Vikan - 27.05.1976, Blaðsíða 5
Sigurður Þórðarson og Stefán is/andi við kom-
una til New York í söngför kórsins um Banda-
ríkin 1946.
Árið í ár er, eins og fyrr er sagt, 50 ára
afmælisár Karlakórs Reykjavíkur, og verða í því
tilefni haldnir tónleikar á „Norrænu músíkdög-
unum" í júní, þar sem kórinn mun flytja verk
norska tónskáldsins John Persen, samin
sérstaklega fyrir kórinn, ásamt fleiri verkum
nútíma sænskra tónskálda.
Síðar í haust mun kórinn flytja ásamt Sin-
fóníuhljómsveit íslands hátíðarmessu Sigurð-
ar Þórðarsonar heitins, sem Atli Heimir
Sveinsson er nú að setja út fyrir hljómsveit.
Þá vinnur kórinn einnig að útgáfu á 14 lögum
eftir Sigurð Þórðarson, sem gefin verða út á
hljómplötu.
Dagana 27., 28. og 29. maí verða mikil
hátíðarhöld á vegum kórsins, en þá haida
erlendir kórar hér hljómleika fyrir styrktarfélaga
kórsins, sem að jafnaði eru um 1600 til 1700
talsins. Þessir kórar eru: Muntra Musikanter frá
Helsingfors í Finnlandi, Guldberg Akademiske
kor frá Osló í Noregi og Norwegian Singing
Society frá New York í Bandaríkjunum.
Allir þessi kórar munu halda sjálfstæða
tónleika hér, bæði í Reykjavík og utan.
Vikan óskar kórnum til hamingju með
afmælið, þakkar honum niikið starf fyrir land og
þjóð í 50 ár og óskar honum velgengi í allri
framtíð. KARLSSON.
Kar/akór Reykjavíkur / sjónvarpssa/ 1973.