Vikan - 14.11.1974, Side 39
i AÆTLUNARBiL
Kæri draumráðandi!
Eftirfarandi draum langar rhig að biðja þig að ráða
fyrir mig. Ég þóttist stödd í áætlunarbíl, sem var þétt-
setinn fólki. Mér fannst ég vera á leið til ákveðins bæjar.
Þangað er nokkurra klukkustunda akstur. Þetta var
síðla kvölds og því orðið dimmt. Engan þekkti ég þarna í
bílnum, fyrr en allt í einu skýtur upp kollinum strákur,
sem ég hef talsvert verið með og sat hann í næsta sæti við
mig. Hann sagðist vera á leið heim til sín, en hann á
heima í þorpi, sem er á leiðinni, sem ég þurfti að fara.
Ég hélt, að bfllinn kæmi ekki við þar, en hann sagði það
vera, og var ég ánægð yfir því, þvi að ég hafði aldrei
komið til þessa staðar fyrr. Hann sagði, að þar væri
mjög fallegt, og skyldi hann sýna mér staðinn.
Svo komum við að þorpinu, og það fyrsta, sem ég sá,
var afskaplega falleg hryssa ásamt litlu foláldi og
tveimur tryppum, öðru tvævetur, en hinu veturgömlu.
Ég hrópaði upp yfir mig og hnippti í strákinn, því að ég
er mikill hestaaðdáandi. Hann sagði ekkert, en brosti
við. f kringum hrossin var birta, en annars staðar var
dimmt, svo að ég sá ekki umhverfið.
Bíllinn nam staðar framan við lítinn og óhrjálegan
kofa, og var mér sagt, að þetta væri viðkomustaður hans
þarna. Engir fóru út úr'bílnum, nema bílstjórinn og
strákurinn. Ég elti þá — minnug þess, að strákurinn ætl-
aði að sýna mér staðinn.
En hann minntist ekkert á að gera það, heldur f ór beint
inn f kofann. Þar inni var ekkert, nema eitt rúm, og
skreið hann upp í það og undir sæng og sofnaði. Ég var
méð sæng og svefnpoka með mér og bjó urri mig á gólf-
inu. Ég sofnaði ekki, og eftir dálitla stund reis ég upp,
tók saman dótið mitt og vakti strákinn til að sögja hon-
um, að ég væri að fara.
Þá kallaði hann á tvö lítil lömb og kiðlinga. Þau voru
afskaplega vinaleg og sleiktu hendur okkar beggja. Við
þetta varð ég mjög ánægð, því að ég vissi ekki áður, að
þessi strákur væri svona mikill dýravinur. Svo sagðist ég
verða að fara, því að bíllinn biði eftir mér, en spurði um
leið hvort hann kæmi ekki með til hússins, sem hann
byggi í, því að varla ætti hann heima í þessum kofa.
Hann sagðist ekki ætla heim strax, en ef mig langaði til
aðsjá húsið, gæti ég þekkt það á því, að útidyrnar væru
bláar. Með það fór ég úr kofanum.
Nú var kominnmorgunnog orðið albjart, sólarlaust, en
alltsvohreint og tært úti og dásamlega fallegt, aðég stóð
á öndinni af hrifningu. Þóttist ég hvergi hafa séð jafn
dýrlega f jallasýn og þarna.
Ég fór inn í bílinn og ók hann af stað gegnum þorpið.
Þá segir ein konan í bílnum við mig:
„Það er yndislegt að búa hérna."
,,Já, því trúi ég vel", svaraði ég.
Þá bætir hún við:
„Já, og hérna er svo mikið af hestum."
Þá hugsaði ég með mér, að þarna yrði ég að koma aft-
ur.
í útjaðri þorpsins sá ég gamla torfkirkju, sem var þó
nokkuð stór. Mér var sagt nafnið á henni, en ekki man
ég, hvað það var. Við þessa kirkju var tengd heilmikil
saga frá liðnum tímum. Hálft þakið á henni var hrunið,
og horf ði ég á hana, unz hún hvarf mér sjónum.
Þannig endaði draumurinn.
Mér þætti vænt um, að þú réðir þennan draum.
Fyrirfram þakkir.
„Dréymin".
Þessi draumur er fyrir mjög hamingjuríkri framtíð
þinni. Þú giftist áður en mjög langt um líður — óvíst
hvort pilturinn í draumnum verður maki þinn — en
hjónabandið verður langvinnt og hamingjusamt. Þið
verðið bæði langlff. Sennilega eignizt þið þrjú börn með
stuttu millibili.
RÁÐNING FYRIR „DODDY".
Gráturinn og tárin eru mest einkennandi f yrir þennan
draum, og hvort tveggja er fyrir góðu. Af li verður þó lík-
lega í rýrara lagi á vertíðinni.
DÁIN ÚTI I GARÐI.
Elsku draumráðandi!
Mig langar til að biðja þig að ráða fyrir mig draum,
sem mig dreymdi síðastliðið sumar. Hanri var á þessa
leið:
Mér fannst ég vera að lesa bók inni í herberginu mínu.
Þá komu systir mín og frændi inn og sögðu mér, að
stúlka, sem dvaldist hjá okkur, hefði fundizt dáin —
sennilega myrt — úti í garði.
Stuttu seinna var ég beðin um að fara með þvott út á
snúru og hengja hann til þerris. Ég gerði það, en þorði
ekki að líta inn í garðinn.
Rétt á eftir vaknaði ég.
Með þökkum.
Rósa.
Þessi draumur er fyrir langiifi stúlkunnar, sem sögð
var dáin, og því einu.
SVAR TIL Z.
Draumurinn bendir til þess að þú sért úr hóf i fram tor-
tryggin í garð sambýlismanns þins og vina. Vendu þig af
því— til þess er engin ástæða, að minnsta kosti kemur
hún ekki fram í draumnum.
NÝFÆDDUR STRÁKUR
Kæri draumráðandi!
Mig lángar til að biðja þig að ráða fyrir mig draum,
sem mig dreymdi nýlega, en ég vil taka það fram, áður
en ég byrja að segja frá draumnum, að ég er ófrísk. Þá
kemur draumurinn:
Ég var stödd á dansleik, sem er afar sjaldgæft nú orð-
ið, og þekkti ég þar engan. Ég er búin að vera góð stund
á dansleiknum, þegar ég fer að dansa. Allt í einu hrasa
ég og dett, og það næsta, sem ég man, er að ég ranka við
mér á sjúkrahúsi við það, að Ijósmóðir kemur irin á stof-
una með barn í fanginu og segir mér, að þetta sé mitt
barn.
Ég verð dálítið hissa, því að ég á ekki von á mér strax,
en ég tók þó við barninu, sem reyndist vera drengur með
mikið Ijóst har.
Draumurinn varð ekki lengri.
Með fyrirfram þökk!
Inga.
Böler að þá barn dreymir, nema sveinbarn sé og sjálf-
ur eigi. Þetta gamla orðtak á áreiðanlega við þinn draum
og hann er aðeins fyrir góðu, sennilega heppnast þér öll
áform þin vel.
46. TBL. VIKAN 39