Vikan - 13.02.1975, Blaðsíða 8
þetta og vakti Oliver. Nú kemur
eitthvaö hræöilegt fyrir, sagöi
hann, þegar ég haföi sagt honum
drauminn. Og um leiö sáum viö
andliti önnu Kristinu bregöa
fyrir.
Morguninn eftir bárust okkur
þær fregnir, aö Anna Kristina
væri dáin. Hún varö ekki nema 37
ára. Friöur sé með henni....
Vesalings Nikolai. Hann stóð
einn uppi meö sjö drengi. Sá elsti
var 15 ára og sá yngsti ekki nema
18 mánaöa. Báðar fjölskyldur
okkar voru eins og lamaöar. Viö
höfðum oft áöur fengið andláts-
fregn, en aldrei neina, sem kom
eins illa viö okkur.
Ég leit á Oliver, og hann leit á
mig. Við sögum ekkert, en viö
höfðum bæöi tekiö ákvöröun. Viö
tökum að okkur fimm af börnum
Önnu Kristinu og Nikolais.
Þetta geröist i kringum 1930, og
10 árum slðar, þegar sigauna-
drottningin var 48 ára, dó ein
dætra hennar og lét eftir sig
tveggja ára stúlku. Aftur varð
Marie að taka að sér smábarn.
Frida Marie ólst upp hjá ömmu
sinni og afa.
Úrvalsvörurnar frá Marks & Spencer
fást í Gefjun Austurstræti,
Domus Laugavegi 91.
og hjá kaupfélögum um land allt.
Fatnaöur á alla fjölskylduna.
Vörurnar, sem eru þekktar og rómaðar
um víöa veröld.
Framleiddar undir strangasta gæðaeftirliti
m
■*. MsSs'í:
41
tM
H /yXv
íz/z/'éKfí
'h/ Z' /■ //
■ '
Z/ Z/yZZ'
Samband íslenzkra samvinnufélaga
Innflutningsdeild
Sambandshúsið Rvík sími28200
— Auövitað hef ég átt viö ýmis-
legt að striöa, en þegar ég lit yfir
farinn veg, finnst mér ég hafa átt
góða ævi. En það hefur oftar en
einu sinni verið erfitt aö vera si-
gauni.
Við sigaunarnir lærum
snemma að vera þolinmóöir, þvi
að það kom oft fyrir, og kemur
fyrir enn, að viö uröum aö aka
eftir þjóðveginum klukkustund
eftir klukkustund, langt fram á
nótt, áður en við rákumst á hlöðu,-
þar sem við fengum að liggja yfir
nóttina. Og á veturna var allt of
kalt til þess að liggja i hlööum.
Það er kjöt og blóð i okkur
sígaununum eins og öðru fólki, og
við hefðum frosið i hel i
hlöðunum.
Við uröum alltaf að vera á
varðbergi, þvi að stöðugt var
hætta á þvi, að ráðist yrði á
okkur.
Sigauni er aldrei öruggur. Við
erum alltaf hrædd og alltaf á
verði. Þetta ölumst við upp við
frá blautu barnsbeini. Alltaf á
verði...
Liklega var það af ótta, að við
sváfum mjög sjaldan i tjöldum.
Við kusum fremur að sofa undir
berum himni með greni breitt yfir
okkur. Og við sváfum alltaf
fullklædd, tilbúin að flýja.
Ég býst við, aö allir sigaunar
hafi sömu sögu að segja.
Slgaunar hafa alltaf og ævinlega
orðiö fyrir áreitni og hafa aldrei
hætt flóttanum frá þvi þeir voru
reknir út úr Indlandi fyrir mörg-
hundruð árum. Það gerðu
striðsmenn, sem komu ofan úr
fjöllunum. Alla tið siðan hefur
ættflokkurinn flakkaö um án þess
að hafa fastan samastaö.
Það kom meira að segja fyrir,
að á ökkur var ráðist um hábjart-
an dag.
Þegar Johan Alexander var fá-
einna mánaða, réðist á mig
maður, þar sem ég var að elda
mat utan við tjaldið okkar.
Þessi maður reyndi að nauðga
mér, en ég var liðug eins og
köttur og tókst að losa mig.
Svipan hans Olivers lá inni i
tjaldinu. Ég náði til hennar og sló
manninn með svipuskaftinu beint
i andlitið, svo að blóðið fossaði úr
nefinu á honum.
Það kemur enn fyrir, að ég sef i
öllum fötum. Og ég sofna aldrei
fast. Ég vakna við minnsta hljóð
og er dauðhrædd....
Þegar sigaunadrottningin var
spurð um álit sitt á stöðu sigauna
i norsku þjóðfélagi, svaraði hún:
— Ég held, að sigaunar séu ekki
verra fólk en gerist og gengur. En
það er augljóst, að þó að hægt sé
að refsa sigauna samkvæmt
norskum lögum, þá hefur sigauni
litla vernd af þessum sömu
lögum. Það er svo auðvelt að slá
til þeirra, sem liggja vel við
höggi, og það hefur ætið verið
auðvelt að niöast á sigaunum.
Við sigaunarnir erum ekki
fjölmennir i Noregi, ætli við séum
fleiri en svona átta til tiu þúsund I
allt. Og okkur vantar
forsvarsmenn til þess að tala
máli okkar á stórþinginu og i
byggðastjórnunum. Við getum
ekki leitað til neins, og enn þann
dag i dag erum við rekin i burtu af
tjaldstæðum, þó að við högum
okkur á allan hátt eftir settum
reglum og oft betur en aðrir.
En það má ekki misskilja
gamla sigaunakerlingu. Ég ber
engan haturshug til samfélags-
ins. Mér hefur alltaf liðið vel, og
ég hef alltaf séð um mig eins og
allir sigaunar. Ég hef aldrei tekið
viö svo mikið sem túskildingi frá
nokkrum einasta manni, og ég
ætla að sjá um mig sjálf á meöan
ég tóri, hver gömul sem ég kann
aö verða.
8 VIKAN 7. TBL.