Vikan - 27.05.1976, Síða 4
samheldni geti ríkt í fullum mæli innan hans.
Vafalaust hefur Sigurður gert sér þetta að fullu
Ijóst, þvísamheldni og góður félagsndi hafa þar
verið í fyrirrúmi. Þar var hann sjálfur ávallt
forystumaður, sem og í daglegri þjálfun kórsins
sem heildar.
Meiraerfólgiðíþjálfunslíkskórsenaðeinsþað
að stjórna samæfingum hans. Hver einstakling-
urþarfsínasérþjálfun í randdbeitingu, tónfræði
og nótnalestri, jafnt eins og í blöndun raddar og
persónuleika við aðra félaga. Og eitt enn: hver
einstaklingur þarf að hafa ódrepandi áhuga á
kórnum og vera tilbúinn að fórna honum sínum
frístundumjafnt semfjármunum,svohann megi
dafna.
Þetta þrotlausa starf kórfélaga hefur á
undanförnum árum orðið landinu til geysimikill-
ar kynningar og frama og sýnt umheiminum
framá, að íslendingar geta fleira en dregið þorsk
eða forðað sér frá eldgosum.
Kórinn hefur víða farið á erlendri grund og
haldið um 150 hljómleika til að halda uppi nafni
lands okkar í 4 heimsálfum og verður það seint
fullþakkað, því vafasamt er að önnur jafnmikil
landkynningarstarfsemi eða áhrifamikil hafi
verið unnin, auk þeirrartónlistar og tónmennta,
sem þjóðin sjálf á þessum áhugamönnum að
þakka.
Sigurður Þórðarson var söngstjóri kórsins í 36
ársamtals, eðatil ársins 1962, og vann allt það
mikla og gifturíka starf sem áhugamaður í
hjáverkum síns lífsstarfs sem skrifstofustjóri hjá
Ríkisútvarpinu. Það er fyrst og fremst þetta
áhugamannsstarf, sem honum verður á ókomn-
um tímum þakkað fyrir. Greiðsla til hans kom
aldrei til, enda var starf hans ómetanlegt í
fjármunum.
Karlakór Reykjavíkur hefur borið gæf u til að fá
annanstjórnandaeftirdag Sigurðar, sem heldur
áfram hinu gifturíka starfi hans með góðum
árangrioghefuráöllumsviðumsýntþann áhuga
ogkunnáttu,semtilvarstofnað, enþaðerPáll P.
Pálsson, sem af listfengi og festu hefur stjórnað
kórnum undanfarinn áratug.
STOFNENDUR KARLAKÓRS REYKJAVlKUR
f. röö (frá vinstri) Skú/i Thorarensen útgerð-
arm., Pétur Lárusson skrifstofum., Skúli
Ágústsson dei/darst/., Jóhannes L. Jónasson
kennari, Sigurður Þórðarson söngstjóri, Arre-
boe Clausen, /istmá/ari, Guðm. Kr. Guöm.son
hótelstj., Bjarni Eggertsson lögreglum., Jón B.
Helason kaupm.
2. röð: Stefán Stephensen kaupm., Georg
Gunnarsson skrifstofum., Helgi Eiríksson
bankastj., Karl Jónasson, Ágúst Böðvarsson
forstj., Einar Guömundsson stórkaupm., Karl
Guðm.son útskuröarm., Lárus Hansson skrif-
stofum., Sigurður Samsonarson skrifstofum.
3. og4. röð: Pétur Þorgrfmsson skrifstofum.,
Mekkinó Björnsson kaupm., Kristján Daðason,
Jónas Magnússon kennari, Nieljónlus Ó/afsson
skrifstofum., Oddur Bjarnason skósm., Ólafur
Friöriksson skrifstófum., Daníel Þorkelsson
málaram., Kristinn Friöfinnsson málari, Davfð
Árnason útvarpsvirki, Sveinn G. Björnsson
póstfu/ltrúi, Þorsteinn /ngvarsson bakaram.,
Friðrik Guöjónsson skrifstofum., Ásgeir Jóns-
son skrifstofum., Axel Guðmundsson skrif
stofum., Pétur kristjánsson kaupm., Siguröur
Ingimundarson iðnaðarm., Guðmundur Þor-
steinsson gullsm., Hallgrlmur Sigtryggsson
skrifstofum.
4 VIKAN 22. TBL.