Vikan - 21.10.1976, Page 45
Heyrt frá
Frakk/andi
að velstæður verksmiðjueigandi
hafi yfirgefið heimili sitt og fyrir-
tæki vegna ástar sinnar á konu
einni. Konan, sem hefur sett
aumingja manninn úr sambandi,
er Mona Lisa da Vincis. Maður-
inn er sagður alveg heltekinn af
hinu heimsfræga brosi Monu
Lisu og hefur hann sótt um
vinnu sem safnvörður í Louvre
safninu til að vera nálægt elsk-
unni sinni.
Eiginkonan yfirgefna hefur
sagt blaðamönnum að hún skilji
vel hvernig tilfinningar svona
listaverk getur vakið. En hún er
sjálf listamaður.
Ja, það er nú gott og blessað,
að konan skuli vera svona skiln-
ingsrík. En ekki skil ég þetta, en
ég er nú heldur ekki lisíamaður.
Hendur brúðarinnar
Mundu að þetta er dagurinn, _
sem ekki dugir að fela hendurn-
ar. Svo byrjaðu að huga að
höndum þínum þrem til fjórum
vikum fyrir brúðkaupið. Notaðu
handáburð rækilega og hanska
ef þú þarft að sinna verkefnum
sem fara illa með hendurnar.
Hafðu neglurnar ekki of langar,
reyndu að hafa þær möndlulaga
og vandaðu valið á lit, ef þú
ætlar að lakka þær á þessum
merkisdegi þínum.
id;
%
Margar indíánafjölskyldur vinna
fyrir mat sínum með því að búa
til handmálaðar leirskálar og
krukkur. Hinir fullorðnu teikna
mynstrin, og síðan fylla börnin
þau út með litum.
Brúðarvöndur
mánaðarins
er gerður af Stefáni Hermanns í
STEFÁNSBLÓM v/Barónsstíg,
sími 10771. Eftirfarandi blóma-
tegundir eru notaðar í vöndinn:
Gular rósir, hvítar rósir, gular
gerberur og gular fresjur.
,,/ook"
Vaskaskinn er nú hæst móðins,
helst með kögri. Kannski eigum
við gamlar rúskinnsflíkur, sem
nota má í staðinn fyrir vaska-
skinn. Þá má Jeggja allskonar
bönd og bróderí á rúskinnið og
gera það dálítið indíánalegt.
indíána —
43. TBL. VIKAN 45