Vikan

Tölublað

Vikan - 16.12.1976, Blaðsíða 4

Vikan - 16.12.1976, Blaðsíða 4
ölaskraub.. Texti og myndir: Ragnheiður Gestsdóttir Flestar fjölskyldur skapa sér gegnum árin ákveðnar hefðir í sambandi við skreytingar á jólunum. En fyrir þá, sem nú eru í fyrsta sinn að halda jól á eigin heimili, og eins þá, sem vilja breyta til eða endurnýja jólaskrautið, eru hér nokkrar uppástungur. Það er líka tilvalið að stytta börnunum biðina eftir jólunum með því að leyfa þeim að þúa til ýmis konar jólaskraut — og þeir, sem teljast fullorðnir, geta líka haft gaman af að leika sér svolítið. JÓLATRÉÐ: Það getur verið fallegt að halda sig við einn eða tvo aðalliti í jólatrésskrautinu, til dæmis rautt og gyllt eða blátt og silfurlitt. Ef Ijósin á trénu eru marglit, mætti til dæmis skreyta tréð eingöngu með gylltum kúlum og gullpappírsskrauti. Marglitir jólapokar njóta sín hins vegar vel, ef tréð er að öðru leyti skreytt með rauðum hjörtum og rauðum kúlum. Tré, sem skreytt er með smákökum, er alltaf vinsælt hjá yngri kynslóðinni, en ekki er víst, að mikið verði eftir af skrautinu, þegar kemur fram á þrettánda! Ýmis form eru skorin út úr sýrópskökudeigi, annað hvort með þar til gerðum málmformum, sem margir eiga, eða með því að skera eftir formi, klipptu úr pappa. Skreyta má kökurnar með hvítum eða lituðum glassúr eða skrautsykri. Munið aó gera gat í kökuna til að hægt sé að þræða í band til upphengingar. ENGILL: Takið upp teikninguna í næstu opnu á þunnt blað og klippið formið út. Gleymið ekki að merkja raufarnar A og B inn á. Notið formið síðan til að teikna eftir á málmpappír. Klippið engilinn út úr málmpappírnum og beygið hann saman, þannig að vængirnir mætist. Stingið raufunum A og B saman eins og myndin sýnir. Hár má búa til með því að klippa ræmur af málmpappír og vefja þeim utan um grófan þandprjón eða mjóan þlýant til þess að krulla þær. Endarnir á lokkunum eru límdir aftan á höfuðið. Band til upphengingar er límt milli höfuðs og geislabaugs. Einnig má skreyta engilinn með stjörnum eða hjörtum úr málmpappír. Þessi engill getur staðið og mætti því líka nota sem skraut á jólaþorðið. Auðvitað má líka klippa engilinn út úr kartonpappír og mála eða klippa skreytingar. Skraut, sem klippt er úr málmpappír, er hægt að nota hvort sem er á tréð eða í gluggaskreytingar og óróa. 4 4 VIKAN 51.TBL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.