Vikan - 06.02.1975, Síða 13
DAUÐA
DANS
IlÐNÓ
Þegar á reynir, leitar Allsa trausts hjá eiginmanni sinum. llelga og
Gisli.
Um jólaleytiö frumsýndi Leik-
félag Reykjavikur Dauöadans-
inn, sem ýmsir telja mesta sjón-
leik sænska skáldjöfursins
Augusts Strindberg. Sýningin
hefur hlotið mjög góða dóma
gagnrýnenda og leikhúsgesta og
gengur væntanlega út þetta leik-
ár.
August Strindberg fæddist i
Stokkhólmi árið 1849. Mörg
merkileg ritverk liggja eftir
hann, en Dauðadans skrifaði
hann um aldamótin, þá nýskilinn
við aðra konu sina og skömmu áð-
ur en hann kvæntist þeirri þriðju.
Hann var þá mikið samvistum við
systur sina og mág, sem áttu i
hjúskaparörðugleikum eftir 25
ára sambúö og höfðu reyndar
lengi verið i skilnaðarhugleiöing-
um. Hjónin i Dauðadansi eru ein-
mitt farin að hugsa til silfurbrúð-
kaupsins.
Strindberg varð sjálfur aldrei
hamingjusamur i einkalifi. Hann
var mjög hrifnæmur, vænti mik-
ils af öllum og barðist stöðugt við
vonbrigöi, sem hann kenndi um-
hverfinu. 011 þrjú hjónabönd hans
fóru út um þúfur. Helstu meist-
araverk hans eru lýsingar á kvöl-
um hjónabandsins, og ekki ber
hann konum vel söguna, þvi oft-
ast eru það þær, sem kvelja og
einskis svifast til að knésetja eig-
inmanninn. I Dauðadansi er hins
vegar um að ræða botnlaust
gagnkvæmt hatur og vélráö
beggja.
Dauöadans var sýndur i Iðnó
árið 1948 sem gestaleikur frá
Konunglega leikhúsinu I Kaup-
mannahöfn. Hlutverk Alisu og
höfuðsmannsins voru þá i höndum
Onnu Borg og Pouls Reumert, en
Mogens Wieth lék Kúrt.
Gisli Halldórsson leikur Eögar
höfuösmann i sýningu Leikfélags-
ins nú. Helga Bachmann fer með
hlutverk Alisu, og Þorsteinn
Gunnarsson leikur Kúrt sóttvarn-
arstjóra. Þóra Borg leikur gamla
konu, og Asdis Skúladóttir leikur
Jenný þjónustustúlku.
Helgi Hálfdanarson hefur þýtt
Dauðadans, leikstjórn annast
Helgi Skúlason, leikmynd er eftir
Steinþór Sigurðsson, Magnús Ax-
elsson sér um lýsingu, og búning-
ar eru eftir Steinþór og Björgu
ísaksdóttur.
Höfuðsmannshjónin stytta sér dauflegar stundir I kastaiaviginu með spilamennsku. Helga og Gisli.
Eðgar horfir hreykinn á blómvöndinn frá yfirmanni sinum. Helga, Þorsteinn og Gisli.