Vikan - 21.10.1976, Side 37
ILUR MIG EKKI
ég að ég elski meira en allt annað I
heiminum. Ég er reyndar með
mynd af þeim hérna.
— Já, þetta efu allra myndar-
legustu börn.
— Já, er það ekki? Og þótt svona
tvö stykki geti verið nokkuð erfið á
stundum, vildi ég ekki fyrir
nokkurn mun vera án þeirra. Þessi
börn eru mér allt, og ég ímynda
mér, að ég sé einnig þeim mikils
virði. Ég hefí hugsað mikið um það
og kemst ekki að annarri niður-
stöðu en að ég hafi verið góður
faðir.
— Ekki efast ég um það, herra
minn.
— Nú haldið þér áreiðanlega, að
ég, þrátt fyrir allt það sem ég
hefi sagt yður, hafi ekki verið
reglulega hamingjusamur, en það
er ekki rétt. Ég var hamingjusamur,
eða að minnsta kósti ánægður,
allt að þeim degi, þegar ég fékk
þessa einkennilegu hugdettu. Heyr-
ið þér annars, ég þreyti yður þó ekki
'með öllu þessu tali?
— Alls ekki, herra minn, það til-
heyrir starfi mínu að hlusta.
— Það er fallega gert af yður að
taka þessu þannig. En sjáið þér til,
dag einn þegar ég var á leið heim
frá vinnu kom nokkuð einkennilegt
fyrir. Þegar ég ók framhjá litlum
veitingastað tók ég eftir skilti, þar
sem á stóð, að saltkjöt og baunir
væru þar á boðstólum þennan dag,
og þá greip mig allt í einu löngun
til þess að borða saltkjöt og baunir.
Nú megið þér ekki halda, að ég fái
aldrei saltkjöt og baunir heima hjá
mér, því það fáum við alltaf við og
við. Og ef líður of langt á milli,
þá þarf ég ekki annað en að nefna
það við konuna mína, að nú langi
mig í saitkjöt og baunir, og þá býr
hún til saltkjöt og baunir. En fyrir
það fyrsta var ósennilegt, að við
settum að fá saltkjöt og baunir
einmitt í dag, og að öðru leyti fann
ég allt í einu hjá mér óútskýranlega
þörf fyrir að sitja einn og borða
saltkjöt og baunir. Eins og ég sagði
áðan, þá þykir mér mjög vsent um
konu mína og börn, en það er nú
einu sinni svona, að þegar við erum
sest að matborðinu og erum byrjuð
að borða, þá er konan mín vön að
spyrja, hvernig hafi gengið á skrif-
stofunni . þann daginn. Það er
auðvitað ekkert illt í því, og hún
segir þetta sjálfsagt mest til þess að
koma af stað samrarðum. En nú
skeður sjaldan neitt sérstakt á skrif-
stofunni, svo ég cr vanur að svara,
að það hafi gengið vel, og svo tölum
við ekki meira um það. En þegar
maður nú hefur verið spurður
SMÁSAGA EFTIR
FINN S0EBORG.
þessarar sömu spurningar og gefið
þetta sama svar ! fimmtán ár, þá
kemur að því, að maður stendur
sjálfan sig allt í einu að því að
óska þess, að hún gæti, þó ekki væri
nema I eitt einasta skipti, spurt um
eitthvað annað.
Og svo eru það börnin. Það er
alveg sama, hversu elskuleg þau
eru, þau eru ansi óróleg. Þau rugga
sér á stólunum og hella ofan I
dúkinn og tala bæði I einu, svona
eins og krakkar eru vön að gera. Ég
ætla alls ekki að álasa þeim fynr
það, en .. sem sagt, til þess að
gera langt mál stutt, þá fór ég inn I
simaklefa og hringdi heim til
konunnar minnar og sagðist þurfa
að vinna eftirvinnu á skrifstofunni
og kæmi þess vegna ekki fyrr en
seinna.
Konan m!n varð hvorki móðguð
né leið, henni fannst það vera verst
fyrir mig. Hún spurði, hvort hún
ætti að bíða með matinn, en ég
sagðist ætla að borða á kostnað
fyrirtækisins og að ég gerði ráð fyrir
að koma seint heim. Og svo fór ég
sem sé inn og borðaði saltkjöt og
baunir. Þær voru svo sem ekkert
betri en baunirnar sem konan mln
býr til, þær voru meira að segja ckki
eins góðar og hennar baunir, því
hún er vön að láta tímían útí þær,
sem mér þykir sérstaklega gott, en
það var ekki gert þarna. Og ég
borðaði þær án þess að það væri
neinn, sem ruggaði sét á stólunum
eða hellti ofan I dúkinn eða spyrði
mig, hvernig hefði gengið á skrif-
stofunni. Ég hafði sest við lítið
borð, þar sem ekki var sæti fyrir
fleiri, þvl mig langaði ckki til þess
að tala við neinn. Ég vildi bara fá
að borða baunirnar mínar I friði,
aleinn með sjálfum mér.
Þegar ég hafði borðað fór ég I b!ó
og sá leynilögreglumynd. Ég hefði
svo sem ekki þurft að stelast til þess,
því það hefur aldrei neinn hindrað
mig I því að fara I bló. Konan mín
og ég förum alltaf saman I bló
annað slagið, krakkarnir eru nú
orðin nógu stór til þess að geta verið
ein heima smástund. Konan mln er
að vísu ekkert sérlega hrifin af
leynilögreglumyndum, en hún er
ekkert á móti þvl, að ég fari einn, ef
um er að ræða mynd, sem hún
ekki hefur áhuga á. En þá þarf ég
auðvitað fyrsta að segja henni, að ég
hafi hugsað mér að fara I bló, og þó
að hún sem sagt hafi ekkert á móti
því, sit ég samt alltaf þarna með
samviskubit, og mér finnst, að ég
hefði heldur átt að vera heima. I
þetta sinn vissi hún ekki, að ég fór I
bíó, og ekki veit é'g hversvegna,
en þrátt fyrir að myndin var ekki
sérlega góð, þá naut ég þess betur
en ég var vanur og sat þarna og lét
fara vel um mig I tvær klukku-
stundir, meðan ég var að melta
baunirnar.
Þegar myndin var búin ,fór ég
heim. Konan mln spurði, hvort ég
væri þreyttur, og ég svaraði já,
svolítið. Hún spurði, hvað ég hefði
fengið að borða, og ég svaraði
saltkjöt og baunir, og þá sagði hún,
að þar hefði ég verið heppinn. Svo
bjó hún til kaffi handa okkur, og
við sátum smástund og röbbuðum
saman, og síðan fórum við að hátta.
Burtséð frá því að ég hafði verið svo-
lítið út á við aleinn, var þetta
ósköp eðlilegt kvöld.
En þetta litla ævintýri mitt kom
mér á bragðið, og ég endurtók
skemmtunina á næstunni, án þess
að konuna mlna grunaði neitt.
En mikið vill meira eins og þar
stendur. Og dag nokkurn fann ég
upp á öðru alveg nýju. Ég sagði
konunni minni, að ég yrði að fara
burtu úr bænum næsta dag til þess
að gera athuganir á bókhaldinu I
útibúi okkar I öðrum bæ, og að
dagurinn færi áreiðanlega I það og
ef til vill kvöldið llka, svo ég
neyddist líklega til þess að gista um
nóttina. Konunni minni fannst
þetta ekkcrt skrltið, hún var vlst
eiginlega stolt af þvl, að mér skyldi
trúað fyrir slíku verkefni. Þegar ég
fór af stað næsta morgun óskaði
hún mér góðrar ferðar, bað mig aka
varlcga, og ég lofaði henni þvl.
Fyrst ók ég nú» bara I næsta
símaklefa, þar sem ég hringdi til
fyrirtækisins og sagðist ekki koma I
dag, af þvl ég væri svo kvefaður.
Slðan stefndi ég út á þjóðveginn.
Ég ók nú ekki til þess bæjar, þar
sem við höfum útibúið, heldur til
annars bæjar. Það getur verið alveg
sama hvaða bær það var, það var I
rauninni alger hending, að það varð
einmitt þessi bær. Ég fékk h'erbergi
á besta hóteli bæjarins og notaði
svo daginn til þess að labba um og
skoða bæinn. Það var svo sem ekki
af þvl að þar væri neitt sérstakt að
sjá, þér vitið, hvernig þessir bæir úti
á landi eru, en samt sem áður naut
ég þess að ráfa þarna um aleinn,
algjörlega stefnulaust. Seinna át ég
ágætan kvöldverð á hótelinu og fór
síðan upp á herbergið mitt, þar sem
ég afklæddi mig, fyllti baðkerið af
heitu vatni, lagðist I það með leyni-
lögreglusögu, sem ég hafði keypt til
þess arna.
Yður.finnst þetta sjálfsagt ein-
kennileg ánægja, og þá llklega ekki
hvað slst fyrir það, að við höfum
bæði baðker og heitt og kalt vatn
heima I raðhúsinu. En það er nú
bara það, að ef ég ætla I bað heima,
þá verð ég fyrst að tilkynna, að nú
ætli ég I bað, og þá þarf konan mín
fyrst að komast að til þess að pissa,
og svo þurfa krakkarnir líka að
komast á klósettið eða þvo sér um
hendurnar eða bursta I sér tennurn-
ar, eða hvað það nú kann að vera.
Og þó að það væri líklega aldrei
neinn, sem segði orð við þvl, þá er
ég samt viss um, að þeim mundi
finnast það undarlegt, ef ég færi
með leynilögreglusögu með mér I
bað og lægi þar á floti I margar
klukkustundir. Hér þurfti ég ekki
að standa neinum reikningsskil á
gjörðum mínum, og ég stóð ekki
upp úr baðkerinu fyrr en ég hafði
klárað leynilögreglusöguna, og þá
fór ég beint I rúmið. Og vel að
merkja, — aleinn. Það var ekkert
sem hét með stofustúlkunni eða
neitt þessháttar. Ég fór I rúmið,
sofnaði og vaknaði ekki fyrr cn
langt var liðið á næsta morgun.
Ég tók saman dótið mitt, borðaði
léttan hádegisverð og ók siðan
heim, þar sem konan mln tók á
móti mér með mikilli ánægju yfir
því að sjá mig aftur. Hún spurði,
hvernig hefði gengið, og ég sagði,
að það hefði gengið ágætlega, en
að það yrði jafnvel nauðsynlegt
fyrir mig að fara þangað aftur eftir
nokkurn tíma. Ég hafði, skiljið þér,
fengið smekk fyrir svona smáferða-
lög, og ég vildi halda opnum
dyrum til þess að fá tækjfæri til þess
að endurtaka skemmtunina.
Mánuði seinna fór ég aftur út á
land. I þetta sinn fór ég til annars
43. TBL. VIKAN 37