Vikan - 16.12.1976, Blaðsíða 16
Hadda
fer í búðir
Hér áður fyrr var svo til eingöngu
notað gróft salt til matargerðar.
Tíðkuðust þá mjög emaleraðar salt-
krúsir eða ker, sem hékk þá á vegg i
seilingarfjarlaegð frá eldstæði. I
versluninni Jóhannes Norðfjörð,
Laugavegi 5 og Hverfisgötu 49, fást
slík TENERA saltker úr dönsku
postulíni. Kerið t.v. kostar kr.
4.740, en það t.h. kr. 6.125.
KOSTA BODA verksmiðjumar eru
elstu kristalsverksmiðjur á Norður-
löndum, eða frá því um 1742. Eru
vömr þeirra því þekktar viða. I
Verslanahöllinni við Laugaveg er
ný verslun, KOSTA BODA, og
selur eingöngu vörur frá samnefnd-
um verksmiðjum. Þessir fallegu
jólakertastjakar eru hinir eiguleg-
ustu og til prýði á hverju heimili.
Jólastjarnan kostar kr. 2.695, jóla-
sveinninn kr. 2.920, en grísinn kr.
2.695.
1 blómaversluninni Flóra, Aðal-
stræti 8, fást þessar fallegu kúlur úr
þurrkuðum blómum, og kosta kr.
1.810.
Þegar böm komast á þriðja árið,
verða þau nemendur i umferðarskól-
anum og fá þá send sín fyrstu bréf
um umferðarfræðslu. í Leikfanga-
landi, Veltusundi 1, fást þessir
pakkarmeð umferðarmerkjum, sem
tilvalið er að nota i bílaleikjum.
Ætti það að auðvelda barninu skiln-
ing á hinum ýmsu merkjum. Pakk-
arnir kosta kr. 1.823.
| markaðinum, Aðalstræti 9. Settið
kostar kr. 3.950.
Þessi húsbóndasvunta úr bómull
fæst i Pólsku búðinni í Verslana-
höUinni og í Glæsibæ og kostar kr.
1.150.
og mikUl svertingi og okkur kom
saman um að borða saman morgun-
verð, úr þvi að við værum bara
tveir komnir á fætur. Á meðan við
snæddum kom til okkar annar
svertingi, sem talaði um einhverja
„session” í borginni. Þegar þeir
félagar. komust að því, að ég vissi
ekkert, hvað þeir áttu við, heimt-
uðu þeir, að ég kæmi með þeim.
Þegar ég kom á staðinn uppgötvaði
ég, að sá sem hafði borðað með mér,
var enginn annar en George Fore-
man hnefaleikari, og ég mundi að
hafa lesið um væntanlega keppni
milli hans og Kens Norton í borg-
inni. Á meðan George slóst i
hringnum sat kunningi hans hjá
mér og gætti mín vel og vandlega,
og svo urðum við allir samferða
heim á hótel á eftir. Þetta var meiri
kappinn þessi Foreman, ég gæti
trúað, að handleggirnir á honum
hafi verið álíka breiðir og fót-
leggirnir á mér! Ég vildi fá að taka
mynd af honum, en því harðneitaði
umboðsmaðurinn — búinn að selja
myndaréttinn — svo að ég get ekki
ætlast til að nokkur maður trúi mér,
þó að þetta sé heilagur sannleikur.
— Gætirðu hugsað þér að vmna
hjá erlendu flugfélagi aftur?
— Já, það er i raun og veru það
sem ég er á höttunum eftir. Erlend-
is eru menn ráðnir í störf eftir
getu og reynslu, en hér virðist því
miður farið eftir einhverjum öðrum
reglum. Hvort það er klikuskap
eða pólitík að kenna, veit ég ekki,
en hvort tveggja er slæmt.
Stundum fæ ég
ljóðadrullu.
— Þú segist hafa sungið inn á
þessa plötu að gamni þínu, en hvers
vegna valdir þú ljóð eftir Kristján
frá Djúpalæk?
— Ég met þau mikils og höfund-
inn líka. Ég kynntist Kristjáni fyrst
gegnum pólitík á Akureyri, og
Kristjáni gleymir maður ekki eftir
að hafa einu sinni hitt hann. Mér
finnst Kristján vera eitt besta ljóð-
skáld á íslandi í dag. Ég get ekki
sagt hvers vegna, það er smekks-
atriði, og það er ekki hægt að
rökræða.
— Trúir þú á framhaldslíf eins og
Kriptján?
— Stundum fæ ég ljóðadrullu,
eins og ég kalla það, þegar andinn
kemur yfir mig, og þá reyni ég að
koma skoðunum mínum á lífi og
dauða á framfæri. Ég er ekki viss
um, að ég vildi trúa á framhaldslíf?
Mér finnst mikið til i þessum ljóð-
linum sem einhvem tíma komu upp
í huga mér:
Er það satt, að einhver segði
að eftir að maður laup upp legði,
þá vöknuðu allir við þá klígju
að vera að byrja líf að nýju.
Trúin þessi tjáir segja
það tekur þvi bara ekki að deyja
ef fæ ég ekki einu sinni
öðlast frið í kistu minni.
En ég er reiðubúinn til þess að
breyta um skoðun ef ég fæ ástæðu
til.
Glettur og grá-
glettur á plötunni
— Ertu ánægður með plötuna?
— Já, sæmilega býst ég við. Ég
pældi lengi í ljóðum Kristjáns áður
en ég valdi þau á plötuna, og sums
staðar skeytti ég saman glettum og
gráglettum, sem ég held að hafi
komið ágætlega út. Það má segja,
að flestar útsetningarr.ar hafi „orð-
ið til” í stúdíóninu og mestan þátt í
þeim á huldumaður, sem ég má ekki
nefna hér. Eiginlega er þessi plata
nokkurs konar „happening” og
byggist á samvinnu þeirra sem
koma fram á þessari plötu, eftir að
við hófum æfingar. í raun og veru
eru aðeins þrjú lög útsett áður, en
vinna i stúdiói hefst. Jón bassi
útsetti lagið: Síðasta lag fyrir
fréttir, Þorvaldur Steingrimsson
útsetti fiðlu í tveimur lögum, og
Magnús Ingimarsson útsetti lag
Pálma Gunnarssonar, Dans gleð-
innar. Enda er músíkin fjölbreytt,
allt frá dixieland upp í kammer-
músík og „funk”. Magnús Kjart-
ansson á stóran þátt i þessari plötu.
Ég hef alltaf haldið mikið upp á
hann, þó að mér hafi fundist hann of
einhæfur. Ég bað hann um að semja
fallega melódíu við Svefnljóð, og
það gerði hann snilldarlega.
Magnús leikur undir á pianó í öllum
lögunum, og ég held, að mér hafi
tekist að koma Magnúsi út af þeirri
linu, sem hann var búinn að binda
sig við.
Vil gera ,,fullorð-
insplötu”.
— Ertu með aðra plötu í huga?
— Ég hef alltaf gengið með það
í maganum að syngja með kammer-
sveit, sem ég fékk tækifæri til á
þessari síðustu plötu minni, en ein-
hvem tíma langar mig lika til þess
að gera plötu fyrir fólk á mínum
aldri, „fullorðinsplötu” vil ég kalla
það. Og ég vil byggja hana upp á
16 VIKAN 51. TBL.