Vikan

Issue

Vikan - 27.05.1976, Page 5

Vikan - 27.05.1976, Page 5
Sigurður Þórðarson og Stefán is/andi við kom- una til New York í söngför kórsins um Banda- ríkin 1946. Árið í ár er, eins og fyrr er sagt, 50 ára afmælisár Karlakórs Reykjavíkur, og verða í því tilefni haldnir tónleikar á „Norrænu músíkdög- unum" í júní, þar sem kórinn mun flytja verk norska tónskáldsins John Persen, samin sérstaklega fyrir kórinn, ásamt fleiri verkum nútíma sænskra tónskálda. Síðar í haust mun kórinn flytja ásamt Sin- fóníuhljómsveit íslands hátíðarmessu Sigurð- ar Þórðarsonar heitins, sem Atli Heimir Sveinsson er nú að setja út fyrir hljómsveit. Þá vinnur kórinn einnig að útgáfu á 14 lögum eftir Sigurð Þórðarson, sem gefin verða út á hljómplötu. Dagana 27., 28. og 29. maí verða mikil hátíðarhöld á vegum kórsins, en þá haida erlendir kórar hér hljómleika fyrir styrktarfélaga kórsins, sem að jafnaði eru um 1600 til 1700 talsins. Þessir kórar eru: Muntra Musikanter frá Helsingfors í Finnlandi, Guldberg Akademiske kor frá Osló í Noregi og Norwegian Singing Society frá New York í Bandaríkjunum. Allir þessi kórar munu halda sjálfstæða tónleika hér, bæði í Reykjavík og utan. Vikan óskar kórnum til hamingju með afmælið, þakkar honum niikið starf fyrir land og þjóð í 50 ár og óskar honum velgengi í allri framtíð. KARLSSON. Kar/akór Reykjavíkur / sjónvarpssa/ 1973.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.