Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 06.02.1975, Qupperneq 9

Vikan - 06.02.1975, Qupperneq 9
I NÆSTU lflKU HVERNIG VERÐUR ARIÐ? Þótt komiö sé fram I febrúar, er ekki of seint að kíkja i spá fyrir árið 1975. í töflum, sem birtast i næsta blaði, geta menn fundiö bæði vonda og góða daga, sem þeir eiga eftir að lifa á árinu, og með einföldum talnalestri má finna út heildarspá fyrir árið. Ein þeirra hljóðar svo: ,,A þessu ári gerist allt skyndilega og óvænt. Þú skemmtir þér ó- venjulega mikið. Þú kynnist mörgu nýju fólki, en fæst af þvi veröa kunningjar þlnir til langframa. Þú lendir i ótrúlegu ævintýri. Sennilega ferðu i langt ferðalag meö ástvini þinum”. BAK VIÐ SJÓNVARPSVÉLARNAR Sex daga vikunnar situr meirihluti þjóbarinnar meira og minna framan við sjónvarpstækin, og þeir, sem oftast birtast á skjánum, eru nánast orðnir heimilisvinir. Flestir gera sér þó litla grein fyrir allri vinnunni, sem liggur á bak við eina út- sendingu, og öllum þeim fjölda starfsmanna, sem við sögu koma. Sumra er getið I lok þátta, aörir eru nafnlaustir með öllu i augum áhorfenda. Vik- an brá sér niöur I sjónvarp einn daginn og tók nokkrar myndir til þess að gefa lesendum sínum örlitla hugmynd um, hvað gerist á bak við sjón- varpsvélarnar. Sjá næstu Viku. ÉG ER BARA MANNESKJA Ofter þvi haldið fram, að Joan Baez sé ekki trygg og trú föðurlandi sinu, Bandarikjunum. ,,Það er hárrétt”, segir hún. „Ég er ekki dyggur banda- riskur þegn. Ég er bara manneskja og hef ekki á- huga á öðru en manneskjum”. Þannig segir m.a. i grein um visnasöngkonuna frægu Joan Baez, sem birtist i næsta blaði. En Joan Baez er ekki aöeins fræg fyrir visnasönginn, heldur einnig og ekki sið- ur fyrir pólitiskar skoðanir sinar og bardagahug sinn, sem leynir sér ekki, hvar sem hún kemur fram. SIGAUNADROTTNING SEGIR FRÁ 1 Noregi hafast við i kringum tiu þúsund slgaunar, og fæstir hafa þeir fastan samastað, heldur flakka' þeir um eins og sigauna er háttur. Meðal þeirra er sigaunadrottningin Marie Lovinie Oliversen, en i næsta blaði má lesa frásögn hennar af kjörum si- gauna og viðburðariku flökkullfi sinu. Hún lýsir m.a. slagsmálum slnum við jafnöldru slna og vin- konu, sem enduðu meö hnlfsstungu, en deilan reis út af pilti, sem báðar vildu dansa viö. Þær viröast vera blóöheitar, sigaunastúlkurnar. HANDAN VIÐ VEGGINN „Ég var á leiöinni fram að dyrum, þegar ég heyrði fyrsta greiniléga hljóöið. Þaö var eins kon- ar hvinur handan við frönsku gluggana. Ég stans- aði og sneri við, og I þvi heyrði ég sama hljóöið aftur og einnig veikt hálfkæft óp frá glugganum hinum megin. Ég gekk aftur á bak fram I ganginn, æddi inn I eldhúsið og kveikti öll ljós. Hjartað barðist, sem mest það mátti, og eyrun voru sperrt”. Þessistutta tilvitnup ætti að nægja til aö sanna, að enginn verður svikinn af smásögunni Hándan við vegginn eftir Diana Cooper, sem birt- ist I næsta blaöi. VIKAN Útgefandi: Hilmir h.f. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaða- menn: Matthildur Edwald, Trausti Ólafsson, Þórdís Arnadóttir. Útlits- teikning: Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari: Sigurgeir Sigurjónsson. Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreif ing í Síðumúla 12. Símar 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 150.00. Áskriftarverð kr. 1.500.00 fyrir 13 tölublöð ársf jórðungslega eða 2.925.00 kr. fyrir 26 tölublöð hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyrir- fram. Gjalddagar: nóvember, febrúar, maí, ágúst. Vikan BLS. GREINAR 3 Demantar. 33 Stjörnuhvelfingar. VI. grein Birg- is Bjarnasonar um stjörnufræði. VIÐTOL: 26 Uppá marga fiska. Sagt frá heim- sókn til Grindavíkur og viðtöl við Tómas Þorvaldsson útgerðar- mann, Guðveigu Sigurðardóttur formann Kvenfélags Grindavík- ur, Björgvin Gunnarsson- skip- stjóra og útgerðarmann, Gunnar Tómasson formann Ungmennafé- lags Grindavíkur, Fjólu Jóelsdótt- ur stöðvarstjóra Pósts og síma, Guðmund Jóhann Kristjánsson verkstjóra, Ingibjörgu Þórarins- dóttur starfsstúlku í frystihúsi og Helgu Þórarinsdóttur, sem séð hefur Grindavík breytast úr lítilli verstöð í blómlegan útgerðarbæ. SoGUR: 16 Gatsby hinn mikli, framhalds- saga, fjórtándi hluti. 34 Ovænt örlög, f ramhaldssaga, ní- undi hluti. YMISLEGT: 10 Póstur. 12 Dauðadans í Iðnó. 14 Á f jórum hjólum. Bílaþáttur í um- sjá Árna Árnasonar. 20 3m — músík með meiru í umsjá Edvards Sverrissonar. Úrslit vin- sældakosningar. 22 Hvað er á spólunum? Flugránið í Gamla bíói. 24 Svolítið um sjónvarp. Dagskrá og ef niskynning. 36 Stjörnuspá. 40 Krossgáta. 41 Prins Valiant. 42 Bolluuppskriftir í Eldhúsi Vikunn ar. 44 Draumakortið. 46 Einfalt föndur. 6. TBL. VIKAN 9

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.