Vikan

Issue

Vikan - 06.02.1975, Page 36

Vikan - 06.02.1975, Page 36
<nema að skyldustörf kæmu í veg fyrir það. HUn var farin að hlakka til heimsókna hans, en aldrei minntust þau á Bryne eöa hjóna- band hennar, nema þegar Philip spurði hæversklega hvort hún hefði nokkuð heyrt frá honum. Hún hristi ávallt höfuðið. Veörið batnaði með hverjum degi og nú var komið hásumar, svo þaö var nauðsynlegt að draga gluggatjöldin fyrir i öllu húsinu, meðan heitast var á daginn. Flora var orðin alveg læs, svo að Sara fór að snúa sér að frekari menntun hennar. Scru fannst kennslustundirnar skemmtilegasti hluti dagsins, fyrir utan daglegar heimsóknir Philips, en hún naut lika þeirra stunda, þegar hún gat setið i skugganum og horft á börnin aö leik. Lucy var ekki mikill félags- skapur. Slðan hún losnaði viö skyldustörfin i sjúkraherberginu, var hún farin að liggja i leti, fór seint á fætur og flæktist um hús- iö, án þess aö geta fundið sér nokkuð til dundurs. Þar sem hún gerði ekki neitt, til að hafa ofan af fyrir sér, fann hún allt að öllu og kom oft leiöindum af stað og á- sakaöi Bryne stöðugt um það, þótt hann væri fjarverandi, aö þeim skyldi aldrei vera boðið neins staðar, þar sem eitthvað var um að vera. Það reyndi oft á þolinmæði Söru, að hlusta á þetta nöldur hennar og að umbera framkomu hennar. Oft á dag varö hún að minna sjálfa sig á, að Lucy hafði staðið sig vel, meðan á sjúkdóms- legu hennar haföi staðið og að hún væri nú lika afskipt, ætti enga jafnaldra kunningja og það hlaut að taka á svo fjörmikla stúlku sem Lucy var. Fréttir frá striðinu bárust dag- lega til borgarinnar. Það höfðu orðiö talsverð átök við landamær- in, bæði viö Niagara og Detroit árnar, en ekkert alvarlegt skeði þó, fyrr en bresku hersveitirnar gerðu árás á Detroit-virkiö. Sara sat I stól I garðinum með skemil undir fótum, þegar Philip kom og sagði henni fréttirnar, að Detroit virkið heföi veriö tekið. — En það er ekki allt, sagði hann og settist i grasið viö hliö hennar. — Bandarisku hersveit- irnar hörfuöu frá Dearborn-virk- inu og voru hreinlega þurrkaðar út af indlánum. Hún lokaði augunum andartak, eins og til aö má þessa mynd úr huga sér: Hundruðir vopnaðra indiána, sem börðust undir bresk- um fána, ákveðnir I að halda þeim veiöilöndum, sem ennþá voru ekki i höndum óvinanna. Hvar var Bryne, i öllum þess- um ósköpum? Hann hvarf aldrei úr huga hennar. — Braggarnir við Newark eru notaðir sem bráðabirgða sjúkra- hús, hélt Philip áfram, — en þeir, sem eru minna særðir og i aftur- bata, eru sendir hingað til her- stövarinnar til hjúkrunar. Það er hræðilegur þessi skortur á sjúkrahúsi i borginni! Ég hef ver- ið beöinn um aö hjálpa og ég geri allt til að koma upp einhverjum hjálparstöðvum til bráöabirgöa. — Get ég gert eitthvaö? spurði Sara áköf. — Það er til svo mikið af léreftslökum I þessu húsi, ég gæti sem best látið rista þau niður i sárabindi. — Það yrði mikil hjálp, þaö verður ekki lengi að ganga á þær birgðir sem fyrir eru. Svo varð þögn um stund. — Þú ættir að komast i samband viö konurnar i borginni til að fá þær til samvinnu viö þig! Sara sneri sér snögglega við. — Þú veist aö hingað vill enginn koma, sagði hún lágt, stóö upp úr stólnum og gekk nokkur skref á- fram. Philip gekk á eftir henni og greip i hana til að snúa henni að sér. — Þá veröur þú aö gera eitt- hvað til aö það breytist. Þú ert búin að ná fullri heilsu og þú hefur ekki gott af þvi, að vera svona mikið ein. Þú ert ensk, meira aö segja fædd i Englandi, það getur enginn efast um föðurlandsást þina. Ef þú heföir verið annars hugar, þá heföir þú fariö með Bryne I burtu. Sendu þeim einhver boösbréf. Ég hugsa aö þú verðir ekkert vonsvikin yfir við- brögðunum. Það birti yfir ásjónu hennar. — Þú gerir mér glatt i geöi. Það væri lika gott fyrir Lucy, aö fá eitthvað til aö hugsa um. Hún er i mikilli þörf fyrir einhvern félags- skap. — Ég er nú aö hugsa um þig, ekki hana, svaraöihann. — Þú ert harðplast. Ný áferð, nýr blær, sænsk vara í sérflokki, sterkasta eldhúsharðplastið- og fallegasta. Harðviðarsalan sf. Grensásvegi 5, Reykjavík sími 85005 & 85006. Krahba- merkift Hrúts merkiö 21. marz — 20. aprll Þú sökkvir þér niður I vinnu, þegar vanda- málin heima fyrir vaxa þér yfir höfuð. Athugaðu, að það er engin lausn á vandan- um, aðeins flótti og býður einungis heim fleiri og torleystari vandamálum. Nauts- merkið 21. april — 21. mai Reyndu að finna svar viö spurningunum, sem á þig leita. Þú finnur svörin á endan- um, þó að þér reynist kannski erfitt að átta þig á þeim. Þau er nefnilega aö finna, þar sem þér datt sist i hug. Tvibura- merkið 22. mai — 21. júni Þú kemst ekki upp með það að slá slöku við vinnuna og það veitir þér héldur enga ánægju. Taktu þig á. Vertu þakklátur öllum þeim, sem segja þér til. 22. júni — 23. júli Þú hefur svo mikiö að gera, aö þú sérö á eng- an hátt fram úr þvi. Þegar eitt verkefni er leyst, biöur þin annaö. Taktu þér fri I eins og einn dag. Þú þarft svo sannarlega á þvi að halda. Ljóns merkið 24. júil 24. ágúst Misstu ekki móðinn, þó að eitthvað bjáti á á vinnustað. Þú hefur I fullu tré viö vandann, sem þú þarft að kljást við, og þarft ekki að bera neinn kviðboga fyrir framtiðinni. Meyjar merkið 24. ágúst — 23. sept. Þú brýtur allar brýr að baki þér og hverfur frá kyrrlátu starfi i annað, þar sem alltaf er mikið um aö vera. Og þú stendur þig miklu betur en þú þorðir að gera þér vonir um. 36 VIKAN 6. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.