Vikan - 06.02.1975, Side 10
DQsturinn
Fyrsta Vikan
Agæti Póstur!
Ég hef aldrei skrifaö þér áöur.
1. Hvað er Vikan gömul? Hvaða
ár var hún stofnuö og hvaöa
mánaöardag?
2. Hvenær átt þú afmæli, hvaöa
ár ert þú fæddur; og hvaö heitir
þú?
3. Mig iangar i Vikurnar meö
Súperstar og Eyjagosinu, þegar
húsin keyröu á hvert annað, og
lika langar mig i blaöiö meö Birgi
Isleifi.
4. Veist þú, hvaö ég heiti og
hvaö ég er gamall?
5. Hvaö lestu úr skriftinni
minni, og hvernig finnst þér hún?
AgústÞ. Höskuldsson
1. 1. tölublaö Vikunnar kom út
17. nóvember 1938.
2. Pósturinn hóf göngu sina I 29.
tölublaði Vikunnar, sem út kom
17. júll 1941.
3. I 11. tölublaði 1973 var fjallaö
um uppfærslu Leikfélags Reykja-
vlkur á Súperstar. Við sögðum
frá Eyjagosinu I 5. og 6. tbl. 1973,
og viötalið við Birgi isleif
Gunnarsson birtist i 15. tbl. Hafðu
samband við afgreiðslu Vikunnar
i Siðumúla 12 til þess að fá þessi
tölublöð.
4. Ég giska á, að þú heitir Agúst
Þ. Höskuldsson og sért 12 ára.
5. Þú þarft endilega að reyna aö
skrifa betur, og þegar þú hefur
æft þig vel, skaltu skrifa mér
aftur, og þá skal ég reyna að lesa
úr skriftinni þinni.
Bókband
Kæri Póstur!
bað er eins gott aö koma sér
beint að efninu. Mig langar að
spyrja þig, hvert ég á að snúa
mér, ef mig langar að vinna utan
landsteinanna. Hvaö þarf maöur
að vera gamall til þess aö hafa
mesta möguleika á þvi aö fá
vinnu úti? Hvað þarf ég aö hafa
mikla menntun til aö geta hafið
nám i bókbandi i iðnskólanum?
Eru miklir möguleikar fyrir kon-
ur i þessari iðn? Þakka fyrir allt
þaö góöa i Vikunni. Meö fyrir-
fram þökk fyrir birtinguna.
Ein spurul.
Þér er best aö safna þér ögn af
árum og reynslu, áður en þú legg-
ur I atvinnuleit utan landstein-
anna. En þegar þú hefur ákveðið,
hvaða land þú vilt helst heim-
sækja og hvaða störf koma til
greina, skaltu hafa samband viö
scndiráð viökomandi lands og
leita þar eftir aöstoð. Þú þarft að
hafa lokið gagnfræðaprófi, og
siðan tekur námið fjögur ár á
verkstæði og i iönskóla. Konur
eiga að hafa jafn mikla mögu-
leika og karlar I þessari iðngrein.
Heimavist
Sæll Póstur!
Viltu vera svo vænn aö svara
spurningum, sem mér eru hjart-
fólgnar. Mig langar svo að vita
allt um þaö, hvernig hægt er aö
komast I heimavist. Hvenær og
hvernig á aö sækja um? Hringja
eöa senda skriflega umsókn?
Þarf ég aö hafa sérstaka einkunn
upp úr öörum bekk til þess aö
komast I landspróf? Mig langar
nefnilega út á land I skóla, þvl
þegar einu vinirnir minir eru
búnir aö reyna, vilja þeir ekki
koma aftur. Getur þú ráöiö eitt-
hvaö úr skriftinni og undir hvaöa
stjörnumerki ég er fædd? Ég læt
ekki neinn segul fylgja meö, þvl
annars kemst þetta I gylltu rusla-
fötuna, ef hún er meö segul. Með
bjarta von um birtingu. Ég bið
eftir póstinum, sem ber út.
Vonlaus
Þú verður auövitað fyrst að
gera þér grein fyrir þvi, hvaöa
skóla þig langar helst til að dvelj-
ast i. E.t.v. koma fleiri en cinn
staður til greina. Þú skalt skrifa
skólastjórum viökomandi skóla
og óska eftir upplýsingum um
möguleika á inngöngu næsta vet-
ur, kostnað og hvað eina, sem
þú vilt vita. Ef þér liggur mikið
á, geturöu lika hringt. Gerðu
þetta sem fyrst, svo að þú sért
örugg með að komast að næsta
vetur. Skriftin bendir til þess, að
þú gefist ekki upp, fyrr en i fuíla
hnefana, ef þér dettur eitthvað i
hug.
Dieselvéi
Heill og sæll kæri Póstur!
bað er oft gaman að lesa þaö
efni og spurningar, sem fyrir þig
eru lagðar. Hvillkt efni, sem
fólk fjallar um: ,,A ég aö leyfa
honum þaö? — A ég aö nota pill-
una? — Hvernig fara þessi og
þessi merki saman?” og margt
enn furöulegra. En þaö, sem mig
vanhagar um, er bók um diesel-
vél, hvernig hún verkar, þar sem
farið er ýtarlega I hvern og einn
vélarhlut og hlutverk hans. Æski-
legt væri, að hún væri á íslensku.
Ég er nefnilega búin að leita mik-
iö fyrir mér I verslunum. Og
spurningin er, hvar get ég nálgast
hana? Og svo aö ég spyrji eins og
hinir: Hvernig erskriftin, og séröu
nokkuö út úr henni? Ég vona, aö
þetta birtist. Meö þakklæti,
S.G.
Það er ánægjulegt, að þú skulir
hafa svona gaman af Póstinum,
hann á nú einmitt að vera bæði til
gagns og gamans. Vélskólinn er
rétti aðilinn að snúa sér til i sam-
bandi við fróðleik um hvers konar
vélar. Þú fcngir sem sagt bestar
►
i
10 VIKAN 6. TBL.