lagt fyrri störf sin á hilluna og helgar sig nú alveg manni og barni. Caine er þó á þeirri skoöun, að hún eigi erindi upp á hvita tjaldið og hefur auga- stað á hlutverki indverskrar prinsessu i kvikmynd, sem á að fara að gera. Vinna utan heimilis sé nauðsynleg sjálfstrausti kon- unnar, þvi hún verði að komast úr fjötrum eldhússins öðru hverju. 46. TBL. VIKAN 29

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.