Vikan - 27.05.1976, Side 27
1
í ár hafa tískufrömuðir Parísar-
borgar leitað um allan hnöttinn
eftir hugmyndum til að skapa
vortískuna.
Á tlskusýningum vorsins mátti
líta afríkanska höfðingjabúninga,
indverskar mússur, tyrkneskar
kvennabúrsbuxur, sígaunapils,
kaþólskar kardlnálakápur. Og
þjóðbúningar fjarlægra þjóða lifa
nú sitt blómaskeiö. Þessi æöis-
gengna leit eftir hugmyndum frá
fjarlægum löndum sýnir kannski,
að vesturlöndin viröast eiga erfitt
með að finna sjálfstæðan stll.
Tlskan sýnir ekki aðeins mis-
munandi pilssíddir og litabrigði frá
ári til árs, heldur endurspeglar hún
líka það þjóöfélag, sem við lifum í,
og breytingar þær, sem í því
verða.
Vorið og sumarið '76 virðist
ætla að verða ár randanna, lang-
röndótt og þverröndótt fyrir allar
stærðir og geröir manneskja, sem
leggja á sig að fylgja hinni duttl-
ungafullu tlsku frá ári til árs.
Síddin: rétt fyrir neðan hné.
Litir: rautt, blátt, gult, grænt og
lillablátt.
Munstur: rendur og aftur rendur.
Pilsin: bein- mörg hneppt niður aö
framan, fellt eða þröng með háum
klaufum í hliðum.
a
TONINN
Jakkar: léttir anorakar eða vind-
jakkar.
Kjó/ar: einfaldir og beinir með
kimonoermum eða I sniðinu eins
og síðar skyrtur.
Buxur: þröngar skálmar I öllum
síddum.
. VIKAN 27