Vikan

Tölublað

Vikan - 16.12.1976, Blaðsíða 25

Vikan - 16.12.1976, Blaðsíða 25
„En hvað um óþægilegar spurn- ingar?” Til þess að spara þeim tíma- fór hann að koma farangrinum fyrir aftur í Mercedesbilnum. Irina var þegar sest upp í. Höfuð hennar seig ofan í bringu og hún lygndi aftur augunum. „Æ já,” sagði Jo hægt. „Við megum auðvitað eiga von á þeim.” Hún stundi. „Ég ætti líklega að aka honum héðan,” sagði hún hikandi, og vonaðist til þess að David myndi segja henni að skilja hann bara eftir þarna. „Ágætt,” sagði hann. „En aktu honum aðeins eina mílu eða svo. Ég tek þig siðan upp á leiðinni.” Hann rétti Jo handtöskuna hennar, sem hafði verið í Fordinum. Hún tók við henni, rétt eins og ekkert hefði verið sjálfsagðara en að skilja hana eftir í bílnum. Bíllyklunum höfðu þær líka gleymt. Þær hlutu að hafa verið meira en lítið utan við sig, eða ef til vill flúið i dauðans ofboði. En David vildi ekki fara nánar út í þá sálma. „Á ég að aka i norður?” spurði Jo hægt. „Já, í áttina að landamærun- um.” „Ég vildi bara vita vissu mína,” sagði hún í afsökunartón. „Er það ekki skrýtið. Nú er eins og allt snúist inni í höfðinu á mér.” En áðan uppi á hæðinni... ég hef aldrei á ævi minni hugsað eins skýrt og þá. „Skrýtið,” endurtók hún og steig upp í Fordinn. Var þetta ekki of mikið á hana lagt, hugsaði David er hann horfði á hana bakka bilnum og aka út á þjóðveginn. Enn svo settist hann inn i Mercedesbílinn og elti hana. Irina opnaði augun. Hún var þá ekki sofandi. „Ég fann hvergi handtöskuná þína,” sagði hann. „Týndirðu henni? Og hvar?” Eitt var þó víst að hann ætlaði ekki að klöngrast upp þessa hæð til þess að leita að henni. „Hún fór fram af hengifluginu á eftir Jan.” Guð minn góður, hugsaði hann. Jan hafði þá komist svona nærri henni. , ,Ég er þó með vegabréfið, ” sagði hún, þegar hún tók eftir svipnum á andliti hans. „Það er hérna.” Hún studdi á einn vasann á kápunni sinni. „En það er dálitið annað. Ég hef ætlað að segja þér það David, en...” „Hvað?” Hún tók fram vegakortið, opnaði þaðogsagði. „Tarasp...” „Ég veitþað,” sagði hann. „Ég gerði þetta í ógáti. Mér var mikið niðri fyrir og ég var með kúlupenna í hendinni, allt í einu tók bíllinn beygju og ég strikaði... ” „Já-já,” sagði hann. „Hættu að hugsa um þetta.” Ja, sá er góður, sagði hann við sjálfan sig, þegar þess er gætt að ég get með engu móti hætt að hugsa um það sjálfur. „En þeir munu biða okkar í Tarasp.” „Kannski. Kannski ekki. Það fer eftir því hversu hratt við ökum. Eða hversu erfiðlega þeim gengur að komast þangað.” Hann reyndi að vera sannfærandi og honum tókst það. Irina slakaði á. Hún hallaði höfðinu aftur á bak. „Já,” sagði hún, er hún sá Jo standa hjá Ford- inum í vegkantinum. „Þeir eiga lika við ýmsan vanda að etja. En þeir eru eitthvað svo ósýnilegir. Og samt...” Hún lokaði augunum og sagði blíðlega. „Það var Alois sem valdi handtöskuna fyrir mig. Þetta var á vissan hátt hans taska.” David ók fram fyrir Fordinn og stansaði þar. Jo hafði losað um ventilinn á einu hjólinu og það lak hægt úr dekkinu. „Vantar þig far?” sagði David og brosti, en Jo reyndi að skokka í áttina að bílnum. Svo gafst hún upp og lallaði siðasta spölinn. í sömu andrá renndi bíll upp að hliðinni á þeim. Þrir menn voru i bílnum og David hrökk í kút. En svo sá hann lögreglubúning. Hinir • •• Já, í ár verður jólagjöfin frá Eymundsson, við bjóðum gjafavörur í glæsilegu úrvali. Ennfremur bjóðum við mikið úrval af jólakortum og jólaskrauti. BÓKAVERZLUN* SIGFUSAR EYMUNDSSONAR AUSTURSTRÆTI 18 REYKJAVÍK SÍMI: 13135 PRISMH 51. TBL. VIKAN 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.