Vikan


Vikan - 14.11.1974, Blaðsíða 36

Vikan - 14.11.1974, Blaðsíða 36
Concorde krefst fyllsta öryggis og notar pvi Kieber hjólbarda 113130X3? HAFRAFELL HF. CRETTISGÖTU 21 SlMI 23511. Vetrarhjólbarðar nýkomnir STÆRÐIR: 145 X 10 175 X 14 133 X 13 185 X 14 145 X 13 135 X 15 145 X 14 165 X 15 á&ur voru. Anya var ekki lengur meö gráa lokka og ellilega ásjónu, heldur var hún sannar- lega myndarleg kona, sem brosti ljúflega til þeirra Sama var að segja um Miles, en hann þurfti nú aðeins aö breyta framkomu sinni, til að verða að öðrum manni. Hann brosti vingjarnlega til þeirra, hellti hressilega i öll glösin og rétti þeim. David og Helen tóku við þeim með gát. — Ég býst viö að ykkur þyki við einum um of vingjarnleg, sagði Miles. — Þér hafiö sannarlega haft erindi sem erfiði, herra Hurst. — Aður en við ræðum þetta nánar, vilduð þér þá ekki gjöra svo vel og segja okkur hver þið eruö i raun og veru. — Að sjálfsögöu, sagði Miles og sötraði úr glasi sinu. — Fáið ykkur sæti, þið hljótið að vera mjög þreytt eftir þetta erfiða feröalag. Þau settust á rúmstokkinn, eins og tveir vandræðalegir krakkar, en Anya dró stólinn frá snyrti- borðinu út að glugganum. — I svari við spurningu yðar, sagði Miles, — þá heiti ég raun- verulega Lazenby, en þessi dama þarna er ungfrú Martin og hún er ekki systir min. Hún er aðeins starfssystir min. — Starfssystir i hverju? spurði Helen. — Ég er starfsmaður fjármála- ráöuneytisins i Englandi og ung- frú Martin hefur svipaða stöðu hér i Frakklandi David hristi höfuðið. — Ég hlýt að vera eitthvað sljór, en ég get ekki skilið hvernig litið hús hér i Frakklandi, sem ég hefi fengið að erfðum, geti verið ástæða fyrir fjármálaráðuneyti tveggja landa að hafa svona mikið við. — Svo maöur tali nú ekki um þau gervi, sem þið bjugguð ykkur, skaut Helen inn i. — Þetta kemur ekkert húsi yöar viö, herra Hurst, sagði Miles, — nema þá óbeinlinis. Þaö eru peningarnir, sem viö eigum að hafa upp á. Hrúts merkið 21. marz — 20. aprll Góð vika I flestu tilliti. Nýr kunningi þinn vekur furöu þina. Þú ættir samt aö láta það vera að troða á öðrum, þó að þér vegni vel sjálfum. Láttu ekkert tækifæri til þess að sinna áhugamálum þínum ónotað. Nauts- mcrkiö 21. april — 21. mai Þú hefur verib nógu lengi með alls konar pukur. Hættu að fa-ra aö bak við fólk og vittu til: þérvegnar betur á eftir. Þú ættir að reyna að standa sem mest á eigin fótum i peningamálum. Láttu hendur standa fram úr ermum á laugardags- morguninn. Tvibura- merkið 22. mai — 21. júni Sérstaklega hagstæð vika er framundan hjá þér. Konur fæddar i tviburamerkinu ættu þó að varast að hugsa allt of mikið um sjálf- ar sig eingöngu. Það er engum hollt og sizt tviburakonum i þess- ari viku. 22. júni —t 23. júli Óvænt tilboö gefur þér heldur betur býr undir báöa vængi. Að visu getur einhver hindrun oröiö á vegi þinum. en þú kemst klakklaust framhjá henni. Eyddu kvöldunum við að koma áætlunum þin- um I framkvæmd. Ljóns merkið 24. júli — 24. ágúst Þú hefur aflaö þér óvinsælda alls staðar — á vinnustað — heima — og meðal kunningja þinna. Þú þarft að taka þig ær- lega á til þess að lifiö veröi þér ekki óbæri- legt. Notaðu vikuna ti! þess. Meyjar merkið 24. ágúst — 23. sept. Kannski þarftu aö beita öllum þinum klækjum og klókind- um til þess að koma i framkvæmd þvi, sem þú ætlar þér. Reyndu samt að láta aðra ekki liða önn fyrir frama- girni þina.' Krahba- merkið 36 VIKAN 46. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.