Vikan - 27.05.1976, Page 20
SKILABOÐ
FRÁ
ABSALOM
Hún settist hægt upp viö
endann á borðinu. Herbergið
dansaði fyrir augum hennar.
„Ekki flýta þér svona, stúlka
litla. Nú er komið að Ed gamla.”
Súsanna reyndi að standa upp,
en hrasaði. Svimi yfirbugaðihana.
Snerting Elberts kom henni til að
reyna að standa;Upp aftur.
„Láttu mig vera,” tautaði hún
með erfiðismunum. Hann kom
aftur til hennar og þrýsti henni
upp að veggnum. Súsanna snéri
andlitinu frá honum. Þetta var
óþolandi, hræðilegt. En hún var
veikburða eins og kettlingur. Ef
aðeins hún gæti hugsað skipu-
lega. Ef aðeins hana ekki svimaði
svona.
Hann reyndi að kyssa hana og
snéri upp á úlnliði hennar, þegar
hún snéri höfðinu. Hún færði sig
örlítið til, og þegar Elbert gerði
það sama, sparkaði hún í hann
með hnénu, svo að hann varð að
færa sig til hliðar.
Þetta gaf henni örlítið athafna-
frelsi. Hún fann, að skórnir hföðu
verið teknir af henni, en hún
reyndi þó að sparka til hans.
Þegar hann vék sér undan og
sleppti hendi hennar, sló hún
hann með flötum lófanum í and-
litið og stökk að dyrunum.
Elbert varð á undan henni og
lokaði þessari undankomuleið
með líkama sínum. Hann
nálgaðist hana hægt, og augu
hans glömpuðu. Bardaginn æsti
hann aðeins enn meira upp.
Full örvæntingar leitaði hún að
skónum, eða einhverju öðru, sem
nun gæti notað sem vopn gegn
honum. Hún fann ekkert. Hún
gekk að glugganum og leit út. Það
voru minnst tuttugu fet niður á
klettana. Þá kom Elbert aftur.
Súsanna gekk til hliðar, en
hann náði taki á blússunni
hennar, og hún féll niður ásamt
honum. Höfuð Súsönnu skall í
vegginn, þegar blússan rifnaði.
Hnappur félí á gólfið. Súsanna
var næstum meðvitundarlaus.
Kæfandi þyngd hans örvaði
mótþróa hennar. Hún barðist urh.
Þegar hann reyndi aftur að kyssa
hana, beit hún í vörina á honum.
Blóðið fossaði úr sárinu. Hann
rak upp sársaukavein og greip um
munninn.
Súsanna rak hnefann í maga
hans. Hann stundi og færði sig.
Hún ýtti honum frá sér og stóð
upp. Rifin blússan hékk á öxl
hennar og tafði. hana. En hún
stansaði ekki.
Elbert rúllaði sér yfir gólfið, og
þegar hún kom að dyrunum,
Elbert velti sér yfir gólfið, og
þegar hún kom að dyrunum, náði
hann taki á ökkla hennar og dró
hana niður. Hún féll beint á
andlitið, allt loft pressaðist úr
lungum hennar, og hún barðist
við að halda meðvitund. Elbert
kom aftur að henni, í
örvæntingarfullri þögn reyndi
Súsanna að skriða í burtu, en
hann var sterkur eins og naut.
Hann sló hana fast þvert yfir and-
litið, og baröi höfði hennar við
gólfið. Hún heyri braka í tönnun-
um, og blóð rann niður kinn
hennar. Allt í einu blindaðist
hún.
Nú SfiSrist bardaginn upp i
blinda einbeitni. Ekki að gefast
upp. Ekki að gefa neitt eftir.
Berjast svolítið lengur. Ef kona
var nógu ákveðin. var ekki hægt
að nauðga henni. Hún hafði oft
heyrt það. En Elbert var svo stór.
Svo þungur.
Súsanna gerði síðustu til-
raunina til að slíta sig lausa.
Hún losnaði svo auðveldlega, að
hún missti jafnvægið og féll aftur
fyrir sig.
Þá sá hún, hvað hafði gerst.
Azarov var komin.
Azarov þreif í Elbert. Fyrir-
litningin skein úr augum hans.
Hann sló Elbert tvisvar yfir
munninn með flötum lófanum og
dró hana síðan að dyrunum eins
og óþægan skólastrák.
„Gjörið þér svo vel frú Elbert,”
sagði hann kurteisislega.
Imogen Elbert svaraði ekki.
Augu hennar — stór, brún og
bitur — hvíldu augnablik á
Azarov. Síðan snéri hún sér
undan. Hún leit ekki á eiginmann
sinn, sem gekk niðurlútur á eftir
henni. Azarov lokaði dyrunum
hljóðlega og snéri sér við.
Súsanna lá hreyfingarlaus á
gólfinu. Hún hafði ákafan ekka,
og hnýttar hendurnar huldu
andlit hennar. Hún var alblóðug.
Hann stóð augnablik og starði á
hana. Síðan gekk hann hægt til
hennar og beygði sig niður að
henni.
„Súsanna.”
Hún hrökk frá honum. „Nei."
„Eg skal ekki meiöa þig
Súsanna.”
„Nei. Farðu. 1 guðs bænum.
Láttu mig í friði.”
Hann tók höndina af öxl
hennar og reyndi að skoða sár
hennar undir rifinni blúsunni, en
það var of dimmt. Hann stóð
hljóðlega upp og yfirgaf her-
bergið.
Smellurinn, sem heyrðist,
þegar dyrnar lokuðust, vakti
Súsönnu af dvalanum. Hægt,
hægt stóð hún upp og þreifaði
titrandi eftir skónum, sem hún sá
f einu horninu. Síðan haltraði hún
að dyrunum og opnaði þær.
Hundur Azarovs, Ivan, lá
framan við dyrnar. Hann lyfti
hausnum og leit á hana.
Súsanna gekk kringum hann.
Hann stóð strax upp og gekk í veg
fyrir hana. Með augum á dýrinu.
reyndi hún að mjaka sér framhjá.
Hann reigði höfuðið og sperrti
eyrun. Hundurinn var vægast
sagt grimmdarlegur. Hann hafði
sínar skipanir frá Azarov, og
hann ætlaði sér auðsjáanlega ekki
að leyfa henni að fara. Martröð-
inni var ekki lokið.
Örvæntingarfull fór hún til
baka. I þessu auða litla herbergi
voru engir felustaðir. Lítið dýr
hreyfði sig, og hún hrökk við með
ákafan hjartslátt. Síðan varð allt
hljótt. Hún beið eftir fótataki
Azarovs og faldi sig i skugganum
bak við hurðina með skó í hend-
inni.
Hún þurfti ekki að biða lengi.
Rússinn nálgaðist, með málm-
kassa og tvö kerti í hendinni.
Ilann skildi hundinn eftir fyrir
framan dyrnar, lokaði þeim og
gekk að borðinu. Um leið og hann
snéri í hana bakinu, gerðist
Súsanna tilbúin til árásar með
skóinn í hendinni.
Það kviknaði á eldspýtu,. og
Azarov kom auga á hana. Súsanna
stansaði, dáleidd af augnaráði
hans. Þá kveikti hann á kertunum
og festi þau í vaxinu, sem bráðnað
hafði á borðinu. Súsanna hrökkl-
aðist til baka, þegar hann lagði af
stað í átt til hennar. Hann leit
ékki einu sinni á skóinn, sem hún
righélt á. Andlit hans var alveg
svipbrigðalaust.
„Leyfðu mér að sjá, hvað hann
gerði þér.”
Súsanna hreyfði sig ekki.
„Það blæðir úr sárum þínum,
og gólfiö hér er ekki hreint. Þú
verður að forðast blóðeitrun.
„Hann tók upp bómull og grisju.
Súsanna leit í kringum sig. Hún
sá, að herbergið var mjög óhreint,
og nú fann hún óþefinn lika, sem
stafaði af raka og fúa. Hendur
hennar voru blóðugar og negl-
urnar rifnar. Hún gekk hægt að
kertaljósunum. Augu hennar
voru dökk af sársauka og
hræðslu.
Azarov rannsakaði hana
nákvæmlega. Andlit hans var
alvarlegt og áhyggjufullt. Hann
snéri vanga hennar að ljósinu.
„Er þetta blóð allt úr þér, eða
er eitthvað úr honum?” Hann
byrjaði að strjúka það af með
grisju. Hendur hans voru mjúkar
og kunnáttusamlegar.
„Honum,” hvíslaði hún loksins.
„Ég mátti vita það. Farðu úr
blússunni, og leyfðu mér að lita á
bakið á þér.”
Súsanna hikaði. En hann snéri
baki í hana og starði á kertin.
Hægt renndi hún blússunni niður
af öxlunum. Hún var öll rifin og
tætt. Oánægð leit Súsanna niður á
sjálfa sig. Pilsið var krumpað og
rifið, og öll var hún marin og
óhrein.
Azarov tók af henni ónýta
blússuna, og kastaði henni í gólf-
ið. Þegar hann siðan snéri sér að
Súsönnu, greip hann andann á
lofti og stansaði.
Hún var í dimmbleikum undir-
kjól úr blúndu. Þvert yfir brjóstin
voru langar, illilegar rifur á húð-
inni. Hendur hans titruðu, og
hann missti tappann af sáravatns-
flöskunni.
Biin leit spyrjandi á hann, og
hann herpti saman varirnar.
Ilún lagði hendurnar yfir
brjóstin.