Vikan - 21.10.1976, Qupperneq 18
Eflaust muna einhverjir eftir því,
að ég prófaði Yamaha M.R. 50 cc
torfæruhjól fyrir skömmu. Nýlega
var mér boðið að prófa Yamaha 50
cc götuhjól, og þáði ég það að
sjálfsögðu.
Þótt þessi tvö hjól séu mjög ólík
eiga þau margt sameiginlegt, eins
og til dæmis mótorinn, sem er
49 cc. En til þess að komast í
skellinöðruklassann’þarf að inn-
sigla þau í 2,5 hestöfl. 5 gíra gír-
kassi er líka á þessu hjóli, og vélin
MMUfM
v
sér sjálf um að blanda olíu og
bensíni saman.
Það vakti einna mesta athygli
mína, að diskabremsa er á fram-
hjólinu og með vökvadælu, sem
gerir það að verkum, að fram-
bremsan er alls ekki eins hættuleg
fyrir viðvaninga og verkar þar að
auki frábærlega vel.
Ég prófaði hjólið eingöngu í
bænum, því það er gert fyrir
venjulega götukeyrslu. Aksturs-
eiginleikar hjólsins eru góðir, og
það liggur mjög vel á vegi, jafnt í
beygjum sem á beinum vegi. Á
malarvegi er hjólið gott í akstri og
læturvel aðstjórn.
Það á jafnt við um þetta hjól og
torfæruhjólið, að gírahlutfallið í
gírkassanum er eins og best
verður á kosið, svo krafturinn
nýtist sem allra best.
'I innanbæjarkeyrslu er hjólið
Hraðamælir og snúningshraða-
mælir eru á Yamaha 50 cc. Til
hægri má sjá áfyllingu og dælu
fyrir bremsuna á framhjólinu.
18 VIKAN 43. TBL.