Vikan

Tölublað

Vikan - 06.02.1975, Blaðsíða 32

Vikan - 06.02.1975, Blaðsíða 32
eftir aö þau hófu biiskap, og sima- varslan var þvi i höndum Fjólu. 1 fyrstu annaöist h\ln simann ein, en þegar stööin stækkaöi, fékk hUn stUlkur sér til aöstoöar. Þegar Siguröur hætti til sjós, geröist hann hafnarvöröur jafnframt simstjórastarfinu. Hann lést fyrir þremur árum, og þá tók Fjóla viö starfi simstjóra. Skömmu síöar flutti stööin i nýtt hUsnæöi, sém Póstur og Simi byggöu meö Landsbankanum, og uppi yfir stööinni hefur Fjóla ljómandi ibUÖ. Þar býr hUn ein,. en sonur hennar er uppkominn og býr meö fjölskyldu sinni i Reykjavik. • — Já, fólkinu hefur fjölgað og Grindavfk breyst svo mikið á þeim tima, sem ég hef veriö hér, aö enginn myndi þekkja staöinn fyrir þann sama. Þegar ég kom hingaö, var engin byggö hér, þar sem simstöðin stendur nU, og finnst manni hUn þó vera inni i miöjum bæ. Efsta hUsið var KvenfélagshUsiö hér rétt fyrir sunnan. — t kreppunni stóö allt i staö, hafnarskilyröin voru léleg, og fólk flutti i burtu, þvi litil framtiö þótti i aö vera hér. En með bótum á höfninni snerist þetta smám saman viö, og á siöustu árum hafa margir flust að, enda at- vinna næg. Eftir aö vegurinn var bættur erum viö ekki nokkra stund aö bregöa okkur til Reykja- vikur eöa Keflavikur, og þangað getum við sótt þaö sem okkur sýnist. Við sækjum mikið til Reykjavikur, og það má segja, að þaö hái Grindavík að ýmsu leyti aö hafa Reykjavik svo nálægt. Fyrirtæki, eins og til dæmis sérverslanir, þrifast ekk.i hér, þvi fólk vill heldur skreppa til Reykjavikur, þar sem Urvaliö er nóg, ef þaö ætlar að kaupa fatnað, hluti til heimilis o.s.frv. — Nálægö Reykjavikur hefur staöiö Grindavik fyrir þrifum að fleiru leyti. Maöur þorir varla aö minnast á menninguna margum- ræddu, hélt Fjóla áfram og kimdi, — en það er staöreynd, aö þaö er ekkert fyrirtæki aö skreppa eitt kvöld til Reykjavikur I leikhUs, kvikmyndahUs, á veitingahUs, sýningu eða annaö, sem þar er boöiö upp á. Það er þvi eölilegt, aö fólk sæki þangað, sem fjöl- breytnin er. Aöur fyrr, meöan samgöngur voru erfiöari, vegurinn slæmur og bilaeign ekki almenn, horföi þetta ööruvisi við. Ég minnist þess sérstaklega, aö á haustin á kreppuárunum, þegar sumarvinnu var lokiö og vertiö ekki byrjuð, var oft litiö viö aö vera, og þá stóö kvenfélagið fyrir leiksýningum, þar sem flutt voru stór verk eins og Skugga-Sveinn og Æfintýri á gönguför. Ég get ekki lagt neitt listrænt mat á flutnmginn, en allir skemmtu sér konunglega, og þetta var alltaf mikill viöburöur. Fjóla á sjálf bil og bregður sér til Reykjavikur og um lands- byggöina, þegar henni dettur i hug og starfiö b'indur hana ekki. HUn skreppur einnig ööru hverju til vltlanda, bæöi til aö hitta vini i Englandi og Danmörku og einnig til suölægari landa — og á einum veggnum I stofunni var mynd frá Feneyjum, sem hún hafði keypt þar s.l. sumar. En til Grindavikur kemur hún alltaf aftur. Þar á hún ,sitt heimili, og þar er hennar lifs- starf. Þegar taliö barst aö þvi, hvort henni heföi ekki fundist umhverfiö I Grindavik fábreyti- legt þegar hún kom af Snæfells- nesinu, þar sem náttúrufegurö er rómuö, sagöi hún: — Mér fánnst heldur tilkomu- litiö hér, þegar ég kom. En þetta breytist, þegar maður fer að kunna við sig. Ef manni liður vel og maður á góða vini, fer manni aö þykja vænt um umhverfiö og hættir aö velta þvi fyrir sér, hvort þaö sé fallegt eöa ljótt. Þannig hefur það veriö meö mig hér I Grindavik. Þ.A. helsta Júdóið er stolt okkar Viðtal við Gunnar Tómasson, formann Ungmennafélags Grindavikur. Ungmennafélag Grindavikur var stofnaö áriö 1963 og hefur einkum beitt sér fyrir iþróttaiðk- unum, enda er þaö nokkurs konar arftaki Iþróttafélags Grindavik- ur, sem stofnaö var áriö 1935 og starfaöi fram undir 1960. Núver- andi formaöur félagsins er Gunnar Tómasson, og viö fórum á fund hans -til aö spyrjast nánar fyrir um starfsemi félagsins. — Félagar eru nú nokkuö á fjóröa hundraöiö, og flestir taka þeir þátt i flokkalþróttum, knatt- spyrnu, handkna111 e i k, körfuknattleik og júdó. Virkustu félagarnir eru á aldrinum tiu til fimmtán ára, og þaö stafar einkum af þvi, aö hér er ekki skóli fyrir ungt fólk aö stunda eftir aö þaö hefur lokiö skyldunámi. Þeir unglingar, sem stunda lengra nám, veröa aö leita út fyrir bæ- inn. Flestir fara i heimavistar- skóla úti á landi, og vinsælustu skólarnir eru á Laugarvatni, i Reykholti og Reykjanesi. Sumir fara enn annaö, til dæmis aö Skógum og Núpi I Dýrafiröi. Þetta hefur staöiö starfsemi ung- mennafélagsins nokkuö fyrir þrifum, þvi að bæöi er, aö hingaö koma ekki allir aftur, og eins koma þeir aftur heim eftir misjafnlega langan tima. Þetta stendur öllu félagslifi hér mjög fyrir þrifum. — Hvernig er aöstaöa ykkar til æfinga og þjálfunar? — Hún er ekki nærri nógu góö. Innanhússaöstöðu höfum viö ekki nema I iþróttahúsi skólans, sem er aö visu knattspyrnuvöllur, sem er mikiö notaöur á sumrin, en að- staöa til annarra iþróttaiökana er svo til engin. Hér er enginn frjáls- iþróttavöllur og enginn sparkvöll- ur. A veturna höfum viö oröiö aö leita mikiö út fyrir bæinn til æf- inga, bæði til Reykjavikur og til nágrannabyggöanna. Þetta er timafrekt og erfitt og á allan hátt miklu óhaganlegra en ef aöstaða væri góö hér á staönum. — Hafiö þiö sent flokka i keppni? — Já, viö höfum gert nokkuð af þvi. Til dæmis keppum viö núna i 2. deild Islandsmótsins i körfuknattleik, unnum okkur nýlega upp úr 3. deild. Annars er júdóiö helsta stolt okkar. Haustiö 1973 sigraöi flokkur frá okkur Reykjavikurúrvaliö I júdó meö 144 stigum gegn 78. Þetta vakti allmikla athygli á sínum tima. Ég man aö einhver sagöi eftir keppn- 32 VIKAN 6. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.